Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 74
ÍSLAND FRAM YFIR AGUILERA
Fyrsta verkefni mitt í París var að taka ljósmyndir af Christinu Aguilera. Það giltu
mjög strangar reglur, meðal ann-
ars var bannað að horfa í augun á
henni eða eiga nokkur samskipti
við hana,“ segir Kjartan Már ljós-
myndari. En hvernig endaði hann
með Christinu í París?
Ég lærði ljósmyndun í
Gautaborg en þar eru flestir
íslenskir ljósmyndarar menntaðir.
Þegar ég kom heim tók ég myndir
fyrir Undirtóna og 24/7, sem var
aukablað Morgunblaðsins. 27
ára gamall flutti ég til Parísar
með lítið annað en myndavélina í
farteskinu. Eftir rúma tvo mánuði
var ég staddur á strippstað og hitti
fyrir tilviljum Vincent Peters,
þekktan þýskan ljósmyndara,
en ég hafði einmitt verið mikið
að stúdera myndir hans. Ágætis
kynni tókust með okkur og þegar
hann vantaði aðstoðarmann
var ég ráðinn í starfið í mars
2003. Ég var líklega eini „first
assistent“ í París sem ekki kunni
frönsku, en síðan hef ég lært
málið og allt er orðið auðveldara.
Tískuljósmyndaheimurinn er
alþjóðlegt samfélag og þar kunna
allir ensku, en dagsdaglega er
eiginlega nauðsynlegt að tala
frönsku, þar sem sérstaklega
eldra fólkið talar litla ensku.“
Fyrsta verkefnið með Peters
var svo að taka myndirnar af
Christinu Aguilera sem birtust
meðal annars í ítalska Vogue, sem
þykir einhver mesta tískubiblía
Evrópu.
En Kjartan hefur einnig unnið
með fleiri stjórstjörnum.
„Við fórum með Kate Moss til
Ibiza og það var sama reglan þar,
ekkert augnsamband. Jennifer
Lopez var með 15 manna her með
sér, og þegar það kom lag með
Madonnu í útvarpinu gaf hún
skipun um að það væri samstundis
slökkt á því. Stella McCartney
er mjög hörð grænmetisæta, og
enginn mátti borða kjöt í návist
hennar. Hilary Swank, sem fékk
óskarsverðlaun fyrir Million
Dollar Baby, var hins vegar mjög
indæl, engir stælar. Allar þessar
stórstjörnur eru með svokallaðan
„publicist“ með sér, sem passar
upp á það að allar myndirnar séu í
samræmi við ímynd stjörnunnar.
Til dæmis var Hilary þarna á
nærbuxunum, og það var mjög
vel passað upp á að enginn
óviðkomandi fengi aðgang eða
væri að sniglast með myndavél
þarna. Einn sem ég þekkti tók
myndir í leyfisleysi og var látinn
þurrka þær út.“
Kjartan segist hafa fengið
að vinna með sumum af helstu
ljósmyndarafyrirmyndum sínum
í París, svo sem Mario Testino og
Mert og Marcus, en hugurinn leiti
þó heim.
„Mér fannst enginn menningar-
munur á því að búa í Svíþjóð eða
á Íslandi, en það var fyrst í París
að ég uppgvötaði Íslendinginn í
sjálfum mér. Þar þérar maður
alltaf ókunnuga en við Íslendingar
erum svo vanir því að koma
alltaf eins fram við alla. Það er
hvorki betra eða verra að vinna
hér en þar, bara öðruvísi. Það er
eiginlega meiri sköpun í því að
vinna í auglýsingum hér heima en
fyrir tímarit erlendis. Það er hægt
að gera fína hluti á Íslandi.“
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR34
KONUR AÐ STÖRFUM
HELENA CHRISTIANSEN
EVA HERZEGOVA
KJARTAN MÁR LJÓSMYNDARI
LINDA EVANGELISTA
CHRISTINA AGUILERA
NAOMI CAMPBELL
KJARTAN MÁR AÐ
STÖRFUM ÁSAMT
VINCENT PETERS
Kjartan Már ljósmyndari vann með stórstjörnunum í París.