Fréttablaðið - 01.02.2006, Qupperneq 66
30 1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
29 30 31 1 2 3 4
Miðvikudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Keflavík og Grindavík mæt-
ast í Iceland Express-deild kvenna í
körfubolta í Keflavík.
19.15 KR og ÍS mætast í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta í
DHL-höllinni.
19.15 Breiðablik og Haukar mæt-
ast í Iceland Express-deild kvenna í
körfubolta í Smáranum.
■ ■ SJÓNVARP
14.40 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Serba og Rússa.
16.55 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Íslendinga og
Króata.
18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
18.12 Sportið á Sýn. Farið verður
yfir helstu íþróttaviðburði dagsins.
20.10 Meistaradeildin á Sýn.
Sýndur verður leikur Man. Utd og
Juventus frá árinu 1999.
22.00 Sterkasti maður heims á
Sýn.
23.00 US PGA 2005 á Sýn.
23.55 NFL-tilþrif á Sýn.
23.20 EM í handbolta á RÚV.
Útsending frá leik Dana og
Norðmanna.
EM í handbolta:
Milliriðill 1
ÚKRAÍNA-ÞÝSKALAND 22-36
Sergei Shelmenko 5 - Florian Kehrmann 9.
SLÓVENÍA-FRAKKLAND 30-34
Miladin Kozlina 8, Siarhei Rutenka 6 - Luc Abalo 8,
Joel Abati 5, Bertrand Gille 5, Nikola Karabatic 5.
PÓLLAND-SPÁNN 25-34
Karol Bielecki 5 - Albert Rocas 11, Alberto Entrerrios 7.
Staðan í riðlinum
SPÁNN 3 2 1 0 94-82 5
FRAKKLAND 3 2 0 1 87-84 4
SLÓVENÍA 3 2 0 1 96-94 4
ÞÝSKALAND 3 1 1 1 92-80 3
PÓLLAND 3 1 0 2 87-91 2
ÚKRAÍNA 3 0 0 3 77-102 0
Milliriðill 2
ÍSLAND-RÚSSLAND 34-32
Mörk Íslands (skot innan sviga): Guðjón Valur Sig-
urðsson 11 (16), Ólafur Stefánsson 8 (14), Róbert
Gunnarsson 4 (4), Alexander Petersson 4 (7),
Snorri Steinn Guðjónsson 4/1 (9/1), Arnór Atla-
son 2 (5), Vignir Svavarsson 1 (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 11, Roland
Valur Eradze 1. Hraðaupphlaup: 9 (Guðjón 5,
Róbert 2, Snorri, Vignir). Fiskuð víti: 1 (Sigfús).
Brottrekstrar: 4 (8 mínútur).
Markahæstir Rússa: Eduaard Kokcharov 8/4, Vas-
ily Filippov 7, Oleg Frolov 5, Alexey Rastvortsev 3.
DANMÖRK-KRÓATÍA 30-31
Sören Stryger 8, Joachim Boldsen 6 - Petar Metlic-
ic 10, Blaxenko Lockovic 6, Mirza Dzomba 4.
SERBÍA/SVARTF.-NOREGUR 26-25
Ratko Nikolic 6 - Kjetil Strand 9, Kristian Kjelling 5.
Staðan í riðlinum
ÍSLAND 3 2 1 0 98-91 5
RÚSSLAND 3 2 0 1 86-84 4
KRÓATÍA 3 2 0 1 92-88 4
DANMÖRK 3 1 1 1 91-88 3
SERBÍA 3 1 0 2 86-94 2
NOREGUR 3 0 0 3 74-82 0
Enska úrvalsdeildin:
SUNDERLAND-MIDDLESBROUGH 0-3
0-1 Emanuel Pogatetz (19.), 0-2 Stuart Parnaby
(31.), 0-3 Jimmy Floyd Hasselbaink (71.).
