Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 94

Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 94
 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Opið laugardaga 10-14 LÁRÉTT 2 berjast 6 utan 8 efni 9 stormur 11 frú 12 bolur 14 frumefni 16 tveir eins 17 gerast 18 viður 20 tveir eins 21 tegund. LÓÐRÉTT 1 ullar 3 tveir eins 4 jafningi 5 for 7 hagnýta 10 bergtegund 13 viljugur 15 ráf 16 frændbálkur 19 persónu- fornafn. LAUSN: HRÓSIÐ ...fær Gerður Kristný Guðjóns- dóttir rithöfundur fyrir að nýta sér þekkingu úr þáttunum Amer- ican‘s next top model þegar hún lék í auglýsingu KB banka. LÁRÉTT: 2 etja, 6 án, 8 tau, 9 rok, 11 fr, 12 stofn, 14 flúor, 16 ææ, 17 ske, 18 tré, 20 ii, 21 tagi. LÓÐRÉTT: 1 hárs, 3 tt, 4 jafnoki, 5 aur, 7 notfæra, 10 kol, 13 fús, 15 reik, 16 ætt, 19 ég. Ummæli bandaríska leikstjórans Quentins Tarantino í spjallþætti Conans O‘Brian hafa vakið mikla athygli. Lýsingar hans á léttúðugu íslensku kvenfólki sem kunni ekkert með brennivín að fara hafa farið fyrir brjóstið á mörgum en Tarantino sagði að í Bandaríkjunum þyrftir þú að kaupa áfengi handa stelpum til að fá þær heim með þér. Á Íslandi væri þessu öfugt farið því þá þyrftir þú að koma þeim heim áður en þær lognuðust útaf eða ældu yfir þig. Katrínu Önnu G u ð m u n d s d ó t t u r , talskonu Femín- istafélags Íslands, komu þessar yfir- lýsingar ekkert sér- staklega mikið á óvart. „Það er einfaldlega búið að markaðsetja Ísland á þennan hátt,“ sagði hún. „Það eru gerðar út ferðir frá bæði Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem markhópurinn er karlar og íslenskar konur eru beitan,“ bætti Katrín við og sagðist jafnframt hafa heyrt af því að íslenskar konur væru hættar að segja frá hvaða landi þær kæmu vegna áreitis þegar þær væru erlendis. Hún sagði að íslenskar konur hefðu vissulega orð á sér fyrir að vera mjög sjálfstæðar en þær yrðu því miður oft fyrir barðinu á tvöföldu siðferði. „Mér finnst það ekki vera merki um sjálfstæði þegar eingöngu er talað um hegðun annars kynsins,“ sagði hún og taldi ólíklegt að talað væri á þessum nótum um í s l e n s k a karlmenn. „Konur geta því ekki hagað sér eins og þær vilja án þess að vera dæmdar út frá einhverjum ákveðnum forsendum.“ Ísleifur B. Þórhallsson stóð að komu Tarantino hingað til landsins og sagði að þetta hefði komið sér mjög á óvart. „Ég hef ekki þekkt hann lengi en mér fannst þetta svolítið úr karakter. Hann talaði við okkur um mun jákvæðari hluti,“ segir Ísleifur og bætti við að þetta hefði enn fremur komið flestum í kringum hann spánskt fyrir sjónir. „Þetta viðtal bregður upp brenglaðri mynd af veru þeirra hér því stærsti hlutinn af dvölinni fór ekki í djamm,“ bætir Ísleifur við. „Við gerðum mikið af því að fara út í náttúruna, hitta skemmtilegt fólk og hann hafði orð á því. Það að þátturinn skuli hafa snúist um þetta kemur okkur því í opna skjöldu.“ Ísleifur heyrði í leikstjóranum Eli Roth sem er mikill Íslandsvinur og góður félagi Tarantino. „Hann tekur þetta mjög nærri sér og finnst þetta bæði leiðinlegt og ósanngjarnt.“ freyrgigja@frettabladid.is KATRÍN ANNA Segir þessar yfirlýsingar ekki koma sér á óvart enda sé þetta hluti af markaðs- væðingu Íslands. TARANTINO: YFIRLÝSINGARNAR FARA FYRIR BRJÓSTIÐ Á LANDSMÖNNUM Eli Roth finnst félagi sinn hafa komið illa fram TARANTINO Fór hamförum í lýsingum sínum á gamlárskvöldi Íslendinga og þá sérstaklega þegar kom að íslensku kvenfólki sem er gefið fyrir vín. