Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 24
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR24
Stanley „Tookie“ Williams var tekinn af lífi í San Quentin-fangelsinu Kaliforníu hinn
13. desember. Tookie, eins og hann
var iðulega kallaður, var í meira
lagi umdeildur maður enda var
hann einn af stofnendum hinnar
alræmdu Crips-glæpaklíku í Los
Angeles.
Aftökur eru alltaf umdeildar í
Bandaríkjunum og í aðdraganda
aftöku Tookie mótmælti fjöldi
fólks. Auk þrýstihópa sem almennt
vilja afnema dauðarefsingar vakti
athygli að þó nokkur fjöldi frægra
manna mótmælti aftöku Tookie.
Þar fóru fremstir í flokki leikarinn
Jamie Foxx og rapparinn Snoop
Dogg.
Dæmdur fyrir að myrða fjóra
Tookie var dæmdur til dauða árið
1981 fyrir að myrða fjórar mann-
eskjur og sögðu vitni við réttar-
höldin að hann hefði stært sig af
morðunum og hlegið að fórnar-
lömbum sínum.
Vildu stuðningsmenn Tookie
meina að í fangelsinu hefði hann
breyst. Hann væri ekki lengur
kaldrifjaður klíkuforingi heldur
maður sem vildi gera allt sem í
hans valdi stæði til að koma í veg
fyrir að ungt fólk leiddist á braut
glæpa. Bentu þeir á að í fangelsinu
hefði hann meðal annars skrifað
barnabækur þar sem glæpir og
tilvist götugengja væru fordæmd
og að hann hefði meðal annars
verið tilnefndur til friðarverð-
launa Nóbels fyrir forvarnarstarf
sitt. Allt kom fyrir ekki. Tookie
var tekinn af lífi.
Þekktir stuðningsmenn
Foxx lék þennan fyrrum klíkufor-
ingja í kvikmyndinni Redemption
sem kom út í fyrra og má líklega
rekja ákafan stuðning hans til
Tookie til þessa. Stuðningur Snoop
Dogg við Tookie kom hins vegar
engum sem þekkir til gengja í Los
Angeles á óvart. Snoop var, og er
reyndar af mörgum enn talinn
vera, meðlimur í Rollin‘ 20s, sem
er einn angi Crips-klíkunnar.
Crips-klíkan er ein af elstu
blökkumannaklíkum Bandaríkj-
anna. Meðlimir hennar bera ábyrgð
á fjölda morða og annarra glæpa og
þá hefur klíkan verið mjög umsvifa-
mikil í fíkniefnaviðskiptum. Í upp-
hafi samanstóð gengið af tiltölu-
lega fámennum hópi ungmenna í
suðurhluta Los Angeles. Í dag er
Crips hins vegar samnefnari yfir
net eða bandalag gengja sem teygir
sig til allra helstu borga Bandaríkj-
anna. Talið er að þúsundir manna
séu í klíkunni og þó þorri þeirra sé
blökkumenn eru einnig meðlimir
af öðrum kynþáttum í klíkunni í
dag. Samkvæmt skýrslu sem alrík-
islögreglan gaf bandarískri þing-
nefnd árið 1997 teygði Crips sig til
42 ríkja.
Hugsanleg stafsetningarvilla réð
nafninu
Crips-klíkan á rætur sínar að
rekja til loka sjöunda áratugar-
ins þegar tveir fimmtán ára ungl-
ingar í Freemont-skólanum í Los
Angeles, Raymond Washington og
fyrrnefndur Stanley Tookie Willi-
ams, stofnuðu klíku sem hét Baby
Avenues.
Tvímenningarnir litu mjög upp
til annarrar klíku sem nefndist
einfaldlega Avenues og vann ýmis
skítverk fyrir samtök Svörtu hlé-
barðanna (Black Panthers). Síðar
breyttist nafn Baby Avenues í
Avenues Cribs og enn síðar í Cribs.
Enska orðið cribs þýðir barnarúm
og var með því verið að vísa til
ungs aldurs meðlima gengisins.
Enn síðar breyttist nafn gengisins
í Crips. Ekki er alveg ljóst hvers
vegna „b“ var skipt út fyrir „p“ en
nokkrar kenningar eru þó til um
það. Ein útgáfa sögunnar er að í
árdaga klíkunnar hafi dagblaðið
Los Angeles Sentinel greint frá
því að nokkrir meðlimir klíkunn-
ar hefðu ráðist á ferðamenn í Los
Angeles.
Eitt af einkennum meðlima
gengisins þá var að ganga með
staf og eiga ferðamennirnir því
að hafa sagt lögreglunni að fötluð
(crippled) ungmenni hefðu ráðist
á sig. Á dagblaðið að hafa kallað
gengið Crips vegna þessa. Hins
vegar eru þeir einnig til sem telja
að notkunin á orðinu „Crips“ í
dagblaðinu hafi einfaldlega verið
stafsetningarvilla.
