Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 40
4
Myndlestur kom fyrst fram á sjónar-
sviðið í Bandaríkjunum fyrir tuttugu
árum og er nú kenndur í 31 landi.
Myndlesturinn er sagður henta
öllum sem hafa áhuga á að geta lesið
mikinn texta vel á stuttum tíma.
„Myndlestur er miklu öflugri en
það sem yfirleitt er kallað hraðlestur,“
segir Jóna Björg Sætran, uppeldis- og
menntunarfræðingur og eini viður-
kenndi myndlestrarkennari landsins.
„Háskólanemar sem lokið hafa hjá
mér námskeiði tala hreinlega um lífið
fyrir og eftir myndlestur.“
Jóna segist alls ekki hafa haft trú á
aðferðinni í fyrstu. „Ég kynntist þessu
af tilviljun fyrir fáeinum árum og þá
fannst mér þetta svo lygilegt að ég
afskrifaði þetta án umhugsunar.“ Hún
hefur hins vegar orðið áþreifanlega
vör við það í sínu starfi hve margir
flosni upp úr námi vegna erfiðleika
með að þröngva sér í gegnum doðr-
antana sem námið krefst. Því ákvað
hún að skoða myndlesturinn nánar
og komst snemma að því hversu vel
hann reyndist.
„Flestir þrefalda hraðann strax
eftir námskeiðið en það sem ger-
ist líka er að einbeitingin magnast
og skilningurinn á efninu eykst til
muna,“ segir Jóna. „Þetta byggist í
raun á því að maður notar undir-
meðvitundina á meðvitaðan hátt.“
Myndlesturinn er fimm þrepa
ferli sem hefst á slökun og undir-
búningi. Seinna er textinn lesinn
með svokölluðum myndafókus,
þannig að horft er á textann eins
og um mynd sé að ræða. Fyrst
þegar þetta hefur verið gert finnst
lesandanum hann ekkert muna en
það kemur síðan í ljós þegar efnið
er rifjað upp að hann kannast við
megnið eftir skimunina.
„Það eru ekki nema 4 til 11% af
efni texta sem skipta raunverulega
máli fyrir merkingu hans. Afgang-
urinn er bara uppfyllingarefni sem
notað er til að gera textann læsilegri
og fallegri. Myndlestrinum er ætlað
að sía merkinguna úr textanum á
sem fljótlegastan hátt,“ segir Jóna
og bætir við að þessi tækni geti
meira að segja hjálpað lesblindum
að yfirstíga mörg sinna vandamála.
„Ég hef ekkert fengið nema góð
viðbrögð frá öllum sem hafa setið
námskeiðið hjá mér.“
Gylfi Sigurðsson sat námskeið-
ið hjá Jónu og staðfestir allt sem
hún segir. „Þetta virkar. Það er ekki
nokkur spurning,“ segir hann. „Ég
get lesið texta á örfáum klukkutím-
um sem tók mig áður tvær eða þrjár
dagsstundir að komast í gegnum og
skilningurinn er mun betri.“
Námskeiðin eru fimmtán klukku-
stundir og ný námskeið hefjast um
miðjan janúar.
Jóna Björg Sætran myndlestrarkennari.
Þátttakandi í námskeiðinu niðursokkinn í
undirbúning.
Í Öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð má finna manneskj-
ur af öllum stærðum og gerðum á
öllum aldri - og jafnvel einhverjar
sem ekki líta á námið sem starfs-
þjálfun eða aðgöngumiða að fram-
haldsnámi, heldur njóta einfaldlega
fræðslunnar.
Ida Semey, deildarstjóri Öldunga-
deildarinnarinnar, segir að reglu-
lega útskrifist fólk úr deildinni sem
löngu hafi yfirgefið atvinnuheiminn
og hyggist tæplega snúa þangað
aftur. Nú síðast í haust hafi kona á
áttræðisaldri útskrifast úr deildinni
með stúdentspróf.
Deildin tekur einnig á móti fjöl-
mörgum sem hafa ákveðið að ljúka
loks framhaldsnámi eftir ára- eða
áratugalanga fjarveru frá námi.
Öldungadeildin er þægilegur kostur
fyrir þá sem vilja stjórna námsyfir-
ferðinni vegna þess að engar kröfur
eru gerðar um lágmarkseininga-
fjölda hverja önn.
Algengt er að ellilífeyrisþegar leggi
stund á háskólanám ánægjunnar
vegna og það hlýtur að teljast góð leið
til að verja ævikvöldinu, að minnsta
kosti síst verri en hver önnur.
Næst þegar eitthvert unglambið
barmar sér yfir seinagangi í námi
væri réttast að benda á þessar stað-
reyndir. Tíminn er nægur.
Aldrei of seint að læra
Það er aldrei of seint að næla sér í menntun eða afla sér fróðleiks og þá gildir einu
hvaða menntunarstig um ræðir.
Nám samhliða starfi nýtur vin-
sælda nú sem aldrei fyrr. Endur-
menntun Háskóla Íslands, sem
hefur starfað í rúm tuttugu ár, er
einn af þeim fjölmörgu kostum
sem námsfúsir á vinnumarkaðin-
um hafa úr að velja.
Í vor býður Endurmenntun
upp á nýtt námskeið um erfið
samskipti íslamskra ríkja við
Vesturlönd sem kallast Átök sið-
menningarsvæða. Á námskeiðinu
verða róttækar pólitískar hreyf-
ingar múslima skoðaðar, þróun
hugmyndafræðinnar rakin og
fjallað um heimsmynd múslima
og viðhorf þeirra til vestrænna
samfélaga.
Uppgangur þessara róttæku
hreyfinga verður metinn á guð-
fræðilegum, félagslegum, efna-
hagslegum og pólitískum for-
sendum og hið svokallaða stríð
gegn hryðjuverkum verður brot-
ið til mergjar.
Annað nýtt námskeið sem
verður í boði í vor er útivistar-
námskeiðið Á vit náttúrunnar,
þar sem farið verður yfir undir-
stöðuatriði fjölskylduvænnar úti-
vistar. Farið verður kerfisbundið
í allar tegundir útivistar við sem
ólíkastar aðstæður og nauðsyn-
legur búnaður og undirbúningur
kannaður. Rætt verður um til-
gang og siðfræði útivistar auk
þess sem vísað verður á heppileg
útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar um þessi
námskeið og mörg fleiri má finna
á vef Endurmenntunar, endur-
menntun.is.
Íslam og útivist
Þessir hafa kannski sótt bæði útivistar- og íslamnámskeiðið hjá Endurmenntun?
Miklu öflugri en hraðlestur
PhotoReading, eða myndlestur, er lestrar- og námstækni sem nú stendur Íslendingum
til boða að læra í fyrsta sinn. Með aðstoð hans má margfalda lestrarhraðann og auka
skilning á efninu.
■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
“Kom skemmtilega á óvart. Mjög vel skipulögð og góð
kennsla. Frábær kennari og gott námsefni!”
Aldís Einarsdóttir, 39 ára Háskólanemi.
...næsta námskeið hefst 30. janúar
...SELFOSS 25. janúar
Skráning er hafin á www.h.is
og í síma 586-9400.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, nytsamlegt,
áhugavert, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott,
þægilegt, lipurð, skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari,
spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.