WIGAN-EVERTON 1-1
0-1 David Thompson, sjálfsm. (9.), 1-1 Paul
Scharner (45.).
CHARLTON-WBA 0-0
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Charlton.
FULHAM-TOTTENHAM 1-0
1-0 Carlos Bocanegra (91.).
Heiðar Helguson lék allan leikinn fyrir Fulham
Enska 1.deildin:
BRIGHTON-BURNLEY 0-0
CARDIFF-MILLWALL 1-1
HULL-COVENTRY 1-2
IPSWICH-LEEDS 1-1
PLYMOUTH-SOUTHAMPTON 2-1
PRESTON-CRYSTAL PALACE 2-0
QPR-LEICESTER 2-3
READING-NORWICH 4-0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Það var fátt sem benti
til þess í upphafi að Ísland myndi
vinna glæstan sigur. Rússar byrj-
uðu leikinn með látum og komust
fljótt í 1-4. Ísland var þá að fara
með fjölda dauðafæra gegn mark-
verðinum Kostygov rétt eins og
liðið gerði gegn honum í Túnis
fyrir ári síðan.
Þessi byrjun Rússanna sló
strákana okkar ekki út af laginu
og þeir svöruðu með því að skora
sex mörk í röð, 7-4. Þeir létu ekki
staðar numið þar heldur unnu
þeir þennan kafla 9-1 og komust
í 10-5. Ótrúlegur kafli þar sem
stórbrotinn varnarleikur og vel
útfærð hraðaupphlaup skiluðu
sínu en fimm af fyrstu tíu mörk-
unum komu úr hraðaupphlaupi.
Rússneski björninn rankaði þá við
sér og náði að minnka muninn í
tvö mörk fyrir hlé, 17-15, sem var
svekkjandi því Ísland hefði getað
leitt með mun meiri mun í leik-
hléi.
Rússarnir brugðu á það ráð að
taka Ólaf Stefánsson úr umferð
í síðari hálfleik en það hafði lítil
áhrif þar sem hinir leystu hlut-
verk sitt frábærlega og Ísland hélt
áfram að auka á forskotið og leiddi
lengstum með 3-4 mörkum.
Í stöðunni 33-29 misstu strák-
arnir einbeitinguna, Rússarnir
skoruðu þrjú mörk í röð og minnk-
uðu muninn í eitt mark, 33-32, og
gríðarleg spenna kom óvænt inn í
leikinn. Guðjón Valur Sigurðsson
steig þá fram fyrir skjöldu eins og
sannur leiðtogi og skoraði klárlega
eitt mikilvægasta mark síns ferils
sem tryggði sigur í leiknum, 34-
32.
Leikur liðsins í gær er einhver
sá besti sem undirritaður hefur
séð landsliðið spila. Viggó lagði
upp með þá tækni að skera á hægri
skyttu Rússanna, Peskov, og sú
tækni hans gekk fullkomlega upp
því það lamaði sóknarleik Rúss-
anna að miklu leyti. Alexander
Petersson tók síðan risann Rast-
vortsev í nefið með hjálp Sigfús-
ar sem stýrði varnarleiknum af
myndarbrag en Arnór stóð vaktina
í vörninni einnig vel. Liðið spilaði
loksins frábæra vörn nánast allan
leikinn og fyrir vikið komu hraða-
upphlaupin sem eru svo mikilvæg
en þar var Guðjón Valur í essinu
sínu.
Einnig hafði það sitt að segja
fyrir hraðaupphlaupin að Ólaf-
ur Stefánsson var kominn aftur í
liðið en endurkoma hans gerði svo
sannarlega gæfumuninn. Ólafur
átti frábæran leik á allan hátt og
ef hann getur spilað áfram af álíka
getu eru liðinu allir vegir færir.
Framlag þrímenninganna Ólafs,
Guðjóns Vals og Snorra Steins vó
síðan þungt í fyrri hálfleik en þeir
skoruðu þá 15 af 17 mörkum liðs-
ins.
