Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 38
VERT ER AÐ FYLGJA EFTIRTÖLDUM RÁÐUM TIL
AÐ VIÐHALDA MINNINU OG EFLA.
● Stundaðu líkamsrækt. Líkamlegt heil-
brigði og andlegt heilbrigði haldast í
hendur.
● Gefðu heilanum verkefni. Lestu bækur,
lærðu nýja hluti, leystu þrautir eða hvað
sem er sem heldur huganum sterkum.
Mundu að heilinn er eins og vöðvi að því
leyti að hann þarf að þjálfa.
● Lærðu utan að. Veldu uppáhalds ljóð-
ið þitt eða texta og lærðu hann utan að.
Farðu með textann reglulega í huganum.
● Ekki reykja. Rannsóknir hafa sýnt að
reykingafólk gleymir andlitum og nöfn-
um hraðar en þeir sem reykja ekki.
● Borðaðu vel. Með því að huga vel að mataræðinu heldurðu heils-
unni lengur og getur komið í veg fyrir að fá sjúkdóma sem hafa slæm
áhrif á minnið.
● Fáðu nægan svefn. Reyndu að ná að minnsta kosti átta tíma svefni
á nóttu svo heilinn fái nægan tíma til að vinna úr því sem hann lærði
yfir daginn.
● Rifjaðu upp. Eftir að hafa horft á bíómynd eða lesið bók skaltu rifja
upp söguþráðinn í huganum.
● Treystu á sjálfan þig. Lærðu að muna hluti eins og símanúmer,
heimilisföng og nöfn í stað þess að treysta bara á minnið í símanum.
Auðveldasta leiðin er ekki alltaf sú besta.
2
Ökunám í fjarnámi !!!!
Hjá Ekil ökuskóla getur þú tekið bóklegt
ökunám heima í tölvunni. Þægilegur kostur
að geta unnið námskeiðið þegar þér hentar.
Skoðaðu þetta á ekill.is
Ekill ökuskóli býður einnig upp á aukin
ökuréttindi, skráningar á næstu námskeið
eru þegar hafin.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800
www.ekill.is ekill@ekill.is
„Það er magnað að lesa verk Thors,
þau kalla á mikla athygli og jafn-
framt á nokkuð öðruvísi lestur en
við eigum að venjast í hefðbundn-
um skáldsögum,“ segir Ástráð-
ur Eysteinsson, sem mun stjórna
námskeiðinu Dögum mannsins hjá
Mími, sem fjallar um verk Thors
Vilhjálmssonar. Hann segir marga
finna fyrir viðnámi í verkum Thors
en hann ætli að velta fyrir sér
hvernig ritverk þetta séu og stöðu
lesendans gagnvart þeim. „Thor
gerir kröfur til lesandans en ég ætla
að fjalla dálítið um það og vonandi
losnar eitthvað úr læðingi,“ segir
Ástráður.
Námskeiðið kom að einhverju leyti
til vegna ritþings sem haldið verður í
Gerðubergi 21. janúar, þar sem fjall-
að verður um verk Thors. Samhliða
því verður sett upp sýning á verkum
hans í Gerðubergi og mun einu af
þeim fjórum kvöldum sem námskeið-
ið spannar vera varið á sýningunni
þar sem Harpa Björnsdóttir myndlist-
armaður mun leiða þátttakendur um
sýninguna, í einhverjum tengslum
við ritverkin. „Hin þrjú kvöldin verða
í mínum höndum, þar sem fyrirlestr-
um og umræðum er blandað saman
auk þess sem Thor sjálfur mun kíkja
í heimsókn auk annarra góðra gesta,“
segir Ástráður.
Hann segist ekki ætla að setja upp
neina leslista, enda sé námskeiðið
stutt og fólk eigi misgott með að lesa
mikið, en námskeiðið eigi bæði að
höfða til þeirra sem þekkja verk Thors
og þeirra sem eru að kynnast þeim í
fyrsta sinn. „Ég verð með textadæmi
sem ég legg til að fólk lesi og ef fólk
getur lesið heilu skáldsögurnar fellur
það vel inn í.“ Af nógu er að taka,
enda hafa komið út eftir Thor ríflega
þrjátíu frumsamdar bækur og fjöld-
inn allur af þýðingum og hann er
enn að. Fyrsta bók Thors, sem heitir
Maðurinn er alltaf einn, kom út árið
1950 og teygir ferill hans sig því yfir
meira en hálfa öld.