Í byrjun áttunda áratugarins
höfðu Crips-klíkur sprottið upp
víðs vegar í Los Angeles. Klík-
urnar eru kenndar við hverfin
sem meðlimir þeirra koma frá og
þannig nefndust fyrstu klíkurnar
Eastside Crips, Westside Crips,
Compton Crips, Avalon Garden
Crips og Inglewood Crips. Wash-
ington og Tookie hófu síðan útrás
til hverfa þar sem Crips-klíkur
voru ekki fyrir heldur aðrar sjálf-
stæðar klíkur. Fljótlega varð ljóst
að tvær klíkur gátu ekki þrifist í
sama svæði og urðu oft blóðugir
bardagar milli gengja. Sumarið
1972 urðu mikil átök milli Comp-
ton Crips og gengis sem nefnist
Piru Street Boys. Compton Crips
hafði betur og í kjölfarið breytt-
ist landslag gengja í Los Angeles.
Andstæðingar Crips-klíkunnar
áttuðu sig fljótlega á því að ef þeir
mynduðu bandalag gegn Crips-
klíkunni hefðu þeir meira í hana
að segja.
Samtök gengja gegn Crips
Síðla sumars 1972 funduðu for-
ingjar gengjanna Piru Street
Boys, Lueders Park Hustlers, L.A.
Brims, Bishops og Denver Lanes.
Allar þessar klíkur höfðu horn
í síðu Crips, til að mynda höfðu
Crips-félagar myrt einn meðlim
L.A. Brims fyrr um árið. Niður-
staða fundarins var að stofnað var
nýtt gengi - Bloods. Þetta gengi
er enn í dag höfuðandstæðingur
Crips-klíkunnar.
Strax frá byrjun reyndu með-
limir Crips-klíkunnar að skera sig
frá öðrum með ýmsu móti. Lík-
lega er frægasta einkenni þeirra
blái liturinn. Meðlimir gengisins
nota bláa höfuðklúta og klæð-
ast bláum bolum. Bloods-gengið
ákvað strax að nota rauða litinn
sem sitt helsta einkenni og nota
meðlimir Bloods rauða höfuðklúta
og boli. Notkun klútanna og bol-
anna hefur þó minnkað nokkuð
hin síðari ár vegna ótta meðlima
gengjanna um að lögreglan sigti
þá út séu þeir of áberandi. Enn má
þó sjá þessi einkenni þó sífellt sé
að verða algengara að þeir klæð-
ist til dæmis bláum eða rauðum
bol undir hvítum.
Umsvifamiklir í fíkniefnasölu
Upp úr 1980 fór Crips-klíkunni að
vaxa verulega fiskur um hrygg. Á
þessum tíma er talið að um þrjátíu
þúsund manns hafi verið í gengj-
um í Los Angeles. Árið 1972 voru
átta Crips-klíkur í Los Angeles-
sýslu, árið 1982 voru þær orðnar
109 talsins og í lok síðasta áratug-
ar voru þær um 200.
Upp úr 1980 breyttist ýmislegt.
Þá kom fyrst á markaðinn nýtt
eiturlyf - krakk. Krakk er unnið
úr kókaíni en er miklu ódýrara.
Þetta þýddi að meðlimir gengja
gátu selt það efnaminna fólki
sem varð nánast strax háð því.
Einstakir meðlimir gátu hagnast
um tugi ef ekki hundruð þúsunda
á einu kvöldi. Crips-klíkan varð
gríðarlega umsvifamikil í sölu eit-
ur lyfja og öðlaðist töluverða virð-
ingu meðal annarra glæpamanna,
ekki ósvipað og ítalska mafían á
sínum tíma. Reyndar er alveg ljóst
að gengi eins og Crips lítur upp til
gömlu mafíunnar. Sín á milli kalla
meðlimir Crips sig „cuzz“ sem er
stytting á orðinu „cousin“ sem
ítalskir mafíósar notuðu þegar
ávörpuðu hver annan.
Í kjölfar aukinna fíkniefnavið-
skipta og átaka um svæði til að
selja þau á jókst ofbeldið einnig.
Bandaríska alríkislögreglan telur
að rekja megi þúsundir morða á
hverju ári til glæpagengja. Árið
1992 og 1995 voru meira en 800
morð rakin til gengja í Los Angel-
es-sýslu einni. Árið 1998 voru 400
morð í sýslunni rakin til gengja.
Þó Crips- og Bloods-klíkurn-
ar hafi eldað grátt silfur saman í
gegnum tíðina hafa einnig verið
innbyrðis átök í Crips-klíkunni.
Til dæmis hafa Rollin‘ 60s-klík-
an og Gangster Crips-klíkan, eða
Eight-Trey eins og hún er líka
kölluð, átt í hatrömmum deilum í
meira en tvo áratugi.
Meðal þeirra allra hættulegustu
Crips- og Bloods-klíkurnar eru enn
þann dag í dag taldar meðal þeirra
allra hættulegustu í Bandaríkjun-
um. Hins vegar hefur annað gengi
vakið meiri athygli síðustu ár en
það heitir Mara Salvatrucha eða
MS 13. Mara Salvatrucha er líkt
og hin tvö glæpagengi með stóru
G. Gengið smyglar eiturlyfjum í
stórum stíl frá Mexíkó til Banda-
ríkjanna og hefur tengsl við stóra
eiturlyfjahringi í Suður-Ameríku.
