Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 84
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR44
STÚLKAN: „Ég er skóhönnuður að
mennt og lærði í Cordwainers Coll-
ege sem er hluti af London Colleges
of Fashion. Ég er framkvæmda-
stjóri og rek eigið fyrirtæki sem
heitir MKM-Footwear. Einnig er ég
ein af átta sem rek verslunina Verk-
smiðjuna og sel skóna mína þar.
Aðrar búðir sem selja skóna mína
eru Valmiki í Kringlunni, Anas í
Hafnarfirði, Móna á Laugaveginum
og Nordica Hotel verslun.“
FATASTÍLLINN: „Ég er oftast í
heldur þægilegum fötum sem eru
einföld í sniðum en oft eru einhver
smáatriði á þeim sem skreyta þau.
Fylgist líka ógurlega mikið með því
hvernig annað fólk klæðir sig og ég
elska að horfa á það hvernig fólk
setur fötin sín saman. Að sjálfsögðu
pæli ég mikið í skóm og er til dæmis
afskaplega hrifin af hönnuðinum
Manolo Blahnik. “
Á DAGINN: „Ég er oftast í gallabuxum
og er mikil stígvélamanneskja. Ég
er yfirleitt lítið eða ekkert máluð og
ég er nánast aldrei í pilsi á daginn.“
Á KVÖLDIN: „Þá mála ég mig aðeins
og fer kannski í pils og opna skó.
Mér finnst gaman að vera í svona
hælaskóm með böndum á kvöldin
þegar ég er að fara eitthvað fínt.“
MORGUNINN: „Það eru nánast engir
tveir morgnar eins. Ég fæ mér þó
yfirleitt hafragraut eða Cheerios í
morgunmat og tek lýsi. Svo fer litli
strákurinn minn bráðum að fara á
leikskóla og ætli morgnarnir verði
ekki í aðeins meiri rútínu þá.“
ÞRÍR HLUTIR SEM EINKENNA MARÍU:
„Í fyrsta lagi hugsa ég mikið á þeim
nótunum að allt reddist, ég er mikið
fyrir það mottó. Gallabuxur eru svo
annað sem einkennir mig því ég er
eiginlega alltaf í gallabuxum. Það
þriðja er hversu opin ég er. Mér
finnst rosalega gaman að tala við
fólk og það að tala við ókunnuga
manneskju gefur mér mjög mikið.“
BÚÐIR: „Ég verð að sjálfsögðu að
byrja á því að nefna Verksmiðjuna.
En annars finnst mér flottustu
búðirnar í dag vera niðri í bæ. Það
hafa margar áhugaverðar búðir
opnað nýlega eins og Trilogia, Rokk
og rósir og fleiri. Það þýðir samt
ekki að ég versli alltaf þar. Mest
versla ég á ferðalögum og þá versla
ég mikið á sjálfa mig..“
ÞRÁHYGGJA: „Skór. Ég spái rosalega
mikið í skó. Þegar ég hitti fólk eru
skórnir það fyrsta sem ég tek eftir.
Ég dæmi fólk þó ekki mikið út frá
skónum enda er það misjafnt eftir
aðstæðum hvernig skóm maður
klæðist. Það er samt sniðugt að eiga
skó fyrir hvert tækifæri og vera
ekki alltaf í trömpurum.“
SKARTGRIPIR: „Helsta skartið sem
ég nota eru belti og töskur. Ég
skreyti mig með þeim. Ég á rosa-
lega mikið af beltum og töskum og í
mörgum litum.“
HÁRIÐ: „Þessa dagana er ég
rosalega mikið með slegið hárið eða
með snúð á annarri hliðinni. Ég tek
svona tímabil. Annars erum við Óli
Boggi, klipparinn minn, að safna
hári núna. “
FARÐI: „Ég nota nánast engan farða
dagsdaglega. Er samt mikið fyrir
góðar vörur og nota til dæmis
kremlínuna Mirandas. Núna nota
ég líka Dior-maskara.“
FRÍ: „Skemmtilegast er að fara
þangað sem ég hef ég hef aldrei
komið áður. Sjá ný andlit, tala við
fólk og kynnast annarri menningu.
Það er alvöru frí. “
HEIMA: „Heimilið er ofsalega bjart
og ljóst. Við erum með mikið af
persónulegum hlutum sem skreyta
heimilið og þeir eru margir hverjir
frá ferðalögum eða frá okkur
fjölskyldunni.“
BARINN: „Ég er lítið í því að fara
á bari og eyði frekar tíma með
fjölskyldunni þegar ég er heima.“
DRYKKURINN: „Á barnum finnst
mér rauðvín best en dagsdaglega
drekk ég mest vatn, kaffi og te. Ég
drekk ekki gos.“
TÓNLIST: „Ég er hálfgerð alæta á
tónlist. En ef ég á að segja eitthvað
ákveðið þá verð ég að nefna soul-
tónlist og líka diskó sem mér finnst
algjört æði.“
BÆKUR: „Er að lesa tvær bækur
í augnablikinu. Brekkukotsannál
eftir Halldór Laxnes og Engla og
djöfla eftir Dan Brown. Ég kann vel
að meta þessa tvo höfunda.“
TÍMARIT: „Kaupi Vogue og Elle og
stundum Elle Decoration. Ítalska
útgáfan af Vogue er líka mjög góð.“
TÍSKUFYRIRMYND: „Margar frægar
konur eru töff eins og Sarah Jess-
ica Parker og Madonna. En mér
finnst engin vera alltaf flott og ég
fylgi ekki neinni ákveðinni fyrir-
mynd.
BORGIN: „Hong Kong er afskap-
lega skemmtileg borg. Ég hef einu
sinni komið til New York og fannst
hún æðisleg en svo fannst mér líka
Berlín geðveik. “
BOÐORÐ: „Að setja sér markmið.
Mér finnst það skipta miklu máli.
Enginn annar er ábyrgur fyrir
því sem maður gerir. Ég held
það sé nauðsynlegt að hafa smá
framtíðarsýn og taka ábyrgð á lífi
sínu.“
FRAMTÍÐIN: „Er rosalega bjartsýn á
framtíðina og horfi til hennar með
tilhlökkun. Ég hlakka til að takast á
við verkefni bæði í vinnu og í sam-
bandi við fjölskylduna.“
SMÁATRIÐI Hún er hrifin af einföldum
flíkum með fallegum smáatriðum.
TÖSKUR OG BELTI „Ég skreyti mig aðallega með töskum og beltum.“ MKM FOOTWEAR Hönnun Maríu má skoða
frekar á vefsíðunni www.mkm-footwear.com.
MARÍA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR Útskrifaðist sem skóhönnuður frá skóla í Bretlandi.
STÍLLINN HENNAR... MARÍU
Á milli þess sem hún ferðast um heiminn hannar hún dýrindis skófatnað
eða hefur það huggulegt með fjölskyldunni. Hún er af þeim átta sem reka
versluninna Verksmiðjuna. Hefur óstöðvandi áhuga á fólki og er opinn
og hressandi karakter. Borghildur Gunnarsdóttir fékk að vita meira um
skóhönnuðinn Maríu Kristínu Magnúsdóttur.
VERKSMIÐJAN María er ein þeirra sem reka búðina. Auk þess selur hún skó sína þar.
MINNINGAR
Á veggjum
heimilisins eru
ýmsir munir
úr ferðalögum
fjölskyldunnar.