Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 86

Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 86
Árið 1967, þegar sumar ástarinnar var og hét, hefur verið kjörið besta ár allra tíma í popptónlistinni. Það voru hlustendur bresku útvarpsstöðvarinnar Radio 2 sem tóku þátt í könnuninni. Þetta ár gáfu Bítlarnir út Sgt. Pepper, Jimi Hendrix gaf út Are You Experienced? og bæði The Rolling Stones og Pink Floyd slógu í fyrsta sinn í gegn í Bandaríkjunum. Þess má geta að meðalaldur hlustenda útvarpsstöðvarinnar er 51 ár og muna þeir því vel eftir þessu fræga sumri. „Þetta var mjög mótandi tími fyrir mig því þarna var ég að fá áhuga á tónlist,“ sagði tónlistar- maðurinn Paul Weller í spjalli við Radio 2. „Þetta var ár þema-platn- anna og þarna komu út margar frábærar smáskífur eins og See Emily Play eftir Pink Floyd.“ Í öðru sæti lenti árið 1957 en þá náði Elvis Presley-æðið hámarki sínu. Næst á eftir varð árið 1973 þegar Pink Floyd gáfu út The Dark Side of the Moon. Árið 1999 var kjörið versta árið í popptónlist fyrr og síðar. ■ Ástin blómstraði sumarið 1967 BÍTLARNIR The Beatles gáfu út plötuna Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band árið 1967. BESTU TÓNLISTARÁR ALLRA TÍMA 1. 1967 2. 1957 3. 1973 4. 1966 5. 1969 6. 1979 7. 1976 8. 2005 9. 1994 10. 1984 Grínistinn Jon Stewart verður í fysta sinn kynnir við veitingu næstu óskarsverðlauna sem verð- ur hin 78. í röðinni. Stewart hefur ágæta reynslu í þessum geira því hann hefur tvívegis verið kynnir við afhendingu Grammy-verðlaun- anna bandarísku. Stewart hefur stjórnað þætt- inum Daily Show við miklar vin- sældir þar sem hann gerir óspart grín að stjórnmálamönnum og bandaríska fjölmiðlaheiminum. Vonast stjórnendur óskarsins til að Stewart muni draga að enn fleiri áhorfendur af yngri kyn- slóðinni en áhorf á þátt hans hefur einmitt verið mest hjá fólki á aldrinum 18 til 49 ára. Stewart hefur einnig verið tíður gestur í spjallþáttum Jays Leno og Davids Letterman þar sem hann hefur látið allt flakka. Hann studdi demókratann John Kerry í forsetakosningum Bandaríkjanna árið 2004 og hefur ekki sparað gagnrýni á forsetann George W. Bush í þætti sínum. Stewart tekur við sem kynnir af leikaranum Chris Rock sem fékk misjafna dóma fyrir frammistöðu sína á síðustu óskarshátíð. Gerði hann m.a. grín að Jude Law sem féll í heldur grýttan Vonir bundnar við Stewart Þriðja breiðskífa rokksveitarinnar Singapore Sling, Taste the Blood of Singapore Sling, er að koma út eftir þó nokkra bið. Platan átti síðast að koma út á Þorláksmessu en einhverjar tafir urðu á vinnslu hennar. Síðasta plata Singapore Sling, Life is Killing My Rock N´Roll kom út 2004 var ágætt framhald af fyrstu plötunni The Curse of Singapore Sling sem kom út tveimur árum áður. Rykugt eyðimerkurrokkið var í fyrirrúmi og töffaraskapurinn meiri en nokkru sinni fyrr. Áður hafði sveitin gefið út hina 8-laga demóplötu Overdrive í einungis þrjátíu eintökum. Nýir meðlimir hafa bæst við Singapore Sling síðan síðast. Eru það gítarleikarinn Hákon Aðalsteinsson, sem semur tvö lög og útsetur með forsprakkanum Henrik Björnssyni, og bassa- leikarinn Bíbí sem áður var í Kolrössu Krókríðandi. Henrik segir að nýja platan sé styttri en sú síðasta, það sé helsti munurinn á gripunum tveimur. „Það eru sjö lög á þessari plötu og þetta var tekið upp með trommuheila og unnið mjög hratt. Við tókum þetta upp sjálfir,“ segir Henrik. Hann bætir því við að hug- myndin um að nota trommuheila hafi bara verið ákvörðun sem hafi verið tekin því upphaflega hug- myndin hafi verið að gefa út EP- plötu með trommuheila. Henrik segist vera mjög ánægður með nýju plötuna. „Það er helvíti gott að geta tekið upp svona plötu á átta rása tæki við erfiðar aðstæður og án peninga.“ Singapore Sling hefur gert nokkuð af því að spila úti í heimi og játar Henrik að tónleikahald ytra sé á döfinni en ekkert hafi þó verið ákveðið enn. Platan kemur alla vega fyrst út hér heima en um þessar mundir er verið að ganga frá útgáfumálum við erlenda aðila. freyr@frettabladid.is Sjö lög og trommuheili HENRIK BALDVIN BJÖRNSSON Söngvari og forsprakki Singapore Sling segir að nýja platan hafi verið unnin mjög hratt. S Ö N G B Ó K B J Ö R G V I N S H A L L D Ó R S S O N A R 1 9 7 0 - 2 0 0 5 Stórkostleg safnplata í næstu verslun 3CD ��������� ��������������� �������� ��� ��������� ��������������� �������� ��� HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 2 og 4 ÍSLENSKT TAL „Persónurnar eru trúverðugar og leikurinn í flestum tilvikum fyrsta flokks“...„Baltasar finnur smjörþefinn af Hollywood“ ���� - Dóri DNA - DV ���� - Toronto Sun Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com ��� - Topp5.is Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 ....eiturgóð mynd.... Sirkus 30.12.05 ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 3 Íslenskur texti Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka „...líklega besta kvikmyndatónlist Íslendings til þessa“ VG - Fréttablaðið ...áhugaverð og fáguð kvikmynd sem veitir ferskum straumum inn í íslenska kvikmyndagerð ���� - HJ MBL Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL Sýnd kl. 3, 6, 9 og 11 B.i. 16 ára ....eiturgóð mynd.... Sirkus 30.12.05 Sýnd kl. 8 og 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.