Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 46
10 Líkamsrækt í vatni Finnur þú fyrir verkjum í fótleggjum eða baki við líkamsþjálfun? Þegar æft er í vatni minnkar álag um liði þar sem áhrif þyngdark- raftsins minnka. Það verður því auðveldara að þjálfa upp úthald og styrk án þess að það valdi of miklu álagi á liðina. Bæði rólegir og kröftugir tímar í hádeginu og eftirmiðdaga, undir leiðsögn sjúkraþjálfara, í hlýrri og bjartri sundlaug við Laugarás. Skráning og nánari upplýsingar í síma 897-2896 : Netfang: harpahe@hi.is Tvær rannsóknir sem Magnús Ólafsson heimil- islæknir og fleiri hafa gert á börnum sýna að of þung börn eiga erfiðara með að einbeita sér og ná slakari námsárangri en félagar þeirra sem ekki eiga við offituvandamál að stríða. „Í mjög stuttu máli má segja að þau börn sem eru þyngst sýni lakari námsárangur en þau sem eru innan þess sem má kalla venjulega þyngd,“ segir Magnús Ólafsson heimilis- læknir, sem stóð að rannsóknunum ásamt fleiri aðilum. Öll börn í í 4., 7. og 10. bekk á starfssvæði Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri voru rannsökuð veturna 2000-2001 og 2003-2004 og fylgni milli ofþyngdar og gengis í skólanum könnuð. „Það er mikilvægt að undirstrika að hér er ekki verið að fullyrða neitt um orsakasamband, en nýjar erlendar rannsóknir benda til þess að það sé eitthvað annað en þyngd- in í aðstæðum barnanna sem veldur þessum slaka námsárangri,“ áréttar Magnús. „En þyngstu börnin sem hópur hafa lakari námsárangur en hin og þyngdin hefur áhrif á líðan þeirra líka, þeim líður ekki eins vel.“ Fyrri rannsóknin benti til þess að offita hrjáði námsárangur eldri nem- enda meira en hinna en síðari rann- sóknin sýndi að of þung börn næði lakari árangri í námi í öllum þessum þremur árgöngum. „Þó virðist þyngdarþróunin ekki eins slæm hér eins og víða annars staðar, sem er auðvitað fréttnæmt í sjálfu sér,“ segir Magnús, sem á von á því að þriðja rannsóknin verði gerð veturinn 2006-2007, en hún á að gefa enn sterkari heildarmynd af þessum málum. Feit börn eiga erfiðara með nám Rannsóknin náði til útskrifaðra nemenda úr háskólanámi með vinnu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. „Það sem okkur kom á óvart við niðurstöðurnar var hve margir upp- lifðu meiri virðingu og sjálfstraust í starfi eftir að þeir luku háskóla- menntun sinni. Þar sem háskóla- nám með vinnu fylgir álag, bæði í einkalífi og starfi, er ánægjulegt að sjá að allir álitu námið vera fórnar- innar virði. Það kom einnig á óvart hve stórt hlutfall þátttakenda naut stuðnings vinnuveitanda á meðan á náminu stóð. Af þessu má draga þá ályktun að vinnuveitendur kunni að meta að starfsmenn þeirra afli sér aukinnar menntunar. Stuðning- urinn var með ýmsu móti, allt frá því að vera hvatning og velvilji og upp í að allur námskostnaður væri greiddur,“ segja Ingibjörg Sólrún og Hrönn Veronika. „Okkur þótti spennandi að rann- saka hvort sú mikla vinna sem fylgir því að stunda nám samhliða vinnu komi til með að skila útskrifuðum háskólanemum auknum ávinningi úti á vinnumarkaði að námi loknu, ekki síst þar sem margir nemendur voru í vellaunuðum störfum þegar þeir hófu námið og höfðu víðtæka reynslu úr atvinnulífinu,“ segja þær Ingibjörg Sólrún og Hrönn Veronika aðspurðar um tildrög rannsóknar- innar. Þær segja það jafnframt merk- ilegt hve fljótt áhrifa gæti af háskólamenntuninni á laun og hve mikil hækkunin sé. Laun þeirra sem luku BSc-gráðu í viðskiptafræði hafa hækkað að meðaltali um 43 prósent frá því áður en þeir hófu námið, sem er athyglisvert í ljósi þess að 73 prósent þeirra útskrif- uðust 2005. Laun þeirra sem luku BSc-námi 2004 hafa hækkað tölu- vert meira frá því að þeir útskrifuð- ust en laun þeirra sem útskrifuðust 2005. „Þessar niðurstöður verða því að teljast jákvæðar þar sem stutt er liðið frá útskrift alls úrtaksins og því ljóst að áhrif menntunarinn- ar á laun eru rétt að byrja að skila sér,“ segja þær Ingibjörg Sólrún og Hrönn Veronika. Við rannsóknina kom jafnframt í ljós að karlar sem lokið hafa BSc-gráðu hafa að meðaltali rúm- lega 140.000 krónum hærri laun en konur með BSc-gráðu. Arðsemi menntunarinnar er þó meiri hjá konum þar sem laun þeirra hafa hækkað að meðaltali um 46 pró- sent á móti 37 prósenta hækkun hjá körlum. Hækkun launa hjá þeim sem luku diplóma-prófgráðu var einnig töluverð, um 30 prósent. Í úrtakinu voru bæði þeir sem lokið höfðu diplóma prófgráðu og þeir sem lokið höfðu BSc-prófgráðu. Heildarfjöldi einstaklinga sem fengu könnunina senda var 142. Þar af svöruðu 111 og var svarhlutfall því Námið er fórnarinnar virði Ingibjörg Sólrún Magnúsdóttir og Hrönn Veronika Runólfsdóttir, nemendur við við- skiptadeild HR, gerðu rannsókn haustið 2005 til að meta þann ávinning sem háskóla- nám með vinnu í viðskiptafræði skilar fólki úti á vinnumarkaðnum. Ingibjörg Sólrún Magnúsdóttir og Hrönn Veronika Runólfsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA • Algengast er að laun þeirra sem lokið hafa háskólanámi með vinnu séu á bilinu 300- 400.000 á mánuði. • Meðallaun þeirra sem hafa lokið BSc-gráðu eru kr. 406.240 á mánuði, en meðallaun þeirra sem hafa lokið diploma-gráðu eru kr. 380.905. • 33 prósent hækkuðu sérstaklega í launum í tilefni af útskriftinni úr háskólanámi með vinnu. • Um 45 prósent þeirra sem lokið hafa háskólanámi með vinnu gegna stjórnunarstöðum í dag. • Veruleg aukning hefur orðið á fjölda stjórnenda í hópnum eftir háskólanám með vinnu, samanborið við áður en nám hófst (25 prósenta aukning hjá körlum en 43% aukning hjá konum). Niðurstöður rannsóknarinnar Niðurstöður rannsókna sem Akureyringar hafa staðið fyrir sýna að þyngri börn eiga erfiðara með nám en önnur börn. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.