Mögnuð og kröfuhörð verk
Dagar mannsins er heiti á námskeiði hjá Mími sem Ástráður Eysteinsson prófessor mun
stjórna í samstarfi við Menningarmiðstöð Gerðubergs.
„Thor gerir kröfur til lesandans, en ég ætla að fjalla dálítið um það og vonandi losnar eitthvað úr læðingi,“ segir Ástráður. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nám við Tungumálamiðstöðina er opið
öllum nemendum Háskóla Íslands auk
þess sem kennarar við skólann sækja
þar endurmenntunarnámskeið.
Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöð-
umaður miðstöðvarinnar, segir námið
fyrst og fremst vera nemendastýrt.
„Nemendur geta skráð sig á námskeið
sem metin eru til eininga og þá njóta
þeir fulltingis tungumálakennara sem
þeir hitta reglulega. Annars er miðstöð-
in opin nemendum og starfsmönnum
HÍ daglega. Þangað geta þeir komið og
hafa óheftan aðgang að öllum okkar
gögnum.“
Í miðstöðinni standa til boða
erlendar sjónvarpsstöðvar, kvikmynd-
ir, bækur, hljóðbækur, orðabækur og
ógrynni af öðrum námsgögnum.
Boðið er upp á nám í sex tungu-
málum; ensku, dönsku, þýsku,
frönsku, spænsku og ítölsku. Segir
Eyjólfur námið nýtast þeim sérstak-
lega vel sem vilja viðhalda þeirri
kunnáttu sem þeir öfluðu sér í fram-
haldsskóla.
Eyjólfur segir að reynt sé að
tengja tungumálanámið sérsviði
hvers og eins í háskólanum. Þannig
geti heimspekinemi til dæmis lesið
heimspekirit á tungumáli að eigin
vali. Þetta geti komið að meira gagni
en að sitja almenn námskeið í við-
komandi tungumálum.
Í Tungumálamiðstöðinni er einnig
hægt að taka tvenn stöðupróf í erlend-
um málum, Deve-prófið í spænsku og
TestDaF-prófið í þýsku, en innganga
í þýska háskóla er háð því skilyrði að
umsækjandi hafi staðist það próf.
Tungumálamiðstöðin er í kjall-
ara Nýja garðs og er opin frá átta að
morgni til sex síðdegis.
Ókeypis fyrir nemendur HÍ
Nemendur við Haskóla Íslands eru svo sannarlega ekki á flæðiskeri staddir hvað varðar
námsframboð. Í Tungumálamiðstöð HÍ er hægt að leggja stund á tungumálanám sam-
hliða öðru námi.
Eyjólfur Már
Sigurðsson,
forstöðumaður
Tungumálamið-
stöðvarinnar, býður
háskólanemum nám
í sex tungumálum.
Eðlilegt er með aldrinum að minnið
fari að bila og er áberandi minnis-
leysi oft merki um öldrun. Minn-
isleysi getur samt sem áður herjað
á fólk á öllum aldri, í mismiklum
mæli þó. Allir verða fyrir því að
gleyma hlutum og sumir eru þekktir
fyrir að vera utan við sig og muna
ekki neitt. Smávægilegt minnisleysi
þarf hins vegar ekki að vera neitt
áhyggjuefni enda getur það stafað
af þeirri einföldu ástæðu að hugur-
inn dvelur við mikilvæg úrlausnar-
efni og í þeim efnum er oft talað um
fólk sem algera prófessora.
Þrátt fyrir að ellin sé alræmd
fyrir að ræna fólk minninu er hægt
að skjóta henni ref fyrir rass með
því að halda minninu og sjálfum
sér í góðri þjálfun. Líkamlegt heil-
brigði skiptir öllu máli. Helst eru
það sjúkdómar eins og alzheimer
eða vandamál eins og svefnleysi,
of hár blóðþrýstingur eða fall á
estrógenmagni líkamans sem geta
haft áhrif á minnið.
Í námi skiptir gott
minni sköpum
Enginn vafi leikur á því að minnið er okkur afar dýr-
mætt enda er það hluti af því hver við erum og okkur
nauðsynlegt til að lifa eðlilegu lífi.