Annars er ósanngjarnt að taka
einhverja sérstaka út því nánast
allir áttu frábæran leik. Það var
unun að fylgjast með varnarleik
liðsins og strákarnir sýndu einnig
svakalega yfirvegun í sóknar-
leiknum og létu Rússana aldrei
koma sér úr jafnvægi. Þetta lið
hefur þroskast gríðarlega mikið á
skömmum tíma og er klárlega til
alls líklegt á þessu móti.
Rússneski björninn
lagður með glæsibrag
Íslenska handboltalandsliðið lék einn sinn besta leik í fjölda ára gegn Rússum
í St. Gallen í gær. Liðið er á toppi milliriðilsins eftir 34-32 sigur og sæti í undan-
úrslitum er raunhæfur möguleiki.
SÁ FLJÓTASTI Í HEIMI Rússarnir réðu ekkert við Guðjón Val Sigurðsson í leiknum í gær,
hvort sem um var að ræða í hraðaupphlaupunum eða úr horninu. Guðjón Valur skoraði 11
mörk í leiknum – ekkert þeirra úr víti. NORDICPHOTOS/AFP
Íslenska liðið átti sigurinn fyllilega skilinn
ÍÞRÓTTALJÓS
ÍSLENSKA
LANDSLIÐIÐ
Í HANDBOLTA
Á EM Í SVISS
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
EM Í HANDBOLTA
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá St. Gallen í Sviss.
henry@frettabladid.is
Að undanskildum fyrstu mínút-
um leiksins spilaði íslenska liðið
þennan leik frábærlega og átti
sigurinn fyllilega skilinn. Strák-
arnir spiluðu eins og þeir sem
valdið hafa og voru einfaldlega
betri á langflestum sviðum − sér-
staklega í varnarleiknum. Vörnin
var hreint út sagt stórkostleg en
ef það var eitthvað neikvætt sem
hægt er að tína úr leiknum þá var
það markvarslan, en þó má ekki
gleyma að Birkir Ívar varði þrjá
gríðarlega mikilvæga bolta í síð-
ari hálfleik úr dauðafærum.
Allir leikmenn lögðu sig 110%
fram og voru greinilega mjög
ákveðnir í að fara með sigur af
hólmi. Með þessum varnarleik,
þar sem leikmenn voru mjög
hreyfanlegir og með miklar
færslur, gerðum við Rússunum
afar erfitt fyrir. Í kjölfarið komu
hraðaupphlaupin og þá er íslenska
liðið illviðráðanlegt. Ég held að
með frammistöðunni í gær hefði
íslenska liðið getað lagt hvaða
andstæðinga sem er af velli.
Allir leikmenn stóðu sig mjög
vel en ég held að það sé á engan
hallað þótt minnst sé sérstaklega
á þátt Ólafs Stefánssonar. Hann
sýndi enn og aftur hversu mik-
ilvægur hann er og það er óum-
deilanlegt að hann er heili liðsins
og leiðtogi. Það var allt annað að
sjá til Guðjóns Vals og hann naut
góðs af snilli Ólafs í hraðaupp-
hlaupunum. Þríeykið öfluga, eins
og ég vil kalla það (Ólafur, Snorri
og Guðjón Valur), skoruðu 90%
marka liðsins í fyrri hálfleik og
hafði ég pínulitlar áhyggjur yfir
því í hálfleik. En í síðari hálfleik
skoruðu Alexander og Arnór góð
mörk og við fengum meira frá
línunni. Það skipti sköpum þegar
þeir fóru að taka fastar á Ólafi.
Almennt var sóknarnýtingin
gríðarlega góð og það má í raun
segja að leikurinn hafi nánast
gengið fullkomlega upp.