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN 1 1,4 milljarðar króna 2 Evo Morales 3 Gummersbach VEISTU SVARIÐ? NÚNA BÚIÐ Fjaðrir. Finndu paradís- arfuglinn í sjálfri þér og skreyttu þig með fjöðrum. Jurtate. Hreinsaðu lík- amann með hollum jurtum. Prófaðu nýju íslensku heilsubótartein sem fást í versluninni Maður lifandi. Tangó. Seiðandi og sexí tónlist frá Argentínu. Hressandi. Fölbleikur varalitur. Þetta er ekkert nema ljótt, sérstaklega við sólarbrúnku. Salt. Langar þig virkilega að tútna meira út? Diskó. Það dó fyrir löngu. Jóni Sæmundi Auðarssyni, listamanni og eiganda Nonnabúðar, var að sjálfsögðu boðið í veislu Tarantinos á Rex um áramótin. Jón Sæmundur er að mála portrett af Tarantino, hefur selt honum fjölda af flíkum og eru þeir orðnir mestu mátar. Hins vegar varð Jón fyrir því leiða óhappi í VIP horni veislunnar að týna uppáhaldsfrakkanum sínum og myndavélinni sinni sem meðal annars geymdi myndir af börnunum hans á áramótabrennu. Jakkinn er forláta gripur úr svörtum striga frá Viktoríutímabilinu og er sárt saknað. Jón Sæmundur vonar að jakkinn og myndavélin hafi verið tekin í misgripum og sé ekki floginn til New York með Tarantino og kompaníi, og lýsir eftir honum. Hann bætti því við að hann hefði líka týnt kettinum sínum honum Villa, sem er svartur og hvítur, en hann hvarf þó ekki á Rex eins og fyrrnefndir hlutir. Damon Albarn mun koma fram með hljómsveitinni Ghostigital á tónleikunum til stuðnings náttúru- vernd sem verða haldnir í Laugar- dalshöll í kvöld. Albarn mun fyrst spila á munnorgel með sveitinni og síðan mun hann taka sér hljóðnema í hönd og syngja með Einari Erni. Munu þeir flytja nýtt lag sem þeir félagar sömdu saman. Einar segist hafa verið beðinn um að taka þátt í tónleikunum og ekki viljað skorast undan því. „Það er ekki tími til að þegja heldur segja,“ segir Einar. Hann segist hafa fylgst ágætlega með umhverfismálum í gegnum tíðina. „Ég held að þessir tónleikar séu fyrsta skrefið í því ferli sem við eigum öll að vera hluti af, að fylgjast með og taka þátt. Við búum til framtíðina fyrir okkur sjálf og alla hina sem fylgja á eftir okkur. Þó að það sé eitthvað sem hefur verið samþykkt þá þarf ekki að samþykkja allt annað og talandi um blússandi velferð í þjóðfélaginu og annað þá hef ég ekki tekið eftir því sjálfur.“ Tónleikarnir í kvöld, sem hefjast klukkan 18.00, verða teknir upp og gerðir aðgengilegir á heimasíðunni damnation.tv í næstu viku. Auk Albarns og Ghostigital koma m.a. fram Björk, Sigur Rós, Mugison, Damien Rice, Ham og Egó, sem lokar kvöldinu. Uppselt er á tónleikana og segir Einar Örn það bera merki um hugarfar almennings í náttúruverndarmálum. „Það er merkilegt að það eru allir að tala um að listamenn hafi ákveðið að koma saman og spila en það er fátt sagt um að þarna verði 5.500 manns í viðbót.“ Ekki tími til að þegja heldur segja EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Einar Örn kemur fram á tónleikunum með Damon Albarn. FRÉTTIR AF FÓLKI Samfylkingin í Hafn-arfirði undir forystu Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra þykir hafa sterka stöðu fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar. Samfylkingin er með hreinan meirihluta eins og er, sex bæjarfulltrúa á móti fimm fulltrúum Sjálfstæðisflokks. Það er hins vegar sundrung meðal sjálfstæðismanna eftir að allt fór í bál og brand hjá þeim í kringum prófkjör fyrir áramótin. Þá gæti listi sjálfstæðismann liðið fyrir reynslu- leysi frambjóðenda. Vinstri grænir þykja ekki hafa sterka fótfestu í Hafnarfirði og Framsóknarflokkurinn missti fótfestu sína í þessu forna vígi jafnaðarstefnunn- ar. Lúðvík og hans lið er því sigurstrang- legt en eins og gengur með sigursæla bæjarstjóra eru líkur á því að Lúðvík muni hasla sér völl á framboðslista Samfylkingarinnar til alþingiskosninga árið 2007. Það má segja að Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, hafi skilið eftir sig skarð fyrir Lúðvík að fylla eftir að hann hvarf af þingi til annarra starfa í Stokkhólmi. Jafnaðarmenn í Hafnarfirði gera að sjálfsgögðu eindregna kröfu um að þeir eigi sterkan leiðtoga úr kjör- dæminu á þingi þannig að ef Lúðvík heldur velli í bæjarstjórnarkosning- unum í vor hlýtur leið hans inn á framboðslista til alþingiskosninga á næsta ári að vera greið. �������������� ������� ���������� ���� ���������������� �������������� ������

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.