Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.12.2005, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 27.12.2005, Qupperneq 35
ÞRIÐJUDAGUR 27. desember 2005 3 C M Y CM MY CY CMY K Óttinn við fuglaflensufaraldur hefur sett svip sinn á árið 2005. Víða hafa ráðamenn fyrir- skipað slátrun á alifuglum í milljónatali og vara borgara sína við mögulegum hættum. Þessi ótti er ekki ástæðulaus. Fuglaflensan nú er af svipuð- um meiði og spænska veikin sem skók heiminn 1918-1919. Talið er að um fjörutíu milljónir manna hafi látist úr spænsku veik- inni og þrátt fyrir að dánarhlutfall hérlendis hafi verið töluvert lægra en erlendis olli veiran gríðarleg- um skaða. Á þessum tíma bjuggu um 15.000 manns í Reykjavík og á innan við 14 dögum frá fyrsta greinda tilfellinu höfðu 10.000 manns smitast, tveir af hverjum þremum íbúum. Eins og gefur að skilja lamaði þetta áfall samfé- lagið í Reykjavík. Dagblöð hættu að koma út og búðum var lokað. Símstöðvar urðu óvirkar sökum manneklu svo ekki var hægt að hringja eða senda skeyti. Lögregl- an annaði vart eftirspurn vegna veikindaleyfa og erfitt var að fá opinbera starfsmenn til að bera lík úr heimahúsum. Alls létust um 300 manns af völdum veikinnar á Íslandi, þar af 260 á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem íbúar höfuðborgarsvæðisins nú eru ríflega tíu sinnum fleiri en 1918 segir köld tölfræði okkur það að sambærileg veiki nú myndi kosta þrjú þúsund manns lífið. Fuglaflensan nú er hins vegar ekki sú fyrsta sem skellur á okkur síðan 1918. Faraldrar 1957 og 1968 skutu fólki skelk í bringu og 1976 óttuðust yfirvöld í Bandaríkjunum að veiki, áþekk spænsku veikinni, væri í uppsiglingu. Hún sýkti og dró fólk til dauða og þótti minna óþægilega mikið á faraldurinn 1918-19. Þess vegna fyrirskipaði forseti Bandaríkjanna, Gerald R. Ford, að bólusetja skyldi alla þjóð- ina. Veikin náði sér aldrei á strik og ekkert varð af faraldri af henn- ar völdum. Vísindamenn eru ekki á einu máli hversu hættulegur fuglaflensufaraldur nú yrði. Læknavísindum fleygir stöðugt fram og við erum töluvert betur í stakk búin að fást við faraldur nú en 1918. Þrátt fyrir allar hrakspár er fuglaflensuveira í raun sama veiran og sú sem veldur árlegum inflúensufaröldrum. Þá er bara að vona að hálsbrjóstsykur og heitt kakó virki jafn vel á heimsfarald- ur og á flensu. tryggvi@frettabladid.is Er önnur spænsk veiki á leiðinni? Allur er varinn góður þegar fuglaflensa er annars vegar. Sjúkrahús í borginni Lausanne í Sviss mun í framtíðinni leyfa líknardráp á dauðvona sjúk- lingum. Þetta er gert eftir mikla íhugun af hálfu yfirmanna sjúkrahússins. Líknardráp eru ekki ólögleg sam- kvæmt svissneskum lögum svo lengi sem sjúklingur er andlega heill og þjakaður af ólæknandi sjúkdómi. Hingað til hefur sjúkra- húsið ekki viljað leyfa líknardráp og því hafa sjúklingar sem þess óska þurft að fara heim. Þar hafa þeir geta leitað liðsinnis sjálfboða- samtakanna Exit, sem aðstoða sjúklinga við að stytta sér aldur. Nú geta sjúklingar fengið aðstoð lækna og annars starfsfólks sjúkrahússins og þurfa ekki að yfirgefa sjúkrarúm sín. Starfs- fólki er það hins vegar í sjálfsvald sett hvort það taki þátt í líknar- drápi eða ekki. Skiptar skoðanir eru um líknardráp. FRETTABLAÐIÐ/HARI Líknardráp leyfilegt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.