Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 42

Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 42
6 ■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastýra segir mikið lagt upp úr því að allir kennarar við skólann séu starfandi myndlistarmenn og hönnuðir. Síðasta haust kenndu Ragn- ar Kjartansson, Trabantlimur og myndlistarmaður, og fjöllistakon- an Ásdís Sif Gunnarsdóttir í fyrsta sinn námskeiðið „Myndlist rokkar“ við rífandi lukku að sögn Ingi- bjargar. „Við sýnum nemendum hvernig ýmis tónlist á rætur sínar í myndlist og skoðum þessi tengsl,“ segir hún. „Í haust unnu nemend- urnir svo myndverk þar sem þeir léku sér með ímynd rokksins og framkvæmdu líka gjörninga, tróðu upp og gerðu stuttmyndir.“ Skólinn heldur líka námskeið ætluð þriggja til fimm ára göml- um börnum þar sem þau eru látin skoða umhverfi sitt, teikna og vinna þrívítt á ýmsan hátt. „Börn á þessum aldri eru svo upptekin af efninu í kringum sig. Þau eru laus við fordóma og afar móttækileg fyrir öllum nýjungum. Það getur ótrúlega mikið gerst hjá þeim á stuttum tíma á þessum námskeið- um,“ segir Ingibjörg. Af öðrum námskeiðum má nefna íkonagerð og myndvinnslu fyrir fullorðna, leirrennslu og hreyfimyndagerð fyrir krakka og myndasögunámskeið fyrir ungl- inga. Öll verða þessi námskeið í Myndlist rokkar Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á fjölda námskeiða sem eru opin öllum, bæði þeim sem vilja sækja stök námskeið í frístundum og þeim sem hyggja á frekara listnám. Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastýra segir alla kennara við skólann vera starfandi listamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Hjörtur Howser með besta vini mannsins, að hljóðfærunum undanskildum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Hjörtur Howser, hljómborðsleikari og kennari á námskeiðunum, segir tónlistardeildinni hafa vaxið fiskur um hrygg frá því að farið var af stað með hana. Fyrst hafi eingöngu verið um gítar- og píanónám að ræða en nú megi þar finna fleiri tónlistar- námskeið en nöfnum tjáir að nefna. „Eftir að við byrjuðum með gítar- inn og píanóið var ákveðið að gera tilraun og athuga hvort það væri áhugi fyrir fleiru. Það bara varð allt vitlaust!“ segir Hjörtur. „Þeir sem stjórna námsflokkunum eru alveg ótrúlegir. Þeim vex ekkert í augum og eru til í allt.“ Auk gítars og píanós eru til dæmis í boði námskeið í bongót- rommu-, fiðlu-, saxófón-, trommu-, harmonikku- og bassaleik, söng og textasmíðum. „Ástæða þess að við höfum eflt þetta svona mikið er biðlistarnir. Krakkar þurfa jafnvel að bíða í þrjú ár eftir að komast að í tónlistarskól- um. Þarna fá þeir námskeið sem við- halda áhuganum, auk þess sem for- eldrar nýta sér þau oft til að kanna áhuga barnanna.“ Námskeiðin eru flest einung- is átta klukkustundir að lengd í heildina en Hjörtur segir þann tíma skila ótrúlegum árangri. „Fólk sem hefur aldrei snert hljómborð áður fer frá mér eftir átta skipti og spil- ar útskriftarlagið, sem er fyrsti þáttur fjórða kafla níundu sinfóníu Beethovens, með báðum höndum eftir nótum. Þetta er mikið stykki, kannski ekki erfitt að spila fyrir þá sem kunna eitthvað fyrir sér en er himinhár fjallgarður fyrir algjöra byrjendur,“ segir Hjörtur, sem hefur þegar ýtt framtíðarvirtúósum úr vör. „Ég get talið svona fjóra, fimm nemendur sem hafa lært hjá mér á þessum námskeiðum og eiga eftir að verða tónlistarmenn í fullu starfi. Þetta er fólk sem hafði aldrei snert hljómborð fyrir námskeiðið.“ Námsflokkarnir taka jafnt við börnum sem fullorðnum og einnig er boðið upp á hljómborðsnám fyrir sextuga og eldri. „Helmingur þeirra sem koma til mín er fullorðið fólk. Ég kenndi einni sjötugri sem fór á kostum. Ég þurfti að búa til nýtt framhaldsnámskeið sérstaklega fyrir hana. Svona fólk á ekki nokkurn möguleika á að komast í venjulega tónlistarskóla.“ Hjörtur segir að vel sé tekið í nýjar hugmyndir um námskeið og fólk ætti ekki að hika við að koma með uppástungur, því oft sé orðið við beiðnunum - þótt skrýtnar geti verið. „Það kom mér á óvart hvað þetta virkaði vel. Það er svo gaman að taka þátt í einhverju sem steinligg- ur. Námskeiðunum mun bara fjölga á næstunni og vonandi lendum við í húsnæðisvandamálum og öllu því sem fylgir svona örum vexti. Okkar markmið og stefna er að eftir örfá ár verði í það minnsta annar hver Hafnfirðingur orðinn rútubílafær á hljóðfæri.“ Annar hver Hafnfirðingur rútubílafær á hljóðfæri Námsflokkar Hafnarfjarðar hófu að kenna tónlistarnám- skeið í bland við önnur hefðbundnari fyrir fjórum árum. Skapandi nemendur á námskeiði. Fréttablaðið/Heiða Köfun í Leiru Í Sportköfunarskóla Íslands geta byrjendur sótt köfunarnámskeið og jafnfvel átt von á ævintýraferðum ef vel gengur. Skólinn býður upp á PADI köfunarnámskeið sem eru virt og þekkt og veita öll réttindi til sportköfunar og leigu á köfunarbúnaði um allan heim. Þegar lengra er komið geta nemendur farið í ævintýralegar kafan- ir, til dæmis í hina margfrægu Silfru á Þingvöllum, næturköfun í Leiru eða djúpköfun á Faxaflóa. Nánari upplýsingar fást á dive.is. ENSKA ER OKKAR MÁL Hringdu í síma 588 0303 • FAXAFENI 8 • www.enskuskolinn.is ENSKUNÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST Okkar vinsælu talnámskeið, auka orðaforði og sjálfstraust • Talnámskeið 5 og 10 vikur • Viðskiptanámskeið • Málfræði og skrift • Enskar smásögur HRINGDU OG SKRÁÐU ÞIG Í VIÐTAL Í DAG • Námskeið fyrir 10. bekk • Málaskólar í Englandi • Ævintýranámskeið fyrir börn 5 til 12 ára
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.