Fréttablaðið - 07.01.2006, Page 72
Leikarar
Ólafur Steinn Ingunnarson
útskrifaðist síðasta vor, og var það
besta við leikritið Frelsi sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu. Ólafur mun
áfram birtast á fjölum leikhúss
allra landsmanna, og var nú
síðast í Túskildingsóperunni.
Nemendaleikhúsið setti í haust upp leikritið Forðist okkur byggt
á teiknimyndasögum Hugleiks Dagssonar og Þrjár systur eftir
Tsjekhov, og hefur hópurinn uppi hugmyndir um að halda sam-
starfi áfram að útskrift lokinni í anda Vesturports, Annars virðist
leiðin að leikhúslífi Reykjavíkur liggja í gegnum Akureyri þessa
dagana. Norðanstrákarnir Jói og Gói verða báðir í Litlu hryll-
ingsbúðinni. Maríanna Clara Lúthersdóttir var þar í stóru
hlutverki í fyrra og Vigdís Pálsdóttir fer norður seinna
í mánuðinum. Sú leikkona sem hefur slegið hvað mest í
gegn á undanförnum mánuðum er Halla Vilhjálmsdóttir,
sem útskrifaðist nýlega frá RADA leiklistarskólanum í
London og er einnig með 5. stig í söng. Hennar fyrsta
hlutverk eftir heimkomuna er eitt aðalhlutverkið í
jólaleikriti Þjóðleikhússins. Anita Briem útskrifaðist
einnig frá RADA og er til alls líkleg. Parið Ólafur Egill
og Esther Talia Casey eru búin að koma sér nokkuð
vel fyrir og eru við það að vaxa upp úr að teljast ein-
ungis efnileg, Og Arnbjörg Hlíf útskrifaðist fyrir ein-
ungis þremur árum en er þegar orðin fastur punktur í
leikhúslífi þjóðarinnar.
Fyrir ekki löngu síðan þekktu allir alla á Íslandi og enginn stóð upp úr samfélaginu nema stöku ráðherra og kaupmaður sem
fólk hneigði sig fyrir ef þeir sáust á götum úti. Nú er öldin önnur, þeir sem þykja fallegri, ríkari og í sumum tilfellum jafnvel
hæfileikaríkari en aðrir ganga um bæinn með jötunsskrefum, standa í sviði í London, kaupa Búlgaríu og leikstýra heimsfrægum
leikurum, Heill iðnaður hefur sprottið upp í kringum hin útvöldu, sem sýna okkur hvernig þau búa, hvar þau skemmta sér og
hvenær þau skilja. En hverjir eru líklegir til að komast í hóp hinna útvöldu á næsta ári?
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR32
GABRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR LISTAMAÐUR
ARNBJÖRG HLÍF VALSDÓTTIR LEIKKONA
DAGUR KÁRI PÉTURSSON LEIKSTJÓRI
ELÍN HANSDÓTTIR MYNDLISTARNEMI
ÞORLEIFUR ÖRN ARNARSSON, LEIKARI OG
LEIKSTJÓRI
ÓLAFUR STEINN INGUNNARSSON
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR SKÁLD
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR SKÁLDKONA, HÖF-
UNDUR KJÖTBÆJARINS
ÞÓRIR TRÚBADOR
Tónlist
Mikið er að gerast í tónlist eins og
vanalega, þótt alltaf sé löng bið
á því að það besta rati í útvarp og
yfirleitt þarf útlendinga til að upp-
götva íslensku neðanjarðarsenuna.
En Músiktilraunir ná enn að vera
ágætis mælikvarði á það besta úr
bílskúrunum. Enn er beðið með
eftirvæntingu eftir fyrstu plötu
sigurvegaranna 2004, Mammút.
Sigurvegararnir í fyrra, Jakobínar-
ína, hafa verið á fljúgandi keyrslu,
hituðu upp fyrir White Stripes og
hafa fengið lag í spilun, en eiga enn
eftir að leggja lokahönd á frumburð
í fullri lengd. Önnur Músíktilrauna-
hljómsveit sem hefur vakið forvitni
tónlistaráhugamanna er We Painted
Walls, sem samanstendur af þeim
Loga og Júlíu sem kynntust við að
mála veggi sumarið 2004. Útlitslega
minna þau í fyrstu á White Stripes,
en tónlistarlega eru þau meira í ætt
við Belle and Sebastian, og hefur
þeim verið lýst sem nokkurskonar No Wave
kántríindí. Bertel hafa líka tekið þátt í til-
raunum, og byrjuðu sem dauðarokkarar en
eru nú að færast í áttina að synthpoppi ala
Hot Chip. Þórir hefur einnig verið nefndur
til sögunnar, en eftir aðra plötu sína telst
hann fremur góður en efnilegur. Hölt hóra
er ein besta tónleikasveit bæjarins, en á
enn eftir að koma því til skila á plötu.
Listafólk á leiðinni inn
Bækur
Nýhil-verksmiðjan hefur verið
að framleiða efnilega höfunda á
færibandi. Eiríkur Norðdal gaf út
fyrstu skáldsögu sína, Hugsjóna-
drusluna, fyrir þarsíðustu jól, og
Ófeigur gaf út sína fyrstu fyrir
síðustu undir merkjum Traktors,
Óttar M. Norðfjörð gaf út skáld-
söguna Barnagælur á vegum
Eddu og Kristín Eiríks gaf út
ljóðabókina Kjötbæinn í fyrra hjá
Bjarti. Öll hafa þau áður tekið þátt
í ljóðaútgáfu Nýhils. Eitt efnileg-
asta skáld hópsins, Haukur Már, á
þó enn eftir að gefa út frumraun í
fullri lengd.
Tveir af þeim sem vöktu hvað
mesta athygli með fyrstu skáldsög-
unum sínum fyrir jól eru Stefáns-
bræður Hermann og Jón Hallur.
Fyrsta bók Hermanns, Sjónhverf-
ingar, var á mörkum skáldskapar
og fræðimennsku og með Stefnu-
ljós sýnir hann enn tvístígandi við
skáldsöguheiminn, en stórir hlutir eru í vænd-
um ef hann tekur skrefið til fulls. Jón Hall-
ur hefur verið útnefndur Krónprins Bjart-
smanna og vona menn þar á bæ að hann
taki við kórónu Vetrarkóngsins Arnalds í
Þýskalandi. Jón Atli Jónasson hefur enn
sem komið er unnið stærri sigra í leikrit-
un en skáldskap, en er til alls vís. Fyrsta
bók Eiríks Bergmanns Einarssonar,
Glapræði, er kölluð skemmtisaga, og
spurning hvað gerist ef hann fer að
taka sig alvarlega, því fyrsta bókin
var vissulega nokkuð skemmtileg.
Birgittu Jónsdóttur tókst eftir mikið
puð að koma frumraun sinni, Dag-
bók Kamelljónsins, frá sér og hefur
hún fengið ágætis viðtökur. Sölvi B.
Sigurðsson gef út sína fyrstu skáld-
sögu, Radíó Selfoss, fyrir tveimur
árum en i ár kom út Gleðileikurinn
djöfullegi, sem er nokkurskonar
prósaljóð. Yrsa Sigurðardóttir gaf
út sitt fyrsta fullorðinsverk fyrir
jólin og er eiginlega strax orðin
stórstjarna, en er komin yfir fer-
tugt og telst varla til ungskálda.
Guðrún Eva Mínervudóttir er lík-
lega sá rithöfundur undir þrítugu
sem mest kveður að, hefur verið
að gefa út skáldsögur jafnt og
þétt í sjö ár og menn telja nýjasta
verk hennar, Yosoy, vera það besta
hingað til.
Baksviðs
Börkur Jónsson þykir afar efni-
legur leikmyndateiknari og hefur
starfað með Gísla Erni Garðars-
syni. Einnig telja menn að Drífa
Ármannsdóttir eigi framtíðina
fyrir sér í leikmyndahönnun.
