Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 6
6 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR KJÖRKASSINN Ferðu á útsölur eftir jólin? Já 40% Nei 60% SPURNING DAGSINS Í DAG Á að ráðast í gerð Norðlinga- ölduveitu? Svaraðu spurningunni á vísi.is HEILBRIGÐISMÁL Þverfagleg nefnd, með Landlæknisembættið í fararbroddi, starfar nú að því að miðla betri upplýsingum til barna og unglinga um þá hættu sem stafar af afbrigðilegu kynlífi, svo sem endaþarmsmökum. Í nefndinni sitja meðal annars fulltrúar frá Heimili og skóla, Barnaheillum, prestum, skólakerfinu, umboðsmanni barna, læknanemum í HÍ og Barnaverndarstofu. „Markmiðið með starfi hópsins er að börn og ungmenni fái betri upplýsingar, og það fyrr en áður,“ segir Salbjörg Bjarnadóttir, for- varnafulltrúi hjá Landlæknisemb- ættinu. „Jafnframt að það sé talað við þau þannig að þau geri sér grein fyrir hættunni sem hlotist getur af endaþarmsmökum. Við viljum vekja foreldra til umhugsunar og eins huga að því hvernig byrjað sé að ræða kynfræðslu við krakka. Við erum að ræða þetta mjög ítar- lega og stefnum á að hafa mál- stofu um klámvæðingu. Við höfum verulegar áhyggjur af munnmök- um og endaþarmsmökum, ekki síst þegar krakkarnir lýsa því áliti sínu að hin fyrrnefndu séu ekki kynmök, heldur bara greiði sem maður gerir öðrum, til að mynda inni á salerni.“ Salbjörg segir að ekki sé um stóran hóp unglinga að ræða sem lendi í þessu. Hins vegar geti þeir farið mjög illa út úr endaþarms- mökum, bæði stúlkur og drengir, því þau geti orsakað lömun, þannig að fólk eigi erfitt með hægðir og geti jafnvel endað með bleiu. Æfa verði hringvöðvana upp á nýtt sem sé heilmikið mál. Þess vegna sé svo mikilvægt að unglingar fái réttar upplýsingar en ekki einungis hræðsluáróður. Einnig að þeir viti að þeir geti spurt foreldra og kennara og rætt málin. „Það hefur komið fram í viðtölum við unglinga í framhaldsskólum, að þetta afbrigðilega kynlíf sé meira hjá óhörðnuðum unglingum sem viti ekki betur, en taki þátt í einhverju sem eldri krakkar fái þá til að gera. Þess vegna finnst okkur svo mikilvægt að 12 til 13 ára krakkar fái góða fræðslu.“ Salbjörg bendir á að ungling- ar geti haft aðgang að endalausu ofbeldis- og kynlífsefni í sjónvarp- inu og á netinu. Þess vegna sé afar áríðandi að þau fái rétta mynd af hlutunum strax í grunnskóla. „Þeir sem byrja snemma að stunda kynlíf fara oft illa út úr því. Þeim fer að ganga illa í skólanum, hann fer að skipta minna máli, vinkon- urnar eða vinirnir skipta ekki lengur máli og af þessu getur leitt þunglyndi og kvíði. Stúlkur á aldrinum 17 til 23 ára hafa lent í því að detta út úr öllu, því þær hafa byrjað svo snemma „að lifa lífinu“ og því fylgja miklar vökur, áfengi, fíkniefni og fleira óæskilegt, sem þau leiðast út í vegna innri óróleika. Þessi kvíði gagnvart því að vilja að öllum líki við sig og geta ekki sagt stopp, brýtur niður sjálfsmyndina. Þetta litar alla veruna inn í fullorð- insárin. Þessi atriði, og fleiri, tökum við inn í vinnuna í nefndinni, sem á viðamikið starf fyrir höndum.“ jss@frettabladid.is SALBJÖRG BJARNA- DÓTTIR Segir unglinga sem byrja snemma að stunda kynlíf oft fara illa út úr því. UNGLINGAR Þverfaglegur starfshópur Landlæknisembættisins vill bæta kynlífsfræðslu unglinga og ungmenna til að koma í veg fyrir afbrigðilega kynlífshegðun, sem er sögð meiri hjá óhörðnuðum unglingum en þeim sem eldri eru. