Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 70
 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR70 SKÚFFUSKÁLDIÐ } ÁSGEIR HANNES EIRÍKSSON Hvert stjörnumerki er táknrænt fyrir ákveðið þroskaskeið. Stjörnumerki Íslands er tvíburinn sem táknar unglingsskeiðið, þegar við erum að losa okkur úr faðmi foreldranna og hefjum leit okkar að eigin sjálfsmynd.“ Þannig hefur Bjarndís Arnardóttir stjörnu- sálfræðingur ræðu sína um leið og hún rýnir í stjörnukort íslensku þjóðarinnar. „Þótt tvíburinn sé sveigjanlegt og þjóðfélagslega sinnað merki býr það yfir mjög sterkri sjálfstæðiskennd sem á erfitt með að hlýða utanaðkomandi reglum og tekur eigin ákvarðanir sem stundum eru á skjön við stefnu og álit annara þjóða. En við Íslendingar erum sem sagt dæmigerðir tvíburar; léttlynd og hress en erum ekkert of upptekin af því sem er undir yfirborðinu enda látum við hugsun og skynsemi ráða yfir tilfinningunum. Við elskum bækur og fjörugar rökræður og þjótum á hraða ljóssins milli reynslusviða útúr- tjúnuð og tætt. Við erum slök í að hugsa um gamla fólkið og kunnum illa að meta þá reynslu og þroska sem aldraðir búa yfir enda erum við sárþjáð af æskudýrkun því sem tvíburar erum við hálfgerðir unglingar og þeir hafa engan áhuga á öldungunum.“ Glíma við minnimáttarkenndina En svo virðist sem þessi kok- hrausti unglingur, sem íslenska þjóðin er, fái að finna til tevatns- ins á þessu ári. „Ein áberandi staða í kortinu sem við Íslendingar erum reynd- ar að vinna úr á árinu er hin landlæga minnimáttarkennd. Við munum þurfa að kenna á því að ástin kemur ekki sjálfkrafa held- ur þurfum við að vinna hörðum höndum fyrir henni. Sú afstaða sem er í stjörnukorti Íslands er ein erfiðasta afstaðan í stjörnu- spekinni því henni fylgir lágt sjálfsmat og mikil ónotatilfinning með sjálfan sig, útlitið og ástina. Þessu fylgir svo sú tilfinning að maður eigi ekkert skilið nema að vinna fyrir því hörðum höndum.“ Tilfinningar í tísku En ekki fer það þó svo að við Íslend- ingar verðum barðir af örlögunum til stífni. Þess í stað virðist tími til kominn á þessu ári að slaka á og mýkjast. „Á árinu munu viðhorf til vinnu, ástar og fegurðar breyt- ast. Við erum svo vitsmunaleg og stíf í þessum efnum að það hálfa væri nóg. En á árinu komum við til með að slappa af og leyfa til- finningunum að gægjast út. Við höfum séð þetta í uppsiglingu í raunveruleikaþáttunum þar sem ákveðnu tilfinningalegu ferli er komið af stað; ekki síst í Íslenska bachelornum sem sumir segja að hæfi okkur ekki. Þótt við verðum aldrei afslöppuð í sambandi við vinnu förum við að slaka á í þeim efnum og lærum þess meir að elska og meta fólk fyrir það sem það er en ekki fyrir það sem það afrekar.“ Viljum karla í æðstu stöður Þeir sem vinna að jafnrétti kynjanna kunna að verða fyrir nokkrum vonbrigðum með þróun mála á þessu ári. „Þau viðhorf að fjölga beri konum í æðstu stjórnunarstöðum munu mildast á árinu,“ segir Bjarndís. „Hvort sem okkur líkar betur eða verr vilja Íslendingar karla í æðstu stjórnunarstöður þótt við berjumst á móti því. Þetta er ein- faldlega innbyggt í stjörnukortið og þar með þjóðarsálina. Jafn- rétti kemur því ekki eðlilega og áreynslulaust heldur þarf að gera meðvitað átak í þeim efnum. Okkur hættir einfaldlega ósjálfrátt til að líta meira upp til karla en kvenna.