Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 49

Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 49
13■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { skólar og námskeið } ■■■■ Margir eiga erfitt með að halda sér við efnið þegar lesnar eru lang- ar námsbækur eða vinna ritgerðir aldrei fyrr en nóttina fyrir skiladag. Flestir kannast við það að hafa ein- hvern tíma verið kvíðnir fyrir próf og finnast þeir ekki muna nægilega margt. Á vef Námsgagnastofnunar má finna ítarlegar leiðbeiningar um námstækni á slóðinni nams.is/nam- staekni. Þar er meðal annars farið í minni og einbeitingu, prófkvíða, jákvætt hugarfar, glósur, ritgerða- smíð og tímaskipulag og fólki leið- beint í því skyni að bæta námsár- angurinn. Öllum óöruggum námsmönn- um er bent á að sækja sér hjálp á síðuna og vonandi mun það hafa jákvæð áhrif á nám sem flestra. Bættu námstækni Eflaust er hægt að komast að því á vefn- um hvort þessi lestrarstaða er vænleg til árangurs. Námskeiðið Viltu verða Idol stjarna er haldið hjá Námsflokkum Hafnar- fjarðar í vetur. Aðalmarkmið nám- skeiðsins er að leyfa þáttakendum að fyrst fá verulega útrás fyrir söng- og tjáningaþörf sína. Þátttak- endum verður leiðbeint hvað varð- ar raddbeitingu, öndun, lagaval og framkomu svo dæmi séu tekin. Kennt í alvöru söngkerfi. Frekari upplýsingar: bellag@simnet.is. Idol-stjarna „Ein nýjungin okkar í vetur er nám- skeið haldið með aðstoð þjálfara frá erlendu fyrirtæki sem tekur mið af leiðtogahæfileikum pólfarans Ernests Shackleton,“ segir Hildur Elín Vignir, forstöðumaður þjálf- unarlausna hjá IMG. Shackleton þessi þótti sýna fádæma leiðtoga- hæfileika þegar skip hans strand- aði á Suðurskautslandinu snemma á síðustu öld og áhöfnin þurfti að hafast þar við í tvö ár áður en hún bjargaðist. Námskeiðahald IMG hefur verið í þróun í níu ár og nýjungarnar eru enn fleiri. „Skrifstofufærni er nýtt námskeið hjá okkur. Þar kenn- um við hinum almenna skrifstofu- manni framkomu, þjónustu, mark- miðasetningu, verkefnastjórnun og fleira.“ Flest námskeiðin á vegum IMG eru stjórnunar- eða rekstrartengd en einnig eru ýmis námskeið í boði fyrir fólk sem vill bæta persónu- lega færni, meðal annars skapandi hugsun og fjölmiðlaframkomu. „Svo höldum við eitt námskeið sem heitir „Á leið út í atvinnulífið“ og er ætlað fólki á leið úr námi í vinnu,“ segir Hildur. Eftir námskeið fær fólk í hend- urnar skjal sem staðfestir þátt- tökuna. Hildur segir eftirspurn- ina sívaxandi og að oft sé litið til námskeiðasetu sem þessarar þegar kemur að atvinuumsóknum. Þorri námskeiða IMG er ein- ungis haldinn ef eftirspurnin er nægjanleg eða ef fyrirtæki óska sérstaklega eftir því. Nokkur opin námskeið standa þó öllum til boða hverja önn auk lengri námsleiða sem eru nokkrir tugir klukkustunda að lengd. Litið til námskeiðasetu við mannaráðningar IMG er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins og hefur á boðstólum fjöldann allan af námskeiðum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Áhugasamir námskeiðsgestir skemmta sér og fræðast. 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.