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Þurfa bleiur eftir endaþarmsmök Þverfagleg nefnd, með Landlæknisembættið í broddi fylkingar vinnur nú að áætlun til að sporna við afbrigðilegu kynlífi unglinga. Nefndin vill koma á meiri fræðslu með tilstuðlan skóla og foreldra. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI BRETLAND Tveir þingmenn frjálslyndra demókrata hóta að segja af sér embætti stígi Charles Kennedy, leiðtogi þeirra, ekki úr stóli sínum. Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra demókrata, virðist hafa glatað trausti lykilmanna í þingflokki sínum en ellefu þeirra hafa skrifað undir ályktun þar sem skorað er á hann að segja af sér. Í gær hótuðu þeir Andrew George og Norman Lamb, talsmenn flokksins í þróunar- og viðskiptamálum, að segja af sér þingmennsku tæki Kennedy ekki poka sinn þegar í stað. Kennedy nýtur talsverðrar hylli meðal almennings en hans eigin flokksmenn hafa lengi haft horn í síðu hans. Drykkjuvandamál leiðtogans er á allra vitorði enda hefur hann ítrekað misst af mikilvægum umræðum í þinginu. Í fyrradag viðurkenndi hann að hafa farið í áfengismeðferð fyrir tveimur mánuðum og sagðist hann tilbúinn að mæta hverjum sem væri í leiðtogakjöri. Í gær sagðist hann hafa fundið fyrir miklum stuðningi eftir játningu sína. Vince Gable, sá sem hafði forgöngu um áskorun ellefu- menningana, sagði í viðtali við BBC í gær að kæmi til leiðtogaslags þar sem Kennedy væri á meðal þátttakenda myndi flokkurinn klofna. Því væri mikilvægt að Kennedy hætti sjálfviljugur. Enn hefur enginn lýst yfir framboði en Sir Menzies Campell, hægri hönd Kennedys, segist ekki munu bjóða sig fram gegn honum. - shg Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra demókrata, berst fyrir pólitísku lífi sínu: Tveir þingmenn hóta afsögn BARÁTTUJAXL Charles Kennedy kvaðst í gær snortinn yfir stuðningn- um sem honum hefði verið sýndur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hassfundur í Eyjum: Rannsókn miðar vel LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum á fíkniefnamálinu sem kom þar upp á gamlársdag miðar vel. Lögreglan gerði nokkrar húsrannsóknir í gær og fyrradag og lagði hald á eitt gramm af hassi en áður hafði fundist hass, amfetamín, kókaín og e-töflur. Tugir manna hafa verið yfirheyrðir. Einn maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á laugardag. ■ STJÓRNMÁL Endurskoðun á skipan ráðuneyta og verkaskiptingu þeirra er á byrjunarreit þrátt fyrir tilmæli Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra til ráðherra í ágúst í fyrra um að slíkri endurskoðun skyldi hraða eftir föngum. Í minnisblaði forsætisráðherra til ráðherra sinna þann 12. ágúst í fyrra er gert ráð fyrir að endurskoðunin verði undir forystu forsætisráðuneytisins en Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Árni Magnússon félagsmálaráðherra leiði starfið af hálfu ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa ráðherrarnir tveir ekki enn haldið fund um málið og skipulagt endurskoðunarstarfið. Í minnisblaði forsætisráðherra segir að skipan ráðuneyta hafi að mestu verið óbreytt frá árinu 1969 ef undan sé skilin stofnun umhverfisráðuneytisins. „Lagt er til að aðaláhersla verði lögð á endurskoðun á skipan ráðuneyta og verkaskiptingu milli þeirra... Stefnt verði að því að hraða endurskoðuninni eftir föngum,“ segir í minnisblaðinu. