Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 4
4 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
Lágmarkslaun hækka Atvinnurek-
endur á Nýja-Sjálandi segja áætlanir
stjórnvalda um að hækka lágmarkslaun
í landinu koma sér afar illa á sama tíma
og verðbólga hefur gert vart við sig. Vilja
yfirvöld hækka lágmarkslaun á tímann í
557 krónur.
Þola ekki jarðskjálfta Flestir af
stærri spítölum í stærstu borgum lands-
ins munu ekki þola harða jarðskjálfta ef
slíkar náttúruhamfarir verða. Kom þetta
í ljós þegar ný og strangari byggingalög
voru sett og eru spítalar því dauðagildr-
ur ríði skjálfti yfir.
Hundrað prósent árangur Árangur
lögreglunnar í Christchurch á Nýja-Sjá-
landi við að upplýsa morð er hundrað
prósent annað árið í röð, en handtökur
hafa verið gerðar vegna allra þeirra 24
morða sem átt hafa sér stað í borginni
síðustu tvö árin.
NÝJA-SJÁLAND
FÍKNIEFNAMÁL Tvö óskyld fíkni-
efnamál komu upp með stuttu
millibili í Hafnarfirði um mið-
nætti í fyrrakvöld. Tveir ungir
menn voru handteknir.
Sá fyrri var handtekinn eftir að
í fórum hans fundust tveir neyslu-
skammtar, einn af kókaíni og
annar af amfetamíni. Hinn hafði
smáræði af amfetamíni á sér.
Að yfirheyrslum loknum var
mönnunum sleppt og eru málin
upplýst að sögn lögreglu. - æþe
Fíkniefni tekin í Hafnarfirði:
Tveir teknir
með fíkniefni
HAFNARFJÖRÐUR Tvö fíkniefnamál komu
þar upp með stuttu millibili í fyrrinótt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJARAMÁL Hátt í 50 starfsmenn á
leikskólum Kópavogsbæjar, eða
rúmlega 12 prósent allra leik-
skólastarfsmanna í bænum, hafa
sagt upp störfum. Á fimm leik-
skólum hefur þurft að grípa til
lokana deilda eða foreldrar hafa
verið beðnir um að sækja börnin
fyrr. Í þessum skólum eru sam-
tals um 500 börn og því ljóst að
daglegt líf margra fjölskyldna er
í uppnámi vegna málsins.
Mikil óánægja er meðal starfs-
manna með launakjör og foreldr-
ar barna á leikskólunum segjast
undrandi og reiðir vegna slæ-
legra viðbragða bæjarstjórnar
Kópavogs. Launamálaráðstefna
Sambands íslenskra sveitarfélaga
er framundan og yfirvöld í Kópa-
vogi hafa sagt að þau vilji bíða
með viðræður við starfsmenn
þangað til að henni er lokið.
Þorvaldur Daníelsson, tals-
maður foreldrafélaga á leik-
skólum Kópavogsbæjar, segir
ástandið slæmt og hann segist
ekki skilja þá ákvörðun að bíða
eftir niðurstöðum launamála-
ráðstefnunnar. „Það leysir ekki
vandann sem nú er fyrir hendi, á
sama tíma og menn eru að ræða
málin þar og sama hver útkoman
verður þá er fólk að hætta,“ segir
Þorvaldur. „Hvað á að líða lang-
ur tími þangað til að þetta ágæta
fólk áttar sig á því að það er ekki
við þetta unað? Það er reyndar
þannig að starfsfólk kemur og fer
á leikskólum en við foreldrarnir
finnum sérstaklega fyrir óróan-
um núna og hvernig hann kemur
fram hjá börnunum.“
Þorvaldur segir að foreldrar
barna á leikskólum hafi misst
af atvinnutækifærum vegna
ástandsins. „Ég veit um dæmi
um að fólk hafi verið að ganga frá
ráðningarsamningum og sagt frá
því að þeir væru með barn á leik-
skólaaldri og fengið þau svör frá
fyrirtækjunum að þar sé verið
að leita að starfsfólki í 100 pró-
sent stöðu. Einnig hef ég heyrt að
aðrir hafi hreinlega misst vinn-
una vegna þess að þeir eiga barn
á leikskóla í Kópavogi.“
Laufey Dís Ragnarsdóttir er
foreldri tveggja barna á leikskól-
anum Rjúpnahæð, en þar hefur
þurft að loka deildum vegna
starfsmannaeklu frá því í sept-
ember. Að hennar sögn kemur
það henni og eiginmanni hennar
mjög vel að hafa sveigjanlegan
vinnutíma, en það auðveldar þeim
að fást við vandann sem skapast
vegna lokana og uppsagna. Samt
sem áður segir hún að mikið stress
fylgi eilífum lokunum. „Það er
mjög erfitt að skipuleggja dagana
því það er alltaf óvissa með næsta
dag og maður getur rétt ímyndað
sér hvernig aðstæður einstæðra
foreldra eru,“ segir hún.
steinar@frettabladid.is
Foreldrar missa vinnuna
Ófremdarástand hefur ríkt í leikskólum Kópavogsbæjar undanfarna mánuði. Tugir starfsmanna hafa
sagt upp störfum og leikskólastjórar hafa neyðst til að loka deildum. Foreldrar leikskólabarna hafa
misst vinnuna vegna ástandsins. Þeir eru undrandi og reiðir vegna slælegra viðbragða bæjarstjórnar.
