Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 67

Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 67
 27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR50 FRÉTTIR AF FÓLKI Söngkonan Gwen Stefani hefur staðfest að hún sé með barni. Þetta verður fyrsta barn hennar og eiginmanns hennar Gavin Rossdale úr hljómsveitinni Bush. Söngkonan færði aðdáendum sínum tíðindin á tón- leikum í Florída á dögunum og hvatti áheyrendur til að taka vel undir í laginu Crash svo að barnið myndi heyra. Um leið sagði hún að stórum kafla í ævi hennar væri senn lokið. Stefani og Rossdale gengu í það heilaga fyrir þremur árum síðan. Hún mun eiga von á sér í júní. Rossdale á fyrir sextán ára gamla dóttur sem hann eignaðist með tískuhönnuðum Pearl Lowe en faðernið kom ekki í ljós fyrr en í fyrra. EINSAMALL STRÁKUR Pétur Jóhann Sigfús- son var glaðbeittur enda jól en hann var greinilega spenntur fyrir þessari „íslensku“ mynd. MÁLIN RÆDD Stórlaxarnir Kári Stefánsson og Skarphéðinn Berg Steinarsson spjölluðu saman fyrir sýningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÚTVARPSSTJÓRAFJÖLSKYLDAN Hjónin Páll Magnússon og Hildur Hilmarsdóttir mættu með börnin sín, Pál Magnús og Eddu Sif, á frumsýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, var frumsýnd í Smárabíói í gær. Myndarinnar hefur verið beðið lengi og það var greinilegt að það var mikil spenna í loftinu. Balta- sar og Sigurjón Sighvatsson, annar framleiðandi myndarinnar, tóku vel á móti gestum sem fjölmenntu til að berja verkið augum. Það eru Hollywood-stjörnurnar Forest Whitaker og Julia Stiles sem leika aðalhlutverkin í myndinni en Mugi- son semur tónlistina. - fgg A Little Trip frumsýnd í Smárabíói VERTU VELKOMINN Lilja Pálmadóttir, eiginkona Baltasars Kormáks, fagnaði komu kvik- myndaleikstjórans Friðriks Þórs Friðrikssonar á frumsýningu myndarinnar en Friðrik hefur leikstýrt Baltasar tvisvar, í Englum alheimsins og Djöflaeyjunni. MENNINGARFRÖMUÐUR OG FRAMBJÓÐ- ANDI Stefán Jón Hafstein, forseti borgar- stjórnar, lét sig ekki vanta á frumsýninguna. FÓLKIÐ Á BAK VIÐ A LITTLE TRIP Mugison, Lilja Pálmadóttir, Baltasar Kormákur, Sigurjón Sighvatsson, Stella og Ingibjörg Sólilja stilltu sér upp enda mikilli törn loksins lokið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.