Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 28
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR28
KÆRI JÓN Jón Gnarr ræður lesendum Fréttablaðsins heilt >
Kæri Jón
Ég þakka fyrir allan þann fjölda bréfa
sem mér barst í vikunni. Nokkur bréf
þurfa að bíða svars þar til í næstu viku.
Ég byrja að þessu sinni á bréfi sem er
ekki spurning heldur frekar svar við
bréfi sem birtist í síðustu viku.
Kæri Jón
Ég get ekki orða bundist vegna bréfs-
ins um fjármál heimilisins frá Svörtu
Söru í blaðinu á gamlársdag.
Í fyrsta lagi þá er það ekki „fátækt“
þegar heimili er með útborguð laun
upp á 290.000-330.000 á mánuði.
Í öðru lagi þá er það hreint ótrúlegt
að heimili sem ekki er með nema
300.000 á mánuði, eftir skatt, skuli
láta sig hafa það að borga 40.000 kr. á
mánuði í bílalán.
Svarta Sara
Kæra Svarta Sara, losið ykkur við
þetta bílalán strax. Fáið ykkur bíl sem
þið hafið efni á að eiga. Ef þið eruð í
einhvers konar neyslukeppni við vini,
systkyni, nágranna eða einhverja aðra,
hættið þá strax að taka þátt í leiknum.
Þið hafið ekki efni á því. Það er hægt
að fá prýðilega örugga bíla fyrir 200
- 300.000 kr. eins og markaðurinn er í
dag og þó að
það þurfi
að fara
m e ð
svoleiðis bíl á verkstæði stöku sinnum
þarftu að hafa rosalega lítið vit á bílum
og vera mjög óheppin til þess að sá
kostnaður nálgist 480.000 kr. á ári. Ef
þið eruð hins vegar útsjónarsöm fer sá
kostnaður ekki mikið yfir upphæðina
sem þið verjið núna í skylduga
kaskótryggingu.
Ég á fleiri góð ráð fyrir þig.
Takið saman alla reikninga sem
þið borguðuð á síðasta ári og
skráið upphæðirnar inn í töflu eftir
mánuðum. Þá getið þið séð hvað þið
eigið að borga á hverjum mánuði á
næsta ári og verið viðbúin þegar að
því kemur. Ekki borga bankanum of
fjár fyrir að borga reikningana fyrir
ykkur og hirða yfirdráttarvexti af öllu
saman. Ég giska á að þið séuð að
borga nálægt 50.000 kr. á ári í óþarfa
yfirdráttarvexti. Hættið því. Hættið
að nota debetkortið. Bara með því
að losa ykkur við bílalánið tekur það
ekki nema 1-2 ár. Ég vona einnig að
þið séuð ekki að borga mörg þúsund
krónur á mánuði í óþarfa áskriftir
að sjónvarpi og blöðum. Ef svo er,
hættið því þá strax og eyðið tíma í
skemmtilegri hluti en sjónvarpsgláp.
Þið þurfið ekki að hafa Stöð 2 barnanna
vegna. Öðru nær. Og eitt að lokum:
Talið um innihald fermingarinnar við
börnin ykkar, ekki bara umgjörðina.
Mér sýnist á upphæðinni sem þið
borgið af húsnæðisláninu að þið búið
í sæmilegu húsnæði. Ekki láta ykkur
detta í hug að leigja sal úti í bæ fyrir
fermingarveisluna og fá aðkeypta
veisluþjónustu. Fermingarveisla
sem maður heldur heima hjá sér og
undirbýr sjálfur er miklu persónulegri,
skemmtilegri og eftirminnilegri en
þessar aðkeyptu gerilsneyddu veislur
sem nú eru farnar að tíðkast.
Eftir að tekjur manns hafa náð
því að duga fyrir mat, húsaskjóli og
klæðum byrja fjármálin að snúast um
útgjöld frekar en tekjur. Margir halda
að fjármálin snúist alltaf um tekjur.
Gangi ykkur vel
Komdu sæll, Bryndís heiti ég.
Ég sé að þú átt við gúrkutíð að stríða
og mér finnst synd að horninu þínu
sé ógnað með slíku, þetta er góður
dálkur. Ég les þig að minnsta kosti
alltaf og hef oft þá tilfinningu að þú
sért gamall kunningi minn þegar
lestrinum er lokið.
Ég hnaut um setningu hjá þér í
svarbréfi í dag sem mig langar til að
biðja þig að endurskoða. Þar segir þú
eitthvað á þessa leið: „Ég hef mjög
gamaldags hugmyndir um kynlíf, mér
finnst að það eigi ekki að stunda það
með þeim sem maður þekkir ekkert
eða lítið ... “. Svo heldur þú áfram og
kemur með punkta um kynlíf sem
flest heilbrigt fullorðið fólk sem hefur
reynslu af þessum hlutum veit, en
margt ungt og óreynt fólk dregur í efa.
Mig langar til að breyta þessu
viðhorfi hjá fólki með þroskaða
reynslu af kynlífi, að það sé með
gamaldags skoðanir. Það er ekki rétt.
Í fyrsta lagi eru þetta ekki skoðanir,
heldur niðurstöður byggðar á eigin
reynslu. Í öðru lagi er ungt fólk ekki
móttækilegt fyrir því sem hefur
stimpilinn gamaldags.
