Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 66
14
ATVINNA / TILKYNNINGAR
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
KÓPAVOGSBÆR
Auglýsing um skipulag í Kópavogi.
Hlíðarvegur 7. Deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga að
deiliskipulagi lóðarinnar nr. 7 við Hlíðarveg. Í
tillögunni felst að einnar hæða einbýlishús byggt
úr holsteini árið 1940 er rifið og í þess stað byggt
tveggja hæða parhús með tveimur innbyggðum
bílskúrum. Grunnflötur er áætlaður allt að 300
m2 og nýtingarhlutfall allt að 0,5. Tillagan er sett
fram á uppdrætti í mkv. 1:500 ásamt greinargerð
og skýringarmyndum dags. 13. desember 2005.
Nánar vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga verður til sýnis á
Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá
kl. 8.00 til 16.00 mánudaga til fimmtudaga og á
föstudögum frá 8.00 til 14.00 frá 9. janúar til 6.
febrúar 2006. Upplýsingar um tillöguna eru
einnig á heimasíðu bæjarins www.kopavogur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist
skriflega bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15.00
mánudaginn 20. febrúar 2006. Þeir sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunum.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og
trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna
fyrir starfsárið 2006 til 2007.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar, á skrifstofu
félagsins að Borgartúni 30, 105 Reykjavík ásamt
meðmælum a.m.k. 100 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 21 til viðbótar í
trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar
og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 17:00
þriðjudaginn 17. janúar 2006.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Tollkvótar vegna innflutnings
á nautgripa- og alifuglakjöti.
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr.
99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar, dags. 4. janúar 2006, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta
vegna innflutnings á nautahakki og kjúklinga-
kjöti, fyrir tímabilið 5. janúar til 30. júní 2006.
Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðuneytinu
á skrifstofutíma frá kl. 9:00 – 16:00. Skriflegar
umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðu-
neytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir
kl. 15:00 miðvikudaginn 11. janúar n.k.
Landbúnaðarráðuneytinu, 5. janúar 2006.
35-36/61-67 (07-15) Smáar 6.1.2006 14:49 Page 10