Ég verð að viðurkenna að ég
kveið nokkuð fyrir þessum leik
áður en hann hófst. En handbolti
er einfaldur leikur að því leyti
að lið spila ekki betur en and-
stæðingurinn leyfir. Íslenska
liðið var einfaldlega frábært í
leiknum og bauð því rússneska
ekki upp á að gera neitt meira en
raun bar vitni. Þetta var mögn-
uð frammistaða og ef liðið held-
ur áfram á sömu braut eru því
allir vegir færir. Til hamingju,
strákar!
„Þetta var bara snilld. Við hikstuðum
aðeins í byrjun, klikkuðum á dauðafær-
um en ég hafði engar áhyggjur af því
þar sem við vorum að fá dauðafærin,“
sagði glaðbeittur þjálfari íslenska liðsins,
Viggó Sigurðsson, eftir leikinn. „Það var
vörnin sem skapaði þennan sigur fyrir
okkur. Hún fleytti okkur langt í dag. Við
lögðum upp með ákveðna taktík sem
gekk fullkomlega upp. Við fengum fjölda
af hraðaupphlaupum og við vorum betra
liðið á vellinum. Við vorum alltaf skrefi
á undan og óþarfi að hleypa Rússunum
inn í leikinn í restina. Við héldum haus og
strákarnir sýndu að þeir ætla sér langt,“
sagði Viggó en hann var geysilega ánægð-
ur með fyrirliða sinn, Ólaf Stefánsson.
„Hann var bara stórkostlegur og ómetan-
legt að fá hann aftur í liðið. Ef við ætlum
okkur að gera stóra hluti á þessu móti
þá þurfum við á Ólafi að halda. Það er
ekki spurning að við getum gert frábæra
hluti í framhaldinu. Liðið spilaði eins og
það á að gera í svona leikjum,“ sagði
Viggó sem vildi ekki gefa út neinar stórar
yfirlýsingar með framhaldið heldur aðeins
að næst sé að ná liðinu niður á jörðina
fyrir leikinn gegn Ólympíumeisturum
Króatíu í dag.
Ólafur Stefánsson átti frábæra endur-
komu í liðið eftir meiðsli en hann var
sprautaður niður fyrir leikinn. Hann skor-
aði átta glæsileg mörk, gaf stoðsendingar
og dró vagninn þegar á þurfti að halda.
„Það var rosalega ljúft að landa sigri
í þessum leik. Mér leið vel enda vel
stemmdur og mjög einbeittur. Ég hef
aldrei komið svona óþreyttur í milliriðla
og ég fékk líka að pústa í horninu í
vörninni. Það voru allir frábærir í þessum
leik og eiga hrós skilið,“ sagði fyrirliðinn
sem sagðist ekki hafa fundið mikið fyrir
meiðslunum en játaði einnig að hafa
aðeins hlíft sjálfum sér í gegnumbrotum
og samstuðum. „Þetta er óvænt en við
erum með hörkulið og höfðum alltaf trú
á því að við gætum
gert góða
hluti. Við
getum vel
komist
í und-
anúr-
slitin.“
VIGGÓ SIGURÐSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: GRÍÐARLEGA SÁTTUR VIÐ STRÁKANA SÍNA
Getum gert frábæra hluti í framhaldinu
Frændur vorir Danir þurftu að bíta í það súra epli að bíða lægri hlut
gegn Króötum í hreint rosalegum leik
á EM í gær. Danir höfðu átt á brattann
að sækja framan af en náðu með mikilli
baráttu að jafna metin þegar tæpar 10
mínútur voru eftir af leiknum. Liðin skor-
uðu til skiptis allt til loka en þegar þrjár
sekúndur voru eftir náði Göran Sprem
að skora sigurmark Króata og sátu Danir
því eftir með sárt ennið. Lokatölur urðu
31-30.
Það var líf og fjör á síðasta deginum sem leikmannaglugginn var opinn í
helstu deildum Evrópu í gær án þess þó
að nein risakaup hefðu verið gerð. Þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld
voru