Fréttablaðið - 07.01.2006, Page 30

Fréttablaðið - 07.01.2006, Page 30
[ ]Fjölskyldubíllinn ætti bara að fá að standa óhreyfður heima í kvöld ef fólk er að fara að skemmta sér. Það er allt í lagi á svona kvöldum að splæsa í leigubíl. Ævar Örn Jósepsson, rithöfundur og útvarpsmaður, á Volkswagen Golf sem er í takt við tímans tönn. Bíllinn gengur fyrir metani en Ævar kýs frekar náttúruvernd en fína og flotta bíla þó svo að Golfinn sé ekkert slor. Ævar hefur ætíð haft náttúr- uverndarsjónarmið að leiðarljósi þegar kemur að því að velja sér einkabíl. Hingað til hefur hann nær eingöngu átt bíla í smærri kantinum og seinast átti hann lít- inn Opel Corsa enda eyða smærri bílar mun minna bensíni og menga þess vegna minna. Þrátt fyrir að hafa ekki beint verið að aka um á eðalvögnum hefur Ævar almennt mikinn áhuga á bílum. ,,Pabbi minn er bifvélavirki og margir í fjölskyldunni hafa verið að stúss- ast í kringum bíla, þannig að það má eiginlega segja að bíladella hafi verið viðloðandi mig alla tíð.“ Það var síðan í sumar sem Ævar og kona hans, Sigrún Guð- mundsdóttir, ákváðu að stækka við sig og fengu sér Volkswagen Golf station árgerð 2003 en hann hefur þá skemmtilegu sérstöðu að ganga fyrir metangasi. ,,Við feng- um tækifæri á að kaupa svona met- anbíl og tókum því fegins hendi.“ Ævar segir að bíllinn eyði um átta til tíu lítrum á hundraðinu en vélin í bílnum er tveggja lítra. ,,Ég fer 200 til 230 kílómetra á met- anfyllingunni en ef ég ætla út á land er það ekkert mál, ég keyri bara á bensíni þar sem bíllinn er með fullvaxinn bensíntank og sér alveg um það sjálfur að skipta yfir á bensínið þegar gasið klárast. Maður finnur ekki fyrir neinum mun á bensíninu og metaninu fyrir utan að það kviknar ljós á mæla- borðinu. Það er samt alveg eins að keyra metanbíl og venjulegan bíl, sami kraftur og allt það.“ Metan er eina innlenda elds- neytið fyrir bíla, framleitt á sorp- haugunum í Álfsnesi. Það er því afurð neysluþjóðfélagsins, meng- un sem losna verður við. Ævar hvetur því alla sem einn að fá sér metanbíla en segir til dæmis að ríkið og sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu styðji ekki nóg vel við slík bílakaup. ,,Mér finnist það algjörlega óskiljanlegt hvers vegna sú stefna hefur ekki verið tekin upp fyrir löngu að kaupa ein- göngu metanvagna við endurnýj- un strætóflotans. Um tvö byggðasamlög er að ræða, Sorpu og Strætó, og það liggur einhvern veginn beint við, finnst manni, að slá tvær flugur í einu höggi með metanstrætó, spara stórfé og draga umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda í leiðinni.“ Ennþá er aðeins ein metanstöð á landinu, hjá Essó á Bíldshöfða. ,,Það er mjög hagstætt fyrir okkur sem búum uppi í Mosfellsbæ og þurfum að keyra þarna fram hjá, næstum hvern einasta dag. En stöðvum hlýtur auðvitað að fjölga ef bílunum fjölgar,“ segir Ævar og er vonandi að fleiri taki þessa umhverfisvænu stefnu hans sér til fyrirmyndar. steinthor@frettabladid.is Ánægður með vistvænan metanbíl Ævar Örn Jósepsson vonast eftir að fleiri fari að keyra um á vistvænum metanbílum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Honda- og Peugeot-bílar eru á tilboði hjá umboðsaðilum um allt land. Bernhard í Vatnagörðum er með tilboðsdaga á Honda og Peugeot. Veittur verður góður afsláttur af verði eða vænlegur aukahlutapakki. Allir Peugeot-bílar eru á tilboði, þar á meðal 1007 ljónið með fjarstýrðri rennihurð sem sló í gegn í árekstrarprófi EuroNCAP. Peugeot á auknum vinsældum að fagna bæði fyrir fallega hönnun og fjölstjörnuöryggi. Einnig er öll Honda-línan á tilboði, þar á meðal CR-V borgarjeppinn og HR-V borgar- jeppinn. Einnig eru síðustu eintökin af Honda Civic og Honda Accord en innan skamms kemur ný hönnun af Civic og Accord til landsins. Tilboðsdagarnir standa yfir fram í næstu viku hjá Bernhard í Vatnagörðum og hjá umboðsaðilum um land allt. ■ Honda og Peugeot á tilboði BMW tilkynnti á dögunum framleiðslumet á Mini, þegar tvöhundruðþúsundasti bíllinn ársins 2005 rúllaði af færibandinu. Sá bíll var númer 766.290 síðan framleiðslan á nýja Mini hófst árið 2001. Mest seldi blæjubíll í Bretlandi það sem af er árs er Mini og í nóvember var salan á honum komin ellefu prósent fram úr best selda blæjubílnum 2004. Yfir 23 prósent seldra Mini- bíla í Bretlandi á þessu ári eru blæjubílar. ■ Framleiðslu- met Mini 200.000 bílar það sem af er árinu. Honda Civic. Bernhard í Vatna- görðum er með tilboðsdaga á öllum Honda- og Peugeot-bílum. Mini er mest seldi blæjubíll Bretlands. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Almennar bílaviðgerðir Njarðarbraut 15 • Reykjanesbær • S: 421 2999 • Fax: 421 2090 Netfang: nysprautun@nysprautun.is www.nysprautun.is Viðurkennt CABAS-verkstæði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.