“ Hreinsun í stjórnmálum og mál- vernd fær á baukinn Það þarf að taka til í þjóðarsálar- tetrinu eins og annars staðar. Þeir sem kunna slíkum hrein- gerningum illa er vorkunn því það virðist vera tiltektarátak í gangi. „Plútó, pláneta hreinsunar og umbreytinga, hefur verið sterk í stjörnukortinu fyrir Ísland og hafa Íslendingar fengið að kenna á því þessa síðustu og stormasömu tíma. Með jarðskjálftanum á Suðurlandi þann 17. júní árið 2000 hófst eitt mesta sálræna hreinsunarskeið Íslandssögunnar og mun það vara til ársins 2010. Sterkar líkur eru á því að öll helstu eldfjöll landsins láti í sér heyra fljótlega á þessu ári en það er mjög táknrænt fyrir þessa orku. En jafnframt því sem sori verður grafinn upp og stungið á kýli mun Plútó færa kraft og vilja til að gera drauma að veruleika og jafnframt munu nokkrir fjársjóðir og hæfileikar koma í ljós í þessum uppgreftri. Stjórnsýslan, ríkisstjórnin og leiðtogar landsins munu ekki sleppa við hreinsunareldinn því uppstokkun og endurnýjun eru á næsta leiti. Einnig mun hrikta í gömlum stoðum þar sem við munum endurskoða gömul gildi sem áður voru í hávegum höfð en hamla nú þroska okkar sem þjóðar. Landbúnaðurinn mun gjalda fyrir þetta og íslenska tungumálið sem verið hefur í hálfgerðu glerbúri. Þessi rétttrúnaðarstefna í mál- verndinni sem leggur meiri áherslu á málfar barna en líðan þeirra fær ærlega á baukinn á þessu ári. Einnig munu mörkin milli óhefðbundinna og hefðbundinna lækninga verða gloppóttari á þessu ári,“ segir Bjarndís dularfull á svip og rúllar kortunum upp. ■ Jafnrétti og gömlu gildin fá á baukinn Ýmsar gerðir af skúffuskáldum fyrirfinnast hér á landi. Sá sem nú opnar hirslur sínar fyrir lesendur Fréttablaðsins hefur skammað þingheim í bundnu máli og stært sig af langa-langafa sínum með sama hætti. En þegar skáldagyðjan hrelldi hann sem mest tók hann sig til og þýddi heimsbókmenntir af stakri lipurð. Þetta er fyrrverandi þingmaðurinn og athafnamaðurinn Ásgeir Hannes Eiríksson. „Ég hef svo sem ekkert verið að yrkja,“ segir skúffuskáldið eins og þeirra er háttur í fyrstu. En þegar betur er að gáð kemur annað í ljós. „Jú, ég kastaði saman ein- hverju þegar ég sat í fjárlaganefnd Alþingis en þá vildu þingforsetar kaupa Hótel Borg undir skrifstof- ur þingmanna og mötuneyti. Ég var á móti þeirri ráðstöfun og las yfir mönnum í næstu þingveislu í bundnu máli líkt og lög gera ráð fyrir á þeim mannamótum. Þenn- an brag kallaði ég Að kaupa ekki Hótel Borg. Hann hljóðar svona: Þótt forsetar telji þröngt á þingi og þrotin bæði hús og torg. Þá sæmir það ekki Íslendingi að eyðileggja Hótel Borg. Heim kom úr víkingi vígamaður, sem víðförull barði menn og tröll. Sinn höfuðstól lagði í hótel glað- ur, hér handan við sjálfan Austur- völl. Minning hans lifir þó mannfólkið hverfi, meitluð í grjót og hlaðin í stein. Og víst er að miðborgin ævilangt erfi ef Alþingi vinnur húsinu mein. Fyrir iðandi mannlíf er miðbær- inn gerður, máltíð fólk velur og áningarstað. Ef ekkert hótel á vegi þess verð- ur, það víkur af leið og skundar um hlað. Sem betur fer varð ekkert af sölu Hótel Borgar undir skrifstof- ur en hvort það sé þessum brag að þakka læt ég ósagt látið,“ segir Ásgeir Hannes og hlær. Líkt og skáldmæltum þingmanni rennur blóðið til skyldunnar að berjast