Ég vil halda því fram að það
sé gamaldags að trúa á frelsi í
kynlífsmálum. Það er gamaldags að trúa
því að það sé heilbrigt og rétt að stunda
kynlíf með fólki sem maður þekkir lítið
eða ekkert eða að gera hluti eða ætlast
til að aðrir geri hluti sem fólki finnst
óþægilegir eða vekja því viðbjóð. Það
þarf ekki annað en að tala við ‚gamla‘
fólkið sem tók þátt í kynlífsbyltingunni
nítjánhundruðsextíuogeitthvað til að
komast að því að þetta eru gamlar og
úreltar klisjur. Að öðru leyti finnst mér
alltaf jafn gaman að sjá hvað þessi Jón
Gnarr sem ég trúði að væri bullukollur
hefur djúpvitur svör við mörgum
spurningum.
bestu kveðjur,
Bryndís
Sæl, Bryndís
Þakka þér kærlega fyrir ábendinguna.
Þetta er alveg hárrétt hjá þér. Ég mun
nýta mér þetta. Lifðu heil. Jón
Sæll og blessaður Jón! Ég er aðdáandi
þinn og hef fílaði þig alveg frá því þú
varst á RÚV með Hótel Volkswagen.
Ég er hef lengi verið með þann draum
í maganum að verða frægur grínisti
með sketsum og svoleiðis en ekki
komið því í verk ennþá. Hef verið á
báðum áttum hvort það sé eitthvað
gott að vera frægur á Íslandi, allir að
horfa og eitthvað svoleiðis. Sérð þú
stundum eftir því að hafa ekki orðið
frægur í Túrkmenistan og haft Ísland
í friði þar sem þú gætir verið þú
sjálfur. Hvernig ætlar þú að halda þér
ferskum svo þú endir ekki eins og þeir í
Spaugstofunni? Hvar er best að byrja til
að tékka á hvort fólk fíli mann? Og aðal
spurningin er þessi: Hvernig á maður
hefja ferilinn, geturðu gefið einhver ráð
hvað á að forðast og svoleiðis?
Kv. aðdáandi
Ps. Vil vera undirritaður aðdáandi
því ég vil ekki verða frægur strax
AAAAAAAHAHAHAHA
Sæll, kæri aðdáandi.
Jú, það er ágætt að vera frægur á
Íslandi. Að vísu fylgja því engin sérstök
fríðindi en margir sem brosa til manns.
Ég sé ekki eftir neinu. En ef þú vilt
verða grínisti þá þarftu fyrst og fremst
að hafa löngun til að gleðja fólk. Ég
held mér ferskum með því að reyna
að vera heiðarlegur gagnvart sjálfum
mér og öðrum. Ég geri greinarmun á
grínista og skemmtikrafti. Skemmtun
er afþreying en grín er listform.
Auðvitað eru mörkin oft ógreinileg.
Það er eins og munurinn á listmálara
sem málar eftir hjartanu og öðrum
sem málar það sem fólk biður hann
að mála. Skilur þú? Hvorugt er betra
eða verra. En þú þarft að komast að
því hvor þú ert. Er þörf þín listræn eða
fjárhagsleg, eigingjörn eða gefandi?
Best er fyrir þig að byrja að skrifa stutta
sketsa eða semja stand-up atriði og
bera það undir fólk sem þú treystir. En
þetta kemur ekki fyrirhafnarlaust og
þú verður að hafa harðan skráp. Að
lokum snýst þetta allt fyrst og fremst
um að þora að vera maður sjálfur.
Gangi þér vel.
Kveðja Jón
Sæll og til hamingju með afmælið
um daginn.
Ertu ekki ennþá að svara spurningum
milli himins og jarðar í Fréttablaðinu,
ef svo er þá hef ég eina. Veistu um
einhverja aðferð til að losna við feimni?
Ég drekk ekki þannig að ég vil ekki
nota það, og ég hef reynt að breyta
hugarfarinu en það gengur illa. Er ekki
eitthvað sem ég get gert meira konkret
en hugarfarið til að losna við feimni?
Takk
Einn alveg af fjöllum
Sæll og blessaður og takk fyrir
afmæliskveðjuna. Þó að feimni sé ekki
í tísku núna þá er ég ekki viss um að
hún sé endilega neitt röng. Kannski
er feimni bara eðlileg viðbrögð við
óeðlilegum aðstæðum. Kannski er
hún gáfu- og þroskamerki. Kannski er
feimnin bara hluti af því hver þú ert.
Ég get bent þér á mjög skemmtilegt
persónuleikapróf á slóðinni: http://
similarminds.com/big30.html
En ef þú vilt auka sjálfstæði þitt og
frumkvæði er líka fullt af alls konar
námskeiðum í boði. Þú segist ekki
drekka. Ef þú ert alkóhólisti þá skaltu
biðja um orðið á AA fundum, fá þér
trúnaðarmann og vinna sporin. Ef þú
ert ekki alkóhólisti ertu kannski með-
virkur aðstandandi. Ertu kannski alinn
upp við alkóhólisma? Þá mæli ég ein-
dregið með Al-anon. Þú finnur allar
upplýsingar á: http://www.al-anon.
is/ Það eru til sérstakir karlafundir. Ég
vona að þetta svari einhverju. Gangi
þér vel. Kveðja Jón
Sendið Jóni spurningar. Netfangið er:
jongnarr@frettabladid.is