Fréttablaðið - 07.01.2006, Page 32
[ ]
Opið í dag laugardag 10-18
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Opið laugardag og sunnudag
Útsala
50%
Áður Nú
Ullarkápur 29.900 15.000
Mokkakápur 25.900 13.500
Ullarjakkar 12.900 5.900
Úlpur 12.900 5.900
Dúnkápur 22.900 11.500
Rússkinsjakkar16.900 8.500
Pelsar 26.900 13.500
Mörg góð tilboð
Flott stígvél koma sér vel við öll tækifæri. Það getur verið gott
að eiga að minnsta kosti ein slík því þau má nota jafnt við pils og
gallabuxur.
Tinna Marína Jónsdóttir söngkona
segir að hana vanti ýmislegt í
fataskápinn. Hún hefur samt ekki
farið á útsölurnar núna eftir jólin
því hún er að spara þar sem hún er
að fara til Danmerkur í söngnám.
Tinna Marína fór síðast í
fataleiðangur fyrir jól og þá keypti
hún sér ýmislegt. „Ég keypti mér
síðast tvær peysur og einar buxur
í Kiss. Peysurnar voru eins nema
önnur var brún og hin var hvít.
Þær voru frekar síðar með stroffi
á ermunum og vaffhálsmáli og
ógeðslega flottar. Buxurnar voru
svartar mjaðmabuxur, rosalega
víðar og mjög þægilegar,“ segir
hún. Tinna Marína segist líka hafa
keypt sér nokkra boli í Retro fyrir
jól. „Það voru bara venjulegir bolir
til þess að nota við gallabuxur. Svo
keypti ég mér nýja kápu um daginn
og þrjú skópör frá skór.is. Kápan er
beinhvít og mjög klassísk fín kápa
og skórnir eru svona hversdags
stígvél,“ segir hún.
Tinna Marína segist ekki
vera alveg nógu sátt við
fataskápinn sinn eins og
hann er. „Ég þarf að fara að
endurnýja hann,“ segir hún.
„Mig vantar eiginlega allt. Allt
frá nærfötum upp í úlpur.“
Það sem er í mestu uppáhaldi
hjá Tinnu Marínu af því sem hún
á af fötum eru tvö pils sem hún
keypti í London og jólakjóllinn
hennar sem hún keypti í Coast
í Smáralind. „Pilsin eru svona
götusóparapils. Alveg síð og
hvít á litinn í svolítið spænskum
stíl. Jólakjóllinn er beinhvítur
og hlýralaus og neðst á honum
er svart blóm. Hann er frekar
gamaldags og ótrúlega fallegur,“
segir Tinna Marína.
Tinna Marína kemur ekki
heim aftur frá Danmörku fyrr en
í sumar og það er ekki ólíklegt að
hún finni eitthvað í fataskápinn á
meðan hún er þar.
emilia@frettabladid.is
Langar að endur-
nýja fataskápinn
Tískusamsteypan Tommy Hilfi-
ger hefur verið seld í heilu lagi.
Bandaríska tískurisaveldið
Tommy Hilfiger hefur verið selt
til bresks fjárfestingarfélags að
nafni Apax fyrir um 1,6 milljarða
Bandaríkjadala eða sem nemur
um 100 milljörðum íslenskra
króna. Tommy Hilfiger sjálfur
mun þó áfram hafa yfirumsjón
með hönnun fyrirtækisins en hann
sýndi fyrst vörur undir sínu nafni
árið 1984.
Merkið og fyrirtækið sjálft
hafa þó verið í miklum öldudal
á undanförnum misserum þrátt
fyrir að hafa meðal annars keypt
línu Karls Lagerfeld til fyrirtæk-
isins. Fyrirtækinu hefur þó gengið
vel í Evrópu og í Asíu en í Banda-
ríkjunum hefur uppskeran verið
langt undir væntingum. ■
Tommy
Hilfiger selur
Tinna Marína Jónsdóttir söngkona er að fara til Danmerkur í söngnám. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tommy Hilfiger má muna sinn fífil fegri.
NORDICPHOTOS/GETTY
ICETREND OUTLET
Síðumúla 34
Leiðbeiningar
ICETREND
OUTLET
Síðumúli
Fe
lls
m
úl
i
NÝ SENDING
AF FÖTUM!
Kíkið inn og sjáið
nýjustu sendingu af ódýrum
gæðafatnaði frá Danmörku.
ICETREND OUTLET –
föt á lægra verði
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Gjafakort geta komið sér vel
þegar farið er á útsölurnar í
janúar.
Margir hafa eflaust fengið gjafa-
kort frá Kringlunni, Smáralind eða
miðbænum í jólagjöf. Gjafakortin
geta nýst til hins ýtrasta þessa dag-
ana þar sem útsölurnar eru byrjað-
ar á þessum stöðum.
Í báðum verslunarmiðstöðvum
og í miðbænum er hægt að nota
gjafakortin á útsölunum, sem
kemur sér eflaust vel fyrir marga.
Gott er að eiga
gjafakort
Það má gera góð kaup á útsölunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI