Fréttablaðið - 01.02.2006, Side 33
MARKAÐURINN
Borgaryfirvöld í Los Angeles
hafa stefnt fyrirtækinu Two-Two
Entertainment, sem framleiðir
Grand Theft Auto tölvuleikinn,
fyrir dóm. Krefjast borgaryfir-
völd þess að forsvarsmenn Two-
Two veiti borginni hlutdeild í
hagnaði af sölu nýjustu gerðar
leiksins, Grand Theft Auto; San
Andreas.
Leikurinn innihélt falið klám-
fengið efnið og olli það mikilli
úlfúð í Bandaríkjunum er upp
komst. Yfirvöld í Los Angeles
telja umhverfi leiksins augljós-
lega ætlað að líkja eftir hverfum
borgarinnar og segja framleið-
endur leiksins hafa dregið ímynd
Los Angeles í svaðið.
Grand Theft Auto; San
Andreas leikurinn hefur selst í
þrjátíu milljónum eintaka. -jsk
Breskir vísindamenn hafa fundið
heimsins minnsta fisk. Fiskurinn
fannst á indónesísku eynni
Súmötru, lifir í mýrlendi og verð-
ur einungis 7,9 millimetra lang-
ur. Fiskurinn hefur hlotið nafnið
Paedocypris.
Paedocypris hefur nánast
engin bein og er því jafn lít-
ill og raun ber vitni. Smæðin
gerir fisknum síðan kleift að
lifa svo dögum skiptir án matar.
Vísindamennirnir hafa áhyggj-
ur af því að paedocypris eigi
skammt eftir ólifað, en heim-
kynni þeirra eru í bráðri hættu
vegna eyðingar skóga og ágangs
mannfólksins. -jsk
Minnsti fiskur í heimi
7,9 MILLIMETRAR Vísindamenn hafa
fundið heimsins minnsta fisk á eynni
Súmötru. Fiskurinn verður 7,9 millimetr-
ar að lengd fullvaxinn
S Ö G U H O R N I Ð
9MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Markús Didius Severus Júlíanus
Rómarkeisari fæddist þann 30.
janúar árið 133 í Mílanó. Júlíanus
var af aðalsættum en var þó
ekki alinn upp hjá foreldrum
sínum heldur Dómitíu Lucillu,
móður Markúsar Árelíusar sem
síðar varð keisari Rómaveldis.
Júlíanus hóf snemma að
klífa metorðastigann í Róm og
náði kjöri sem konsúll árið 175.
Hugur Júlíanusar stefndi þó
ávallt hærra og árið 193 sá hann
sér leik á borði.
Þá var Pertinax keisari
myrtur af eigin lífvörðum,
Pretóríunni. Lífverðirnir sáu
gróðatækifæri og ákváðu að
selja keisara tignina hæstbjóð-
anda. Júlíanus reyndist hlut-
skarpastur, greiddi hverjum
lífvarðanna tuttugu og fimm
þúsund sestertía. Lífverðirnir
neyddu svo þingið til að sam-
þykkja Júlíanus sem keisara.
Þessi ráðahagur fór hins
vegar ekki vel í almúgann og
lá við uppreisn í Róm. Svo fór
að lokum að þrír valdamiklir
hershöfðingjar; Niger, Albinus
og Septimius Severus sneru til
Rómar af vígstöðvunum og tóku
málin í sínar hendur. Severus
réðst ásamt hersveitum sínum
inn í keisarahöllina, leysti upp
Pretóríuna og lét taka lífverðina
sem myrt höfðu Pertinax af lífi.
Að því loknu var Júlíanus keis-
ari hálshöggvinn og tók
Septimius Severus
sjálfur við keis-
aratigninni.
J ú l í a n u s
hafði þá ein-
ungis gegnt
embættinu
í rúma tvo
mánuði.
-jsk
Keisaratign til sölu
MARKÚS
DIDIUS
SEVERUS
JÚLÍANUS
Júlíanus gegndi
embætti keisara
í rúma tvo mán-
uði árið 193 eftir
Krist. Júlíanus keypti
keisaratignina af
Pretóríunni og var stuttu
síðar hálshöggvinn.
Gítarleikari bresku rokk sveitar-
innar The Who, Peter Townshend,
segir að stöðug heyrnartólanotk-
un hafi skemmt í sér heyrnina.
Townshend er sextíu ára gamall
og hefur spilað með hljómsveit
sinni frá því á sjöunda áratugn-
um.
„Það suðar stöðugt í eyr unum
á mér,“ sagði Townshend. „Ég er
handviss um að háværum rokkt-
ónleik um er ekki um að kenna
heldur heyrnartólunum sem ég
hef notað við upptökur í gegnum
árin.“
Townshend óttast að ungt fólk
nú á dögum kunni að stríða við
heyrnarleysi þegar fram í sækir,
nútíminn kalli á stöðuga heyrn-
artólanotkun. „Krakkar nú til
dags nota heyrnartól þegar þau
hlusta á tónlist, horfa á sjónvarp-
ið eða eru í tölv unni. Þegar ég
var yngri notuðum við þetta bara
við upptökur. Það er hrika legt
að missa heyrnina, hún kemur
aldrei aftur.“ -jsk
Heyrnartól skaða heyrnina
Gítarhetja er með stöðugt suð í eyrunum og
varar ungt fólk við ofnotkun heyrnartóla.
PETER TOWNSHEND Á HÁTINDI FER-
ILSINS Townshend segist hafa orðið fyrir
varanlegum heyrnarskaða vegna notk unar
heyrnartóla og varar ungt fólk við ofnotkun
slíkra tækja.
Stefna framleiðendum GTA
Borgaryfirvöld í LA telja ímynd borgarinnar hafa
beðið hnekki vegna Grand Theft Auto tölvuleiksins.