Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 90
50 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Fyrir rúmum níu mán-
uðum var Melvin Scott að spila
fyrir North Carolina í úrslita-
rimmu bandarísku háskóladeild-
arinnar. 40 þúsund manns mættu
á opna æfingu liðsins og í úrslita-
seríunni, þar sem North Caro-
lina sigraði Illinois í sex leikj-
um, mættu að jafnaði 46 þúsund
manns á leikina. Eftir stutt stopp
í grísku og þýsku úrvalsdeildinni
fyrr í vetur er Melvin genginn til
liðs við KR-Bumburnar og mun
spila með þeim einn leik, gegn
Grindavík í bikarkeppni KKÍ og
Lýsingar í dag.
„Umboðsmaður minn sagði mér
frá stöðu KR-B hér á Íslandi, ég er
á milli samninga í augnablikinu
og hafði engu að tapa ¿ þess vegna
ákvað ég að slá til,“ sagði Melvin
við Fréttablaðið, spurður um hvað
í ósköpunum maður með hans
bakgrunn væri að hugsa með því
að spila með B-liði KR, KR-Bumb-
unni, í einum bikarleik. „Ég er að
reyna að fá langtímasamning við
eitthvert félag og vonast til að
þessi leikur verði til þess að opna
einhverja möguleika fyrir mig á
Íslandi,“ bætti Melvin við en hann
var í æfingabúðum með Utah Jazz
í sumar en komst ekki að hjá lið-
inu fyrir tímabilið.
Ljóst er koma Melvins er mik-
ill hvalreki á fjörur KR-Bumb-
unnar sem ætlar sér stóra hluti
gegn úrvalsdeildarliði Grinda-
víkur. Liðið hefur safnað saman
gömlum kempum sem spila munu
leikinn, menn á borð við Her-
mann Hauksson, Ólaf Jón Orms-
son, Pál Kolbeinsson og fleiri, og
nú síðast bættist hinn meiðslum
hrjáði Baldur Ólafsson við í hóp-
inn. Þjálfarateymi liðsins er ekki
af verri endanum; Hörður Gauti
Gunnarsson er aðalþjálfari en
honum til aðstoðar verða þeir Ingi
Þór Steinþórsson, Einar Bollason
og sjálfur Laslo Nemeth, en allir
eiga þeir það sameiginilegt að
hafa stýrt KR-ingum til Íslands-
meistaratitils.
„Þetta er orðið hörkulið hjá
KR-ingum og þarna eru leikmenn
sem ég ber mikla virðingu fyrir,“
sagði Páll Axel Vilbergsson, fyr-
irliði Grindavíkur. „Það er ekkert
nema gott um þennan liðssöfnuð
KR að segja og ég held að þetta
geti orðið mjög skemmtilegur
og fróðlegur leikur,“ segir Páll
Axel. Lárus Árnason, fyrirliði
KR-Bumbunnar, segir að
lykillinn að sigri þeirra
sé að halda hraðanum í
leiknum niðri. „Það segir
sig sjálft að við erum ekki
í jafn góðu formi og leik-
menn Grindavíkur en með
réttu skipulagi teljum við
okkur eiga möguleika,“
segir hann.
Melvin segir það vissu-
lega skjóta svolítið skökku
við að vera að spila með
liði sem kennir sig við
bumbu því sjálfur er hann
í mjög góðu formi. „En
mér er sagt að við séum
að fara að spila gegn mjög
góðu liði svo að ég held að
það skemmi ekkert fyrir
að hafa einn og einn leikmann
sem er ekki með bumbu. En ég
er ekki kominn hingað til að láta
valta yfir mig. Við stefnum á að
vinna þennan leik,“ segir Melvin
og Lárus tekur í sama streng.
„Það er alveg ljóst að við förum í
þennan leik til að sigra.“
vignir@frettabladid.is
Gamlar kempur spila með Bumbunni
B-lið KR, betur þekkt sem KR-Bumban, hefur safnað saman gömlum kempum félagsins til að spila gegn
Grindavík í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í dag. Þá mun liðið tefla fram mjög öflugum erlendum leikmanni.
MELVIN SCOTT Var hluti af sigurliði North-Carolina í
háskóladeildinni í Bandaríkjunum síðasta vor. Þannig
fetaði hann í fótspor Michaels Jordan sem einmitt
varð meistari með North Carolina árið 1982.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
GOTT TEYMI Hér sjást þjálfararnir Einar Bollason og Laslo Nemeth, fyrirliðinn
Lárus Árnason, erlendi leikmaðurinn Melvin Scott og Böðvar Eggert Guðjónsson,
formaður körfuknattleiksdeildar KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UNDIRBÚNINGURINN HAFINN Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari sést hér stjórna lærisveinum sínum í íslenska liðinu á fyrstu
æfingunni fyrir EM í Sviss. Fyrsti leikur Íslands á EM er gegn Serbum 26. janúar og hefur Viggó því þrjár vikur til að fínpússa leikkerfin
og þjappa mönnum saman fyrir átökin sem framundan eru. Fimmtán leikmenn mættu á þessa fyrstu æfingu liðsins en Jaliesky Garcia
var fjarverandi og er ekki útséð hvort að hann geti tekið þátt á mótinu. Landsliðið mun líklega æfa tvisvar á dag fram að æfingaleikjum
gegn Noregi og Katar í lok næstu viku. Undirbúningnum lýkur síðan með tveimur æfinaleikjum gegn Frökkum hér heima 19. og 21.
janúar áður en haldið verður til Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester
United, olli miklu fjaðrafoki í
knattspyrnuheiminum á Englandi
þegar hann sagði leikmenn Chelsea
þurfa að veikjast af malaríu ef
önnur lið í úrvalsdeildinni ættu að
eiga möguleika á sigri í deildinni.
