Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 34
[ ]
Næstu mánðuðina er margt um
að vera í höfuðborg Bretlands.
Yfir vetrartímann er mikið af
stórtónleikum en næstu þrjá mán-
uði má sjá tónlistarmenn eins og
Bob Dylan, Black Eyed Peas, Cold-
play, Duran Duran, Four Tops,
Uriah Heep, Foo Fighters, Jethro
Tull, James Blunt, White Stripes,
Michael Bublé, Blondie, 50 Cent,
Bloc Party, Jerry Lee Lewis og
marga marga fleiri í London.
Hægt er að sjá dagsetningar fyrir
þessa tónleika og fleiri á www.
pollstar.com.
Leikhúslífið í London er einnig
afar líflegt. Þar má bæði sjá fræga
söngleiki og ýmsar stórstjörnur í
leikverkum. Þar má nefna Guys and
Dolls (Ewan McGregor), Lion King,
Mamma Mia!, Richard II (Kevin
Spacey), Mary Poppins, A Few
Good Men (Rob Lowe) og Phantom
of the Opera en hægt er fá frekari
upplýsingar um þessa atburði og
fleiri og kaupa miða á heimasíðunni
www.londontheatredirect.com.
Aðrir atburðir sem eru vel þess
virði að athuga betur eru London
Film Festival sem stendur frá 20.
október til 4. nóvember, Henry
Rousseau-sýning í Tate-lista-
safninu sem hefst 3. nóvember
og stendur til 3. febrúar, Spital-
fields-tónlistarhátíðin frá 12.-21.
desember og síðan hið svokallaða
Bonfire Night, 5. nóvember, þar
sem Lundúnabúar skjóta upp flug-
eldum til þess að minnast Púður-
samsærisins, þegar reynt var að
sprengja upp breska þinghúsið
árið 1603.
Ekki er heldur úr vegi að kíkja
á stórleik í enska boltanum en í
London eru heimavellir liðanna
Chelsea og Arsenal, auk Charlton,
Tottenham, West Ham og Fulham.
Hægt er sjá leikjaskrár á heima-
síðum liðanna.
Fleiri heimasíður:
londontown.com
whatsoninlondon.co.uk
eu.visitlondon.com/whats_on
Áhugaverðir atburðir í London
Oft þegar ferðast á milli landa
vakna upp spurningar um
hversu þungar, stórar og marg-
ar töskurnar mega vera sem
ferðast er með.
Á vef Flugleiða, icelandair.is, er
svarað mörgum þeim spurningum
sem upp koma þegar farangur er
annars vegar. Þær upplýsingar
sem gefnar eru í þessari grein
skal þó aðeins hafa til viðmiðunn-
ar því reglur eru breytilegar eftir
flugfélögum en eru þó að mestu
leyti staðlaðar.
Oftast mega þeir sem ferðast
á almennu farrými taka með sér
farangur sem er alls tuttugu kíló
að þyngd en þeir sem ferðast á
viðskiptafarrýminu mega taka
með sér þrjátíu kíló. Aðrar reglur
gilda fyrir Kanada og Bandaríkin
en þar er einungis leyfilegt að taka
með sér tvær töskur sem ekki eru
meira en 158 cm að rúmmáli og
hvor taska má ekki vera meira en
32 kíló. Í handfarangri er leyfilegt
að taka með sér eina tösku sem er
ekki meira en sex kíló en níu kíló
ef ferðast er á viðskiptafarrými.
Hjá Iceland Express má þó taka
með sér tíu kíló í handfarangur.
Auk þess má yfirleitt taka með sér
í handfarangri, fyrir utan töskuna,
ferðatölvu, litla handtösku,
myndavél o.s.frv. en oftast er mælt
með því að farþegar taki verðmæti
með sér í handfarangur.
Sé maður hins vegar með
yfirvigt má gera ráð fyrir að borga
1-2 prósent af því sem dýrasta
almenna farrýmið kostar, fyrir
hvert aukakíló. Í Bandaríkjunum
er hins vegar greitt fast verð fyrir
hverja umfram einingu. ■
Ertu með yfirvigt?
Ferðalög geta alveg beðið betri tíma. Nú er
sá tími sem flestum þykir best að vera sem mest
heima hjá sér og slappa af.
Trafalgar-torgið í London.
Fjórði kortadiskur Landmæl-
inga er kominn út. Með útgáf-
unni hafa Landmælingar lokið
útgáfu allra helstu kostaflokka
á rafrænu formi en nú eru 240
kort fáanleg á geisladiskum.
Á diskinum er að finna 102 svokölluð
DMA-kort (American Defence
Mapping Agency) í mælikvarðanum
1:50.000 af miðhálendinu, Suður-
landi og Norðurlandi. Þar að
auki er ferðakort af landinu öllu
í mælikvarðanum 1:500.000 með
nýjustu uppfærslum og viðbótum.
17.000 örnefni eru á kortinu og
hefur leitarkerfi þeirra verið bætt
verulega.
Með notkun tölvutækninnar
er auðvelt að mæla fjarlægðir
og flatarmál á kortunum og
auðvelt er að tengja GPS-tæki
við kortin. Diskurinn er að fullu
samhæfður eldri kortadiskum frá
Landmælingum. ■
Nýr kortadiskur frá
Landmælingum
Þriðja lota miðasölunnar fyrir
heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu í Þýskalandi á næsta
ári hófst í þessum mánuði.
Þeir sem ætla að gera sér ferð til
Þýsklands næsta sumar til þess að
verða vitni að mestu knattspyrnu-
veislu sem um getur geta nú farið
á netið og reynt að krækja sér í
miða. Í mánuðinum hófst nefni-
lega þriðja lota í sölu aðgangsmiða
á einstaka leiki keppninnar. Um er
að ræða 250 þúsund miða og hægt
er að fá miða fyrir á hvern einasta
leik keppninnar fyrir utan opnun-
arleikinn.
Tímasetning miðakaupanna
hefur hins vegar ekkert vægi.
Salan á þessum miðum stendur til
15. janúar og ef eftirspurn verður
meiri en framboð verður einfald-
lega dregið um hver fær miðana.
Þannig að það er í raun ekki hægt
að tala um miðasölu, öllu heldur er
hér um umsókn að ræða.
Þannig að það má byrja að
skipuleggja ferð til Þýskalands
næsta sumar, bara ekki hvert
innan Þýskalands á að fara eða
hvenær. ■
Fleiri miðar
komnir í sölu
Allianz Arna í München er einn vettvangur
HM í Þýskalandi á næsta ári.
Það er langur vegur frá þessu landakorti
Henderson frá 1818 til landakorta Land-
mælinga í dag.