Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 32
[ ] Opið í dag laugardag 10-18 Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Opið laugardag og sunnudag Útsala 50% Áður Nú Ullarkápur 29.900 15.000 Mokkakápur 25.900 13.500 Ullarjakkar 12.900 5.900 Úlpur 12.900 5.900 Dúnkápur 22.900 11.500 Rússkinsjakkar16.900 8.500 Pelsar 26.900 13.500 Mörg góð tilboð Flott stígvél koma sér vel við öll tækifæri. Það getur verið gott að eiga að minnsta kosti ein slík því þau má nota jafnt við pils og gallabuxur. Tinna Marína Jónsdóttir söngkona segir að hana vanti ýmislegt í fataskápinn. Hún hefur samt ekki farið á útsölurnar núna eftir jólin því hún er að spara þar sem hún er að fara til Danmerkur í söngnám. Tinna Marína fór síðast í fataleiðangur fyrir jól og þá keypti hún sér ýmislegt. „Ég keypti mér síðast tvær peysur og einar buxur í Kiss. Peysurnar voru eins nema önnur var brún og hin var hvít. Þær voru frekar síðar með stroffi á ermunum og vaffhálsmáli og ógeðslega flottar. Buxurnar voru svartar mjaðmabuxur, rosalega víðar og mjög þægilegar,“ segir hún. Tinna Marína segist líka hafa keypt sér nokkra boli í Retro fyrir jól. „Það voru bara venjulegir bolir til þess að nota við gallabuxur. Svo keypti ég mér nýja kápu um daginn og þrjú skópör frá skór.is. Kápan er beinhvít og mjög klassísk fín kápa og skórnir eru svona hversdags stígvél,“ segir hún. Tinna Marína segist ekki vera alveg nógu sátt við fataskápinn sinn eins og hann er. „Ég þarf að fara að endurnýja hann,“ segir hún. „Mig vantar eiginlega allt. Allt frá nærfötum upp í úlpur.“ Það sem er í mestu uppáhaldi hjá Tinnu Marínu af því sem hún á af fötum eru tvö pils sem hún keypti í London og jólakjóllinn hennar sem hún keypti í Coast í Smáralind. „Pilsin eru svona götusóparapils. Alveg síð og hvít á litinn í svolítið spænskum stíl. Jólakjóllinn er beinhvítur og hlýralaus og neðst á honum er svart blóm. Hann er frekar gamaldags og ótrúlega fallegur,“ segir Tinna Marína. Tinna Marína kemur ekki heim aftur frá Danmörku fyrr en í sumar og það er ekki ólíklegt að hún finni eitthvað í fataskápinn á meðan hún er þar. emilia@frettabladid.is Langar að endur- nýja fataskápinn Tískusamsteypan Tommy Hilfi- ger hefur verið seld í heilu lagi. Bandaríska tískurisaveldið Tommy Hilfiger hefur verið selt til bresks fjárfestingarfélags að nafni Apax fyrir um 1,6 milljarða Bandaríkjadala eða sem nemur um 100 milljörðum íslenskra króna. Tommy Hilfiger sjálfur mun þó áfram hafa yfirumsjón með hönnun fyrirtækisins en hann sýndi fyrst vörur undir sínu nafni árið 1984. Merkið og fyrirtækið sjálft hafa þó verið í miklum öldudal á undanförnum misserum þrátt fyrir að hafa meðal annars keypt línu Karls Lagerfeld til fyrirtæk- isins. Fyrirtækinu hefur þó gengið vel í Evrópu og í Asíu en í Banda- ríkjunum hefur uppskeran verið langt undir væntingum. ■ Tommy Hilfiger selur Tinna Marína Jónsdóttir söngkona er að fara til Danmerkur í söngnám. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Tommy Hilfiger má muna sinn fífil fegri. NORDICPHOTOS/GETTY ICETREND OUTLET Síðumúla 34 Leiðbeiningar ICETREND OUTLET Síðumúli Fe lls m úl i NÝ SENDING AF FÖTUM! Kíkið inn og sjáið nýjustu sendingu af ódýrum gæðafatnaði frá Danmörku. ICETREND OUTLET – föt á lægra verði 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Gjafakort geta komið sér vel þegar farið er á útsölurnar í janúar. Margir hafa eflaust fengið gjafa- kort frá Kringlunni, Smáralind eða miðbænum í jólagjöf. Gjafakortin geta nýst til hins ýtrasta þessa dag- ana þar sem útsölurnar eru byrjað- ar á þessum stöðum. Í báðum verslunarmiðstöðvum og í miðbænum er hægt að nota gjafakortin á útsölunum, sem kemur sér eflaust vel fyrir marga. Gott er að eiga gjafakort Það má gera góð kaup á útsölunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.