Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 83
 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR43 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 62 43 10 /2 00 4 debenhams S M Á R A L I N D debenhams útsalan af enn meiri krafti Allar útsöluvörur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 3 08 90 01 /2 00 6 50 afsláttur% Natalie Portman er lítil og fíngerð og með eitt fallegasta andlitið í Hollywood. Hún klæðir sig sér- lega smekklega en samt er erf- itt að átta sig á því hvort það sé ekki bara þessi dásamlega fegurð hennar sem smitast yfir á allt sem hún klæðist. Margir ráku upp stór augu þegar Natalie birtist skyndi- lega með krúnurakað höfuð en hún lét hárið nýlega fjúka fyrir myndina V for Vendetta. „Ég er hrifin af þessum hárstíl. Mér finnst það mjög sjálfstætt þegar konur fara á móti straumnum og eru ekki þessar venjulegu fal- legu stúlkur sem stráka dreym- ir um, með sítt liðað hár,“ segir hún ánægð þó að aðdáendur hennar séu ekki allir sáttir við hármissinn. Natalie er ávallt afar glæsileg á frumsýningum og eftirlætishönnuðir hennar eru Zac Posen og Isaac Mizrahi. Henni líður þó best í gallabuxum, stuttermabol og strigaskóm. „Ég held að ég muni aldrei sjást í háum hælum á venjulegum degi,“ segir hún. „Ég elska strigaskó og á örlítið safn af skóm frá Converse, Adidas og Puma,“ segir Natalie, sem er svo mikill dýravinur að hún gengur hvorki í leðurskóm né leðurfötum. GAMALDAGS Hér er hún í kjól í stíl þriðja áratugarins á frumsýningu Garden State. Litla fíngerða fegurðardísin LITRÍK Hér er hún í sætum grænum kjól og rauðum skóm við. L´occitane-vörurnar hafa slegið í gegn hér á landi en fáir geta stað- ist þessar gæðavörur sem oftar en ekki ilma dásamlega. Ein línan dregur heiti sitt af shea-trénu og allar vörurnar í línunni innihalda shea-olíu sem er unnin úr hnetum shea-trésins en í Burkina Faso í Afríku er tréð talið heilagt. Olían verndar, nærir og gefur raka en í línunni er að finna vörur fyrir and- lit, líkama, hendur, fætur og hár. Í gjafapakkningu frá L´occitane er að finna fjór- ar mismunandi vörur með shea- olíu. Sturtugelið í línunni er hægt að nota bæði fyrir húð og hár. Freyðandi gelið skilur húðina eftir mjúka sem silki og er einnig hægt að nota sem sjampó. Í gelinu er nátt- úruleg shea-olía, kókóshnetuolía og sojaprótín. Húðkremið er hin fullkomna uppskrift að silkimjúkri húð. Kremið er upplagt fyrir þurra eða mjög þurra húð og gefur húðinni raka án þess að skilja eftir klístraða áferð. Kremið inniheldur meðal annars hunangsextrakt, apríkósuolíu og E-vítamín. Shea-butter er eins konar feiti eða áburður sem endurnærir húð sem er þurr og skemmd eftir kulda, vind eða sól. Feitin mýkir, róar, endurnærir húðina og gefur henni raka. Einnig er hægt að nota salvann á varirnar. Að lokum er í línunni shea-sápan sem er eingöngu úr náttúrulegum hráefnum og er einstak- lega raka- gefandi og þurrkar ekki húðina. Töfralækning fyrir húðina SHEA FEITI Endurnærir skemmda húð og má nota hvar sem er. SHEA-SÁPA Þurrkar ekki húðina og er eingöngu úr náttúrulegum hráefnum. ULTRA RICH BODY CREAM Skilur húðina eftir silkimjúka. STURTUGEL Gelið er hægt að nota bæði á húð og hár. AFSLÖPPUÐ Henni líður best í gallabuxum og strigaskóm. Hér er hún á sýningu hjá hönnuðinum Marc Jacobs og hefur ekkert of miklar áhyggjur af útlitinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.