Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 22

Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 22
 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR22 Í dag klukkan tvö opnum við kosningaskrifstofu Önnu Kristinsdóttur í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll. Ávarp Önnu, léttar kaffiveitingar, lifandi tónlist og hvetjandi spjall! Verið velkomin. Stuðningsmenn Opnun kosningaskrifstofu ferðast til smábæjarins Hastings og rannsaka þar dularfullt andlát manns sem skilur eftir sig eina milljón dollara í líftryggingu. Ef allt reynist slétt og fellt þá fellur hún í skaut Isoldar en Holt hefur sínar efasemdir og fljótlega kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist. Whitaker undirbjó sig vel fyrir þetta hlutverk og vann meðal annars mjög náið með tal- sérfræðingi til að ná þeim hreim sem hann talar með í myndinni. Hann átti einnig nokkur samtöl við föður sinn sem er vel inni í tryggingamálum Bandaríkjanna. „Það hefði verið ómögulegt fyrir mig að koma á tökustað án und- irbúnings því hreimurinn var nauðsynlegur og mér fannst ég þurfa a‘ þekkja til kerfisins svo að ég myndi verða trúverðugur í mínu hlutverki,“ útskýrir Forest sem vann einnig náið með Balt- asar í útfærslu á persónunni. For- est hefur þó marga fjöruna sopið hvað undirbúning varðar. „Þegar ég lék í stríðsmyndum eftir Oli- ver Stone var okkur kennt að sitja og éta eftir kúnstarinnar regl- um,“ segir Forest og hlær. „Und- irbúningurinn fyrir A Little Trip var því tiltölulega sársaukalaus,“ bætir hann við og skellir upp úr. Nóg eftir Forest er þekkt andlit víða um heim og hefur notið mikillar vel- gengni í gegnum árin. Honum hefur engu að síður tekist að halda sig fjarri glys og glaumi fræga fólksins. „Ég ákvað snemma að halda börnunum mínum frá þessu því þetta umhverfi er þeim ekki hollt,“ útskýrir Forest. „Kannski hefur það verið ómeðvituð ákvörð- un en ég hef alltaf reynt að halda þeim frá sviðsljósinu,“ segir hann en þó hefur sonur hans, Denzel, aðeins reynt fyrir sér á þessum vettvangi og lék meðal annars lítið hlutverk í Training Day. Handritið skiptir Forest miklu máli þegar hann velur sér næsta verkefni en það er þó langt frá því að vera mikilvægast. „Yfirleitt fylgi ég þeirri tilfinningu sem ég hef fyrir verkefninu og nota eðlisávís- unina mína,“ segir hann og hlær. Þrátt fyrir að hafa verið að í rúm tuttugu ár segist Whitaker eiga nóg eftir og talar um sína nýjustu mynd, The Last King of Scotland, en þar leikur hann ein- ræðisherrann Idi Amin. „Ég finn að það er eitthvað að gerast og sjálfum finnst mér ég eiga öll mín bestu ár eftir. Ég veit eiginlega ekki hvað er í gangi.“ ■ Röddin var kunnugleg. Vinaleg, rétt eins og andlitið sem heillað hefur heimsbyggðina upp úr skónum síðan 1982. Leikarinn var nýkominn heim úr jólafríi með fjölskyldu sinni en fannst ekki mikið tiltökumál að gefa kost á sér í viðtal þótt hann væri nánast nýlentur. Forest Whitaker á að baki magnaðan feril á hvíta tjaldinu. Kvikmyndir hans eru yfir fimmtíu talsins og hann hefur unnið með leikstjórum á borð við Oliver Stone, Clint Eastwood, Jim Jarmusch og Wayne Wang. Hann hlaut leikaraverðlaunin á Cannes- hátíðinni í Frakklandi 1988 fyrir frammistöðu sína sem Charlie Parker sem Clint Eastwood leikstýrði. Hann hefur þó alltaf verið óhræddur við að takast á við ólík hlutverk í kvikmyndum sem margir í hans stöðu myndu eflaust fúlsa við. Með því hefur Forest Whitaker skapað sér töluverða sérstöðu en um leið eignast nokkuð breiðan aðdáendahóp. Forest leikur aðalhlutverk- ið í kvikmyndinni A Little Trip to Heaven sem var frumsýnd á annan í jólum. Hann hafði þó ekki frétt af frumsýningu myndar- innar hér á landi en gladdist yfir þeim fréttum að henni hefði verið tekið vel. Það er heldur engin lygi enda hafa gagnrýnendur keppst um að lofa myndina. Hvergi smeykur Nokkur ár eru síðan Baltasar Kor- mákur og Sigurjón Sighvatsson komu að máli við Forest Whitaker. „Þeir vildu kynna fyrir mig verk- efni sem þeir voru að vinna í,“ segir leikarinn með sinni rólegu en djúpu rödd. „Mér leist strax vel á það