Gengið smyglar einnig fólki
og vopnum yfir landamærin og
stelur þúsundum bíla í Bandaríkj-
unum á hverju ári. Þá hefur því
einnig verið haldið fram að geng-
ið hafi haft tengsl við al-Kaída.
Uppgangur Mara Salvatrucha
hefur vakið gríðarmikla athygli í
Bandaríkjunum. Í byrjun ársins
stofnaði Bandaríska alríkislög-
reglan (FBI) sérsveit til höfuðs
genginu og er það í fyrsta skiptið í
sögunni slík gerist. ■
Blóðug saga alræmds götugengis
Stanley „Tookie“ Williams, einn forsprakki eins al-
ræmdasta götugengis Bandaríkjanna, var tekinn
af lífi í lok síðasta árs. Árið 1969 stofnaði hann
Crips-klíkuna, sem ber ábyrgð á fjölda morða og
annarra glæpa. Hún teygir sig í dag til að minnsta
kosti 42 ríkja Bandaríkjanna. Höfuðandstæðing-
urinn er önnur klíka sem nefnist Bloods. Trausti
Hafliðason skoðaði sögu klíkunnar.
MEÐ 23 SKOTSÁR Meðlimur Bloods-klíkunnar, höfuðandstæðings Crips-klíkunnar, sýnir nokkur skotsár sem hann hefur fengið í gegnum
árin. Maðurinn hefur viðurnefnið „Blóðhundur“. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
STANLEY „TOOKIE“
WILLIAMS Tookie
var tekinn af lífi
fyrir að myrða
fjórar manneskjur
árið 1981.
SNOOP DOGG MERKTUR CRIPS Rapparinn
Snoop Dogg hefur verið kenndur við
Rollin‘ 20s Crips-klíkuna. Svo virðist sem
hann hafi ekkert verið að fela tengsl
sín við klíkuna þegar hann hélt tónleika
í Egilshöllinni í sumar. Hann klæddist
stórri blárri mussu sem svipar mjög til
höfuðklútanna sem meðlimir Crips nota til
að auðkenna sig. FRETTABLADID/TEITUR
THE GAME MERKTUR BLOODS Rapparinn
The Game hefur haft tengsl við Bloods-
klíkuna Cedar Block Piru frá Compt on-
hverfinu í Los Angeles. Á myndinni sést
hann með rauða höfuðklútinn bundinn
sem bindi og derhúfu hafnaboltaliðsins
Cincinnati Reds en meðlimir Cedar Block
Piru Bloods ganga með húfur þess liðs.
NORDICPHOTO/GETTY IMAGES
Blái liturinn er auðkenni
Crips-klíkunnar og
rauður er einkenni
Bloods-klíkunn-
ar. Algengt er að
meðlimir gengjanna
gangi með höfuð-
klúta og í bolum með
þessum litum.
Hin síðari ár hafa meðlimir Crips
gjarnan gengið í íþróttaskóm frá
British Knights, skammstafað BK.
Merkingin sem Crips-meðlimir
leggja í þessa skammstöfun er hins
vegar ekki British Knights heldur
Blood Killers. Einnig
auðkenna meðlimir
gengjanna sig með
skóreimum og
beltum.
Algengt er að með-
limir gengja leggi
aðra merkingu í
ýmsar
þekktar skamm-
stafanir eða stafi.
Bestu dæmin eru
líklega derhúf-
urnar. Hvert
einasta íþróttalið
í Bandaríkjunum framleiðir derhúfur
sem meðlimir gengja taka og gera
að sínum. Meðlimir Gardena Crips-
gengisins frá Los Angeles ganga til
dæmis með derhúfur bandaríska
fótboltaliðsins Green Bay Packers.
Cedar Block Piru Bloods-gengið frá
Compton notar derhúfur frá banda-
ríska hafnaboltaliðinu Cincinnati
Reds.
Þá er húðflúr mjög
algengt hjá
gengjum sem
og ýmsar
merkja-
sendingar
með fingrum sem eru í raun
nokkurs konar táknmál sem
meðlimir nota til að auð-
kenna sig.
Gengin hafa einnig
búið til sitt eigið
stafróf þar sem
stafir eru skrifaðir
með ákveðnum hætti. Þá
er einnig vitað að meðlimir Crips
forðast að nota stafinn B og Bloods
að nota stafinn C, þannig biðja
meðlimir Bloods um „bigarette“ í
stað „cigarette“.
BK MERKIR „BLOOD KILLERS“
Í skýrslu bandarísku alríkislög-
reglunnar til dómsmálanefndar
öldungadeildar þingsins kemur
fram að helstu glæpaklíkur lands-
ins séu:
Mara Salvatrucha 13
Crips
Bloods
Black Gangster Disciples Nation
Almighty Latin Kings Nation
Jamaican Posses
HELSTU KLÍKURNAR