með stílvopninu þegar mikilvæg mál ber á góma getur skúffuskáldið heldur ekki brugðist þegar hróður langa-langafa liggur við. „Í þessari sömu þingveislu vildi svo til að Guðrún vinkona mín Helgadóttir, þá þingforseti, sagði frá merkilegu atviki og kom langa-langafi minn þar við sögu. Hann hét Jörgen Pjetur Havstein og var amtmaður fyrir Norður- og Austurland en bjó á Möðruvöllum í Hörgárdal. Fjárkláði herjaði á landið á miðri nítjándu öld og skiptust landsmenn í tvær fylkingar. Önnur fylkingin vildi lækna kláðann og var Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri fyrir þeim hópi en Jörgen Pjetur fór fyrir þeim sem vildu skera sýkta féð. Þeir deildu svo um fjárkláðann í þingveislu og amtmaðurinn sat þar í fullum skrúða með korðann við belti. Í hita leiksins brá karlinn sverðinu og lagði til Jóns forseta en síðan hafa sverð verið bönnuð í þingveislum og er það engin furða. Guðrún hafði áhyggjur af því að mér hefði þótt miður að sitja undir þessari sögu af langa-langafa en það var síður en svo og í þingveislu ári seinna afhjúpaði ég málverk af amtmanni sem Guðmundur Björgvinsson hafði málað. Við það tækifæri lét ég líka þennan leirkennda kveðskap fylgja: Í fyrra í þingveislu forseti sagði af fangbrögðum þingmanna á lið- inni öld. Þar sverðinu Pjetur minn langafi lagði lárétt á Hrafnseyrar sverð, sóma og skjöld. Eftir þann atgang þeir aftóku sverðin svo enginn ber vopn hér á forseta í kvöld.“ En skáldagáfa skúffuskáldsins hefur nýst því til annara hluta en að slá um sig á þingveislum. „Þegar ég var stráklingur sóttum við félagarnir í hverfinu allar fimmbíómyndir í Hafnarbíói og meðal þeirra voru svokallaðar hryllingsmyndir byggðar á ljóðum bandaríska stórskáldsins Edgar Allan Poe. Ég hafði sérstakt dálæti á meistaraverki Poe um Hrafninn og reyndi að læra ljóðið utanbókar en gleymdi jafnóðum. Mörgum áratugum seinna datt mér í hug að stela, stæla og staðfæra Krumma í íslensku umhverfi nútímans á þrettándadagskvöldi í Þingholtunum. Ég kalla þessa útgáfu mína á Hrafninum hans Poe Krumminn á skjánum. Þetta á vel við núna þegar þrettándinn er nýafstaðinn: Þungstígur í Þingholtunum, þögull grét í mínum sorgum, þrekið var í þúsund molum, á þrettándanum gat ei meir! Óli lokbrá senn mig sótti, í svefnrofanum sló mig ótti, er létt þá einhver drap á dyr, svo drepið var sem aldrei fyrr: Ég reis á fætur, hrökk við hrædd- ur, „fer hér gestur eða tveir?“ Einn á ferð og ekkert meir!“ Áfram þylur skúffuskáldið ein átján erindi af Krumma á skjánum og svo virðist sem minnið bregðist því ekki frekar en skáldagáfan. Blaðamaður verður hins vegar að fara enda varla vært í nærveru Krumma. Um langa-langafa sem lagði til Jóns forseta ÁSGEIR HANNES EIRÍKSSON SKÚFFUSKÁLD ÁSAMT LANGA-LANGAFA SÍNUM Það er freistandi að láta stjörnuspeking lesa úr stjörnunum um það sem bíður manns þegar nýtt ár gengur í garð. Jón Sigurður Eyjólfsson leit til stjörnusálfræðingsins Bjarndísar Arnardóttur, sem litaðist um í kortum sínum og sá það sem bíður íslensku þjóðarsálarinnar á þessu ári. BJARNDÍS ARNARDÓTTIR STJÖRNUSÁLFRÆÐINGUR Eftir að hafa rýnt í stjörnukortin segir Bjarndís að tilfinningar verði í tísku á árinu og Íslendingar muni læra að slappa af og leyfa tilfinningunum að gægjast út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.