og bað þá um að sýna mér handritið,“ heldur hann áfram. Þegar drög að handriti lágu fyrir horfði leikarinn á kvikmyndir Baltasars og sló til í framhaldi af því. Það liðu þó tvö ár þar til að honum gafst tími til að leggja upp í ferðalag á þetta krummaskuð í norðri enda dagskrá alþjóðlegrar stjörnu yfirleitt þéttsetin. Forest segist hafa verið hvergi smeykur við að koma til Íslands og leika í mynd eftir tiltölulega óþekktan leikstjóra sem aðeins hafði gert tvær myndir í fullri lengd. „Ég horfði á bæði 101 Reykjavík og Hafið og leist vel á það sem hann var að gera,“ segir Forest af sannfæringu en hann hefur mikla trú á hæfileikum Baltarsars. „Hann hafði ákveðna sýn og tilfinningu fyrir því hvað hann ætlaði gera,“ heldur Forest áfram. „Baltasar vann mjög náið með okkur leikurunum og við ræddum saman hvert hann ætlaði sér með myndina,“ útskýrir For- est sem hreifst mjög af starfsað- ferðum hins íslenska leikstjóra og lofar hann í bak og fyrir. „Hann var hvergi smeykur við að ýta okkur fram á ystu nöf og ég naut þess að vinna með honum,“ segir Forest en hann og Baltasar hafa rætt um frekara samstarf. „Tím- inn verður bara að leiða í ljós hvað úr verður.“ Hrifinn af óháðri kvikmyndagerð Forest hefur alltaf verið óhrædd- ur við að taka áhættu og hefur unnið með mörgum af fremstu leikstjórum heims innan óháðrar kvikmyndagerðar. Nægir þar að nefna Jim Jarmusch og Wayne Wang. Forest segir að vinnuum- hverfið sé allt öðruvísi í sjálf- stæðri kvikmyndagerð en innan hefðbundinnar Hollywood-kvik- myndar. Þannig hafi til dæmis hugmyndin að Ghost Dog kvikn- að út frá samtali sem hann átti við Jarmusch. „Mér þykir mjög vænt um þá mynd,“ skýtur leik- arinn inn í. Honum sjálfum finnst mikil- vægt að starfa innan óháða geir- ans til að þróa sig enn frekar sem leikari. „Þessir leikstjórar hafa tækifæri til að segja sögur af venjulegu fólki sem lifir í hvers- dagsleikanum,“ útskýrir Forest. „Þeir þurfa líka að hafa ákveðn- ar hugsjónir til að lifa af,“ bætir hann við og segist njóta þess að vinna slíkar myndir. Sársaukalaus undirbúningur Whitaker hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína sem trygginga-rannsóknarmaðurinn Holt. Einlægir aðdáendur hans hafa haft það á orði að þetta sé hans besta frammistaða hingað til, svo vitnað sé til tíðra ummæla Idol-dómara. A Little Trip segir frá áðurnefndum Holt sem þarf að FOREST KEMUR TIL LANDSINS Leikarinn var hvergi smeykur við að taka að sér hlutverk í kvikmynd eftir nánast óþekktan leikstjóra enda hefur hann tröllatrú á hæfileikum Baltasars. FRÉTTABLAÐIÐ / ATLI Forest Whitaker á skrautlegan feril að baki sem spannar gæðamyndir og rusl. Segja má að undir lok níunda áratugarins hafi hann verið á hátindi ferils síns en þá komu þrjár kvikmyndir sem allar fengu mikið lof gagnrýnenda: Platoon (1986): Mögnuð stríðsádeila Olivers Stone sem lifir í minningunni sem ein af þeim bestu en eldist ekki vel. Good Morning Vietnam ( 1987): Barry Levinson fylgdi í kjölfarið en ótrú- legur leikur Robin Williams skyggði á alla aðra. Whitaker fékk ekki það hrós sem hann átti skilið. Bird (1988): Í þessum óð Eastwoods til eins af risum djassins fer Forest Whitaker hamförum sem hinn óhamingjusami en hæfileikaríki Charlie Parker. Tvímælalaust ein af hans bestu myndum, sama hvað hver segir. Smoke (1995): Hversdagsleikinn hefur aldrei birst okkur jafn skýrt og í þessu meistarastykki Wayne Wang. Harvey Keitel, William Hurt og Forest Whitaker í mynd byggðri á skáldsögu Paul Auster? Getur ekki klikkað. Ghost Dog (1999): Myndin naut í raun fáránlegra vinsælda hér á landi. Segir frá leigumorðingja mafíunnar sem lendir sjálfur í því að vera skotmark. Ferill Forest Whitaker Á öll mín bestu ár eftir Það þótti sæta nokkrum tíðindum að stórleikarinn Forest Whitaker skyldi samþykkja að leika í kvikmynd eftir Baltasar Kormák. Leikarinn fer fögrum orðum um hinn íslenska leikstjóra og útilokar ekki frekara samstarf. Freyr Gígja Gunnarsson sló á þráðinn til Forests í tilefni af nýliðinni frumsýningu A Little Trip to Heaven.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.