Kristín Eysteinsdóttir skrifaði
leikrit sem sett var upp í Klink
og bank í sumar og fékk góð við-
brögð. Þorleifur Arnarsson átti
öfluga frumraun þegar hann leik-
stýrði 1984 fyrir Stúdentaleikhús-
ið og lokaði leikaranna inni til að
láta þá fá tilfinningu fyrir fanga-
vist. Frumraun hans í leikritun,
American Diplomacy, var nokkuð
brokkgeng, en gaf fyrirheit um
bjarta framtíð. Þorleifur er nú við
nám í Berlín og spennandi verð-
ur að sjá hvað gerist þegar hann
kemur aftur heim. Jón Páll leik-
stýrði Frelsi í Þjóðleikhúsinu og
er að fara að setja upp Ladybird
á Akureyri. Hann sló í gegn í
fyrra með uppsetningu sinni á
„Þú veist hvernig þetta er“
hjá Stúdentaleikhúsinu
sem var valin besta
áhugamannasýning
ársins. Þórdís Elva
Bachmann hefur
verið að skrifa leik-
rit, meðal annars
fyrir Hafnarfjarð-
arleikhúsið, sem
lofa góðu. Jón Atli
hefur verið rödd ungs
íslensks leikhúss upp á
síðkastið og ekki annað
líklegt en að aldurinn
fari honum einnig vel.
Myndlist
Ásmundur Ásmundsson lærði myndlist í LHÍ og School
of Visual Arts í New York. Verk Ásmundar ganga oft
gegn hefðum og venjum listarinnar, og hann starfar
í Reykjavík jafnt sem Berlín, en Berlín virðist vera
einhver helsta gróðrarstía íslenskra listamanna utan
Reykjavík 101. Þórdís Aðalsteinsdóttir hefur einnig
lært í sama skóla í New York og starfar mest þar í
borg. Hún hefur sýnt í Stux galleríinu og fengið
lofsamlega dóma. Myndir hennar sameina
einfaldleika hversdagsins og draum-
heima. Magnús Árnason dvelur frem-
ur í martröðum en draumum, og verk
hans eru full af myrkum furðuverum,
svo sem sköpunarverki hans Bene-
dikt, sem reis upp úr hraunstraumi. Á
listahátíð í sumar sýndi hann verkið
„Metamorphosis,“ þar sem hann fláði
fugla í bakgarði. Elín Hansdóttir er
annar Berlínarbúi og var yngsti
þátttakandinn á listahátíð í vor.
Gabríela Friðriksdóttir er yngsti
listamaður Íslands til að vera send á
Bienale-hátíðina í Feneyjum, þar sem
hún hlaut mikla athygli.
Kvikmyndagerðarmenn
Endurnýjunin er hæg þegar
kemur að kvikmyndagerðarmönn-
um, þar sem mikið basl er að geta
sett saman og fjármagnað heila
bíómynd. Því líða oft mörg ár milli
verka, og menn eru lengur á list-
anum yfir efnilega hér en annars
staðar áður en þeir komast alla
leið. Í raun telst Baltasar Kormá-
kur enn efnilegur kvikmynda-
gerðarmaður á flesta mælikvarða,
með einungis þrjár myndir undir
belti, þó hann sé löngu orðinn
stofnun á Íslandi.
Allir virðast vera að gera
heimildamyndir þessa dagana, en
myndir Poppolímanna, svo sem
Africa United og Blindsker, standa
upp úr í þeim bransa. Þeir Ragn-
ar Santos, Ólaf Jóhannesson og
Benedikt Jóhannesson eru þríeyki
sem á mikið eftir að kveða
að, hvort sem það verður saman eða hver í sínu lagi. Ragn-
ar Bragason hefur ekki gert kvikmynd í fullri lengd
síðan Fíaskó, en hann gerði heimildamyndina
Love is in the Air um Vesturport. Og samstarf
hans við Vesturport heldur áfram með hinni
væntanlegu mynd Börn. Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir gerði hina bráðfínu heimildamynd
Hrein og bein, og gaman verður að sjá hvað hún
gerir næst. Reynir Lyngdal missti
af Mýrinni, en mögulega verður
sárabótamyndin meira en bara
uppbót. Þrátt fyrir aðeins
tvær bíómyndir í fullri lengd
hefur Dagur Kári þegar
stimplað sig inn sem einn
af helstu kvikmyndar-
gerðarmönnum þjóð-
arinnar.
Fyrir alla þá sem
eru ekki á þessum
lista en eigið það skil-
ið; þið vitið hver þið
eruð.JÓN ATLI JÓNASSON RITHÖFUNDUR
REYNIR LYNGDAL LEIKSTJÓRI