Fréttablaðið - 01.02.2006, Qupperneq 62
1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR26
Það kom fæstum á óvart að
Brokeback Mountain skyldi
hljóta flestar tilnefning-
ar til Óskarsverðlauna en
þær voru tilkynntar í gær.
Það sem kom hins vegar
mörgum í opna skjöldu er
velgengni kvikmyndarinnar
Crash en það er orðið ansi
langt síðan hún var í kvik-
myndahúsum og hún gæti
því stolið senunni.
Það voru þau Mira Sorvino og
Sid Ganis hjá Akademíunni sem
tilkynntu hverjir hefðu verið
hinir heppnu og það hefði mátt
skera andrúmsloftið með rakvéla-
blaði. Ástar- og kúrekamynd Ang
Lee hlaut átta tilnefningar. Þau
Michelle Williams, Heath Ledger
og Jake Gyllenhaal fengu tilnefn-
ingu fyrir leik sinn í myndinni auk
þess sem handrit myndarinnar
var tilnefnt.
Brokeback gnæfir engu að
síður ekki jafn mikið yfir öðrum
myndum og búist hafði verið við.
Víst er að Heath Ledger fær harða
baráttu frá þeim Philip Seym-
our Hoffman úr Capote, Golden
Globe-verðlaunahafanum Joaquin
Phoenix úr Walk the Line, David
Strathairn úr Good Night, Good
Luck og Terrence Howard en hann
kemur óvænt inn í þennan hóp úr
kvikmyndinni Hustle & Flow.
Það er óvenju sterkur hópur
kvenna sem kemur til með berjast
um sigurlaunin en það eru þær
Felicity Huffman úr Transameri-
ca og Reese Witherspoon úr Walk
the Line sem þykja nokkuð sigur-
stranglegar en þær fengu báðar
Golden Globe-verðlaun fyrir
frammistöðu sína á dögunum. Þá
kemur Rachel Weisz sterk inn en
hún hlaut Leikaraverðlaunin fyrir
leik sinn í The Constant Garden-
er. Hvorki Keira Knightley, sem
leikur í Pride & Prejudice, né
Judi Dench úr Mrs. Henderson
Presents eru taldar líklegar.
Títtnefnd Brokeback Mountain
þykir sigurstrangleg þegar kemur
að bestu myndinni en ekki skyldi
útiloka Crash sem gerði góða hluti
rétt fyrir Óskarinn og tekur auk
þess á kynþáttafordómum sem
eru ögn mýkra mál en samkyn-
hneigð. Þá er Munich einnig sterk-
ur kandítat og ekki má gleyma
Capote en gagnrýnendur halda
vart vatni yfir henni. Kvikmynd
George Clooney, Good Night and
Good Luck þykir eiga hvað sístu
möguleikana.
Samkvæmt helstu erlendu
miðlunum getur Ang Lee nánast
gengið að Óskarnum vísum fyrir
leikstjórnina að Brokeback. Það
skyldi þó enginn útiloka óvæntar
uppákomur í Bandaríkjunum.
George Clooney gerir góða hluti
með Good Night, Good Luck, Ste-
ven Spielberg vaknar til sjálfs síns
með Munich og Benedict Miller
fer vel með Capote. Paul Haggis
verður að teljast ólíklegastur til
að hljóta styttuna eftirsóttu þrátt
fyrir að myndin hans Crash hafi
komið á óvart.
Óskarinn fer fram fimmta
mars og verður í Kodak-höllinni.
Það er Jon Stewart sem kynnir en
hann er frægur fyrir hárbeittar
glósur í garð stjórnmálamanna í
þætti sínum The Daily Show.
Hjónin Theódóra Sæmundsdóttir
og Jóhann Örn Ólafsson danskenn-
arar og Bjargey Aðalsteinsdóttir
íþróttafræðingur eru á leiðinni
til Tenerife þar sem þau ætla að
halda námskeið fyrir pör og hjón.
Markmiðið er að njóta lífsins í
dansi, slökun og góðum mat.