LEIKSKÓLINN NÚPUR Fimmtán starfsmenn hafa sagt upp störfum á Núpi.
SMÁRAHVAMMUR
Engir starfsmenn hafa sagt upp á Smára-
hvammi en þó hefur þurft að senda börn
heim vegna starfsmannaeklu. Samtals eru
95 börn á Smárahvammi.
RJÚPNAHÆÐ
Sjö starfsmenn hafa skilað inn uppsagnar-
bréfi á Rjúpnahæð. Þar eru 103 börn. Pláss
er fyrir 119 börn en vegna starfsmanna-
vanda eru ekki fleiri börn í skólanum. Loka
hefur þurft deildum frá því í september.
KÓPASTEINN
Sex starfsmenn hafa sagt upp störfum
á leikskólanum. Þar hefur þurft að
senda yngri börnin heim vegna þess að
starfsmenn hafa ekki verið nógu margir.
Heildarfjöldi barna á Kópasteini er 75.
NÚPUR
Alls hafa 15 starfsmenn ákveðið að segja
upp á Núpi. Heildarfjöldi barna í leikskól-
anum er 104 og vegna starfsmannaeklu
hefur deildum verið lokað. Einnig hefur
þurft að senda börnin heim áður en
skóladeginum lýkur.
FÍFUSALIR
Alls hafa 12 starfsmenn sagt upp á
leikskólanum Fífusölum. Þar var deildum
lokað í september og október. 119 börn
eru í leikskólanum.
KJARAMÁL Leikskólastarfsmenn í
Kópavogi eru ekki sáttir við starfs-
hætti yfirvalda þar í bæ. Jenný
Gunnarsdóttir, leikskólakennari á
Fagrabrekku, segir að starfið hafi
verið mjög erfitt í allt haust. „Það
má í raun segja að þegar um fjöl-
skyldumál er að ræða þá er Kópa-
vogur annars flokks samfélag.
Starfsmenn eru mjög óánægðir
með ástandið og ef það kemur ekk-
ert jákvætt frá bæjarstjórninni
eftir launamálaráðstefnuna þá eru
góðar líkur á að við hverfum allar
frá störfum,“ segir hún.
Leikskólastjórinn á Álfaheiði,
Elísabet Eyjólfsdóttir, segir eitt af
einkennum gæðastarfs vera stöð-
ugleika í starfsmannamálum en að
leikskólarnir hafi hins vegar þurft
að glíma við mikla óvissu í þeim
málum. Hún segir að það þurfi að
finna heildstæða lausn í leikskóla-
málum.
Þröstur Brynjarsson, varafor-
maður Félags leikskólakennara,
segir að félagið leggi áherslu á að
fólk staldri aðeins við því að stutt
sé þangað til launamálaráðstefnan
hefst. „Við bíðum bara bjartsýn
eftir niðurstöðum launamálaráð-
stefnunnar,“ segir hann. - sk
Starfsmenn leikskóla í Kópavogi ósáttir við bæjaryfirvöld:
Annars flokks samfélag
LEIKSKÓLINN RJÚPNAHÆÐ Deildum á
Rjúpnahæð er lokað daglega vegna starfs-
mannaeklu. Leikskólastarfsmenn segja
ástandið óviðunandi.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 06.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 60,94 61,24
Sterlingspund 106,96 107,48
Evra 73,66 74,08
Dönsk króna 9,872 9,93
Norsk króna 9,285 9,339
Sænsk króna 7,901 7,947
Japanskt jen 0,5242 0,5272
SDR 88,17 88,69
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,1916
STJÓRNMÁL Samband ungra
sjálfstæðismanna skorar á þingmenn
og ráðherra Sjálfstæðisflokksins að
beita sér aldrei gegn friðsömum
mótmælendum til að vernda hugarró
erlendra harðstjóra.
Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt á fundi stjórnar í vikunni.
Var það gert í kjölfar álits umboðs-
manns Alþingis í Falun Gong mál-
inu svokallaða, sem telur að ann-
markar hafi verið á þeirri ákvörðun
stjórnvalda að synja iðkendum Falun
Gong landgöngu á sínum tíma.
Meðlimir Falun Gong hyggja á
málaferli til að fá hlut sinn réttan.
- sk
Ungir sjálfstæðismenn:
Ósammála
forystunni