Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 29
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
KEPPNISBÍLAR
Hópferð á Autosport Inter-
national 2006
BLS. 3
YFIRHAFNIR
Góð kápa er gulli betri í
rysjóttri tíð
BLS. 5
YFIRVIGT
Of þungur farangur getur
komið sér illa
BLS. 6
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Keflvíkingurinn Guðmund-
ur Jens Guðmundsson á
lipran fararskjóta.
Guðmundur Jens Guðmunds-
son rennur áreynslulaust um
götur Keflavíkur á reiðhjól-
inu sínu sem er með bensín-
mótor við bögglaberann. „Ég
fann þennan mótor á netinu
og pantaði hann frá New York.
Nú er komin um tveggja mán-
aða reynsla á hann og hún
hefur verið góð,“ segir Guð-
mundur Jens þar sem hann
er stöðvaður af forvitnum
blaðamanni Fréttablaðsins.
Hann stígur rólega af hjól-
inu og á greinilega fremur
óhægt um vik að hreyfa sig.
Því kemur honum vel að hafa
hjólið mótordrifið. „Þetta er
bensínmótor sem tekur 0,7
lítra og á þeirri lögg kemst
ég 20 kílómetra þegar svona
kalt er en ætti að komast um
30 kílómetra í sumar. Þá get
ég skroppið í lengri túra, út
í Garð og víðar,“ segir hann
ánægjulega. Guðmundur Jens
kveðst áður hafa verið með
hleðslubatterí á hjólinu sem
dugði 8-10 kílómetra og vó um
8 kíló. Bensínmótorinn vegur
hins vegar bara 4 kíló fullur
svo kostirnir eru ótvíræðir. ■
Kemst langt á lögginni
Reykjavík 11.11 13.34 15.58
Akureyri 11.21 13.19 15.17
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 7. janúar,
7. dagur ársins 2006.
Englandsdrottningin
býr í einhverju sem
kallast Bökkling-
höllin!
KRÍLIN
Guðmundi Jens eru allir vegir færir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mótorinn vegur 4 kíló fullur af
bensíni.
Michelin hefur
tekið þá ákvörð-
un að innkalla
s u m a r h j ó l -
barða af gerð-
inni Michel-
in Pilot Sport
255/35 ZR20 97Y
ExtraLoad. Þetta
hefur verið ákveð-
ið eftir nákvæma
skoðun á
hjólbörðum
sem kvartað
hafði verið undan
og þeim skilað aftur.
Skoðunin hefur að
sögn danska tíma-
ritsins Motormagaz-
inet leitt í ljós mis-
ræmi sem í vissum
tilfellum getur leitt
þess að dekkið tapi
loftinu skyndilega.
Hönnuðurinn Phoebe
Philo hefur sagt stöðu sinni lausri
hjá Chloe tískuhúsi. Philo gat sér
gott orð þau fjögur ár sem hún
hannaði fyrir Chloe og er hún
að hætta til að sinna nýfæddu
barni. Augun beinast nú að
Roland Mouret sem fyrir tveim
mánuðum hætti hjá tískufyrir-
tækinu sínu í London. Talið er að
hann muni koma í stað Philo en
það hefur ekki verið staðfest.
Ferðaskrifstofurnar eru flest-
ar farnar af stað með bókanir
í borgar- og sérferðir fyrir árið
2006 og nokkra
áfangastaði fyrir
sumarið 2006.
Þeir sem hafa
hug á að fara í
páskaferðir út fyrir
landsteinana ættu
að panta sem
fyrst þar sem ekki
líður á löngu þar
til uppselt verður í
páskaferðirnar.
Smáralind hefur
breytt opnunartíma
verslanna sinna á fimmtudög-
um. Verslanir verða nú opnar
til klukkan níu öll fimmtudags-
kvöld.
LIGGUR Í LOFTINU
[ BÍLAR FERÐIR TÍSKA ]
FÖT BRESKA HÖNNUÐARINS
VIVIENNE WESTWOOD MUNU
INNAN SKAMMS VERÐA TIL
SÖLU Í VERSLUNNI KRONKRON
Á LAUGAVEGI. ÞAÐ ER MJÖG
SPENNANDI OG MIKILL HEIÐUR
AÐ FÁ AÐ SELJA HÖNNUN
HENNAR, SEGIR HUGRÚN ÁRNA-
DÓTTIR VERSLUNAREIGANDI.
Vivienne Westwood er einn af
frægustu tískuhönnuðum heims
og munu íslenskir tískuunnendur
eflaust fagna mjög þeim fréttum
að eftir nokkrar vikur verður
hægt að kaupa hönnun hennar
í versluninn Kronkron, Lauga-
vegi 55. Hugrún Árnadóttir á og
rekur Kronkron ásamt Magna
Þorsteinssyni, manni sínum,
og segir frábært að fá að selja
hönnun Vivienne. „Það getur ekki
hver sem er fengið umboð til þess þannig að þetta er í raun mikill
heiður,“ segir Hugrún. „Ég valdi það úr línu Westwood sem mér
fannst mest spennandi og þær flíkur verða til sölu í versluninni.“
Hönnun Vivienne Westwood bætist þá við í flóru hönnuða sem
eru til sölu í Kronkron en Hugrún og Magni leggja áherslu á að
selja vörur framsækinna og spennandi fatahönnuða.
Vivienne Westwood á Íslandi
TAKTU NÆSTA SKREF
FRJÁLS ÍBÚ‹ALÁN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
1
2
8
Frjáls íbú›alán eru ver›trygg› fasteignalán me› föstum 4,35% vöxtum sem eru endursko›a›ir á fimm ára fresti.
fiú hagar ö›rum bankavi›skiptum eins og flér s‡nist
og kaupir n‡tt húsnæ›i e›a endurskipuleggur fjár-
haginn. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í síma
540 5000 e›a sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is.
LÁNUM TIL
KAUPA E‹A
ENDURBÓTA
DÆMI UM MÁNA‹ARLEGA GREI‹SLUBYR‹I AF 1.000.000 kr.*
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,35% vextir 18.575 kr. 5.474 kr. 4.400 kr.
*Lán me› jafngrei›slua›fer› án ver›bóta
VEXTIR
4,35%
Kjóll úr sumarlínu Vivienne
Westwood 2006.