„Við förum með afmarkaðan
hóp af hjónum eða pörum sem
eru tilbúin að nýta fríið sitt í upp-
byggilegt starf fyrir sig sjálf,“
segir Jóhann Örn. „Við reynum
að kenna fólki að dansa saman og
fá það til að halda rétt um hvort
annað og finna hvernig gott er að
dansa. Það skiptir máli hvernig
það er gert því annars getur það
skapað togstreitu í sambandi. Fólk
þarf fyrst og fremst að njóta þess
að vera með hvort annað í fang-
inu,“ segir Jóhann.
Tilfinningaríkur tangó
Lögð verður áhersla á suðræna
dansa sem henta í hitanum á þess-
ari suðrænu eyju. Reynt verður
að finna út þann dans sem hentar
hverju pari fyrir sig, hvort sem
það er hinn tilfinningaríki tangó
eða dans ástarinnar, rúmba. Auk
danskennslunnar mun Bjargey sjá
um andlegu hliðina ásamt jóga-
leikfimi og annarri hreyfingu og
hollustu, þannig að þátttakendur
geti komið heim úr fríinu endur-
nærðir bæði á sál og líkama.
„Ég verð með jóga- og teygju-
æfingar og með verkefni til að láta
pörin gera sambandið sitt enn betra.
Á hverjum degi fá þau verkefni til
að glíma við þar sem allir eru að
vinna í sínu horni,“ segir Bjargey.
„Á hverjum degi fá þau eitthvert
nýtt verkefni til að þekkja sig og
maka sinn betur og hvað þau geti
gert til að bæta sambandið. Síðan
er farið í óvissuferð og farið út að
borða og reynt að mynda ennþá
meiri ástríðu í sambandinu.“
Bjargey segir afar mikilvægt
að halda uppteknum hætti þegar
heim er komið og gætu þá konu-
dagurinn og valentínusardagur-
inn komið sterkir inn. „Oft þegar
við erum heima tekur hversdags-
leikinn völdin og við gleymum því
sem skiptir máli, því það þarf svo
lítið til að gleðja,“ segir hún.
freyr@frettabladid.is
Suðræn sveifla og eldheitar ástríður
BJARGEY AÐALSTEINSDÓTTIR Bjargey ætlar
að leggja hin ýmsu verkefni fyrir þátttak-
endur á námskeiðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
CRASH Þessi mynd Pauls Haggis hefur lúrt í leyni á þessu ári en er nú komin úr fylgsni sínu
og er tilnefnd sem besta mynd ársins á Óskarnum.NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
CINDERELLA MAN Paul Giamatti er til-
nefndur fyrir leik sinn í Cinderella Man en
það þykir líklegt að þar sé verið að bæta
upp fyrir að hann var ekki meðal útvaldra í
Sideways. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
MUNICH Spielberg hefur oft hlotið fleiri
tilnefningar en mynd hans, Munich, þykir
eiga einhverja möguleika á að geta veitt
Brokeback Mountain keppni.
JOAQUIN PHOENIX OG REESE WITHERSPOON Leikararnir eru báðir tilnefndir til Óskarsverð-
launa fyrir frammistöðu sína sem Johnny Cash og June Carter í Walk the Line.
PHILIP SEYMOUR HOFFMAN Hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda og er tilnefndur
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn sem
Truman Capote í Capote.
NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
Crash gæti komið á óvart
BROKEBACK MOUNTAIN Tilnefnd til átta verðlauna og hljóta þeir Jake Gyllenhaal og Heath Ledger báðir tilnefningu fyrir frammistöðu sína. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
ÓSKARSVERÐLAUNIN 2005
Besta myndin:
Million Dollar Baby
Besti leikstjóri:
Clint Eastwood (Million Dollar Baby)
Besti leikari í aðahlutverki:
Jamie Foxx (Ray)
Besta leikkona í aðalhlut-
verki:
Hilary Swank (Million
Dollar Baby)
Besti leikari í auka-
hlutverki:
Morgan Freeman
(Million Dollar Baby)
Besta leikkona í auka-
hlutverki.
Cate Blanchett (The
Aviator)
Besta erlenda
mynd:
The Sea Inside
(Spánn)
Besta teiknimynd:
The Incredibles
Besta frum-
samda
handrit:
Eternal
Suns-
hine of
the Spot-
less Mind
Besta handrit byggt
á áður birtu efni:
Sideways
Besta heimild-
armynd:
Born Into
Brothels
Bestu tæknibrellur:
Spider-Man 2