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók málið upp í áramótagrein í Morgunblaðinu og kvaðst vilja binda fjölda ráðherra við níu til tíu. - jh Endurskoðun um skipan ráðuneyta er enn á byrjunarreit: Enginn fundur verið haldinn ÁRNI MAGNÚSSON, FÉLAGSMÁLARÁÐ- HERRA BJÖRN BJARNASON, DÓMSMÁLARÁÐ- HERRA STJÓRNMÁL Sigbjörn Gunnars- son, fyrrverandi sveitarstjóri Skútustaðahrepps og þingmaður Alþýðuflokksins, hefur gengið til liðs við Sjálfstæð- isflokkinn á Akur- eyri. „Ég ætla að gefa kost á mér í prófkjöri flokksins á Akureyri vegna komandi sveitar- stjórnarkosninga og mun tilkynna í næstu viku á hvaða sæti ég stefni.“ Prófkjör flokks- ins fer fram 11. febrúar næstkom- andi og stefnir í töluverða endur- nýjun. Hvorki Þóra Ákadóttir, for- seti bæjarstjórnar, né Þórarinn B. Jónsson, sem skipað hafa efstu sæti flokksins undanfarin ár gefa ekki kost á sér í þau sæti í þetta sinn. Oktavía Jóhannesdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Sam- fylkingarinnar sem tilkynnti í árslok að hún væri gengin í Sjálfstæðisflokkinn hefur ekki ákveðið hvort hún taki þátt í prófkjörinu. kk SIGBJÖRN GUNN- ARSSON Sat á þingi kjörtímabil- ið ´91 til ´95 og var sveitarstjóri Skútustaða- hrepps frá ´97 til ársloka í fyrra. Bæjarpólitíkin á Akureyri: Sigbjörn í Sjálf- stæðisflokkinn BANDARÍKIN Eini verkamaðurinn sem lifði af sprenginguna sem varð í kolanámu í Vestur-Virginíu fyrr í vikunni er enn í dái og hugsanlegt er að hann hafi hlotið heilaskaða. Randal McCloy yngri var yngstur þeirra þrettán sem festust inni í Sago-kolanámunni en tæpir tveir sólarhringar liðu áður en björgunarmenn komust til þeirra. Vegna misskilnings var fjölskyldum þeirra fyrst greint frá því að aðeins einn hefði látist og tólf bjargast en síðar kom í ljós að því var öfugt farið. Talið er víst að ellefu mannana hafi látist af völdum eitraðra lofttegunda í námunni en einn hafi dáið í sprengingunni sjálfri. ■ Bandarískur kolanámumaður: Ennþá í dauða- dái eftir slysið LÁTINNA MINNST Krossar með hjálmum nokkurra námaverkamannanna hafa verið reistir í bænum Philippi, nærri Sago-nám- unni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP OFURLAUN Þorbjörn Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir að samþykkt eftirlauna- frumvarpsins fyrir nokkrum árum hafi verið dapurlegt mál því að þar hafi alþingismenn sinnt sínum sérhagsmunum. Það hafi verið siðlaust af hálfu Alþingis. Starfslokasamningana hjá FL Group telur Þorbjörn að ekki sé hægt að bera saman við eftirlaun- in. Starfslokasamningarnir séu fyrst og fremst græðgi. Ef hlut- hafarnir séu tilbúnir til að haga sér með þessum hætti sé ekkert við því að gera en það jaðri samt við siðleysi. - ghs Framkvæmdastjóri Samiðnar: Siðleysi á þingi − græðgi hjá FL LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhalds- úrskurður var kveðinn upp yfir tveimur einstaklingum sem hand- teknir voru í fyrrakvöld af lög- reglunni á Ísafirði eftir að nokk- urt magn fíkniefna fannst við húsleit. Var húsleitin liður í sérstakri rannsókn lögreglunnar á fíkni- efnadreifingu í fjórðungnum og munu einstaklingarnir verða áfram í haldi meðan rannsókn stendur yfir. - aöe Fíkniefnamál á Ísafirði Tveir í gæslu- varðhald
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.