„Maður veit aldrei hvað ger-
ist í fótboltanum. Kannski gerir
malaría vart við sig á æfinga-
svæði Chelsea. Það þarf eitthvað
svoleiðis að gerast. En ég trúi
því að á einhverjum tímapunkti
munum við ná Chelsea. Það eru
margir ungir leikmenn í hópnum
hjá okkur sem eru alltaf að verða
betri og betri.“
Yfirburðir Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni voru miklir á síð-
asta ári en svo virðist sem ekkert
félag geti ógnað því eins og staða
mála er nú. Ferguson telur þó bilið
á milli Chelsea og annarra liða
alltaf vera að minnka.
„Það er erfitt að halda liði á
toppnum ár eftir ár. Ég efast um
að Chelsea nái að halda sér í efsta
sætinu í mörg ár en það er alveg
ljóst að við, líkt og öll önnur lið í
deildinni, þurfum að bæta okkur
mikið til þess að hægt verði að
minnka bilið á milli Chelsea og
annarra liða,“ sagði Ferguson. - mh
Alex Ferguson að gera allt vitlaust á Englandi með ummælum sínum:
Chelsea þarf að fá malaríu
ALEX FERGUSON OG CARLOS QUEIROS
Ferguson sést hér stýra æfingu hjá
Man. Utd ásamt aðstoðarmanni sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Allen Iverson hefur
lýst því yfir að hann vilji spila með
bandaríska landsliðinu á HM 2006
sem og á Ólympíuleikunum 2008.
Þessa dagana fara forsvars-
menn körfuboltasambandsins á
milli borga og ræða við helstu
stórstjörnur NBA-deildarinnar um
hug þeirra til landsliðsins en ansi
stór skörð voru höggvin í lands-
liðið sem spilaði á ÓL í Aþenu þar
sem liðið beið afhroð.
Shaquille O´Neal, Dwayne Wade
og Tim Duncan munu gefa svar við
því á næstu dögum hvort þeir vilji
vera með landsliðinu en fyrir utan
Iverson hefur Kobe Bryant þegar
gefið jákvætt svar um að spila
með landsliðinu.
Allen Iverson:
Vill spila með
landsliðinu
ALLEN IVERSON Hefur metnað fyrir hönd
landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
TENNIS Tennisdrottningin Mart-
ina Hingis frá Sviss tapaði fyrir
ítölsku stúlkunni Flaviu Penneta í
undanúrslitum á sínu fyrsta móti
í þrjú ár.
Hin 25 ára gamla Hingis varð
að leggja skóna á hilluna vegna
meiðsla á sínum tíma en virð-
ist hafa endurheimt heilsuna
og árangurinn á þessu móti var
framr björtustu vonum en Hing-
is tekur í kjölfarið þátt á opna
ástralska meistaramótinu sem er
fyrsta stórmót ársins. - hbg
Martina Hingis:
Tapaði í und-
anúrslitum
NFL Shaun Alexander, hlaupari
Seattle Seahawks, hefur verið val-
inn besti leikmaður NFL-deildar-
innar en hann setti met á leiktíðinni
þegar hann skoraði 28 snertimörk.
Alexander leiddi einnig deildina
með flesta hlaupametra.
Hann tekur við titlinum af Peyton
Manning, leikstjórnanda Indiana-
polis Colts, sem hafði verið valinn
bestur tvö síðustu ár. Manning
leið nokkuð fyrir það í kjörinu að
hafa hvílt síðustu leiki þar sem
Colts var löngu búið að rúlla upp
deildinni. - hbg
Ameríski fótboltinn:
Alexander val-
inn bestur
SHAUN ALEXANDER Hefur farið á kostum í
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Franski landsliðs-
maðurinn Patrice Evra, sem
leikið hefur með Mónakó í frönsku
knattspyrnunni, gekk í gær til liðs
við Manchester United.
Man. Utd. þurfti að greiða fimm
og hálfa milljón punda fyrir Evra,
eða um 650 milljónir íslenskra
króna. Þetta er annar leikmaðurinn
sem Manchester United fær til
liðs við sig en báðir leikmennirnir
eru varnarmenn. „Allt er nú
frágengið. Við höfum fylgst með
honum síðan í september þegar
Gabriel Heinze meiddist,“ sagði
Alex Ferguson, en Evra leikur í
stöðu vinstri bakvarðar.- mh
PATRICE EVRA Evra hefur leikið stórt hlut-
verk í landsliði Frakka síðustu mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Man. Utd styrkir vörnina:
Evra búinn að
skrifa undir
FÓTBOLTI West Ham hefur boðið
Nikola Zigic, 24 ára gamlan fram-
herja Rauðu Stjörnunnar frá Bel-
grad.
Yfirmaður knattspyrnumála
hjá Rauðu Stjörnunni, Stevan
Stojanovic, segir þó ekki koma
til greina að selja Zigic fyrr en
eftir að yfirstandandi keppnis-
tímabili lýkur. „Við héldum fund
þann fimmta janúar í París með
forráðamönnum nokkura liða sem
hafa áhuga á því að fá Zigic til
liðs við sig. Við greindum frá því
að við höfum ekki áhuga á því að
selja Zigic fyrr en í vor.“
West Ham hefur gengið vonum
framar það sem af er tímabili en
Alan Pardew, knattspyrnustjóri
félagsins, hefur hug á því að
styrkja liðið með tveimur leik-
mönnum nú í janúar. - mh
West Ham á markaðnum:
West Ham á
eftir Zigic