Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 7.
janúar 2006
Gunnar Þorsteinsson, formaður Fyrsta
flugs félagsins, verður fararstjóri í
ferðinni, sem taka mun þrjá daga.
Autosport-sýningin er haldin í stærstu
sýningarhöll Bretlands og þar verður
nóg að sjá fyrir bílaáhugamenn. Meðal
annars 66 bíla sem metnir eru á um
100 milljarða króna.
Meðan á ferðinni stendur fer hópur-
inn líka í skoðunarferð í höfuðstöðvar
Williams F1-kappakstursliðsins. Gunnar
segir það ekki síður spennandi en bíl-
asýningin því mjög erfitt sé að komast
inn í helgustu vé liðanna í Formúlu 1.
Formúlu 1 kappakstursbílar leika
aðalhlutverk á sýningunni en enn
fremur verða stór svæði með rallíbílum,
dýrustu sportbílum, gömlum bílum og
heimasmíðuðum bílum. Gunnar segir
sýninguna þekkta fyrir líf og fjör, af nógu
sé að taka fyrir áhugamenn um bíla og
allt sem þeim tengist.
Nánari upplýsingar um ferðina er að
finna á heimasíðu Iceland Express og
hjá Fyrsta flugs félaginu í símum 561
6112 og 663 5800.
Hópferð á keppnisbílasýningu
AUTOSPORT INTERNATIONAL 2006, STÆRSTA KEPPNISBÍLASÝNING HEIMS,
VERÐUR HALDIN Í BIRMINGHAM AÐRA VIKUNA Í JANÚAR. FYRSTA FLUGS FÉLAGIÐ
HEFUR SKIPULAGT HÓPFERÐ Á SÝNINGUNA Í SAMSTARFI VIÐ ICELAND EXPRESS.
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
VOLKSWAGEN HEFUR ENDUR-
HEIMT FORYSTUSÆTIÐ Í EVRÓPU EF
MIÐAÐ ER VIÐ FJÖLDA NÝSKRÁÐRA
ÖKUTÆKJA.
Alls voru skráðir 1,416 milljón
Volkswagen-bílar í Evrópu frá janúar
til nóvember 2005 á EES-svæðinu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá
umboðsaðila Volkswagen hér á landi,
Heklu. Markaðshlutdeild Volkswagen
var 11,1 prósent í nóvember, rúmum 1,7
prósentustigum meira en næsta merki.
Volkswagen Golf er langvinsælasta
tegundin í Evrópu. Frá janúar til loka
október voru nýskráningar á Golf
um 500 þúsund. Kynningin á Golf
Plus hefur átt mikinn þátt í þessari
þróun. Aðrar gerðir sem voru kynntar
til sögunnar árið 2005 náðu fljótt
fótfestu á markaðnum.
Ásamt Golf Plus kynnti Volkswagen
einnig nýjan Polo, nýjan Fox, nýjan
Passat glæsivagn, nýja Jettu, nýja
Bjöllu og nýja Bjöllu með blæju, nýjan
Passat skutbíl og Golf R32. Að auki
kynnti Volkswagen nýja Eos-bílinn á
alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt
og EcoRacer á sýningunni í Tókýó.
Volkswagen er
vinsælastur bíla
Santa Fe HM 2006
viðhafnarútgáfa Hyundai
verður til sýnis í B&L um
helgina ásamt nýrri Artic Truck
útgáfu af jeppanum Terracan.
Um helgina verður B&L með
sýningu á Santa Fe HM útgáfunni
frá Hyundai ásamt nýrri Arctic
Truck-útgáfu af Terracan-
jeppanum. Santa Fe HM 2006 vísar
beint til heimsmeistaramótsins
í knattspyrnu sem fram fer í
Þýskalandi í sumar. Um sérstaka
viðhafnarútgáfu er að ræða sem
aðeins verður í boði í takmarkaðan
tíma.
Hyundai er einn aðalstyrktaraðili
FIFA og var því ákveðið að
tileinka heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu sérstaka útgáfu af
Santa Fe. Heiðar J. Sveinsson,
forstöðumaður sölusviðs B&L, segir
þetta best búnu útgáfuna af Santa
Fe. Í viðhafnarútgáfunni eru meðal
annars álfelgur, heilsársdekk,
vindskeið, skriðstillir og samlitun.
Verðmæti viðbótarbúnaðarins er
talið nema tæpum 320 þúsundum.
Á sýningunni um helgina
verður einnig Terracan-jeppinn frá
Hyundai í nýrri 35“ Arctic Trucks
útgáfu ásamt allri Hyundai-línunni.
Þegar nær dregur vori mun B&L
kynna nýja Arctic Trucks línu fyrir
Terracan og verða þar á meðal 32“,
33“ og 35“ breytingapakkar.
Sýning á Santa Fe
HM 2006 í B&L
Santa Fe HM 2006, viðhafnar-
útgáfa Hyundai í tilefni af HM
í knattspyrnu, verður til sýnis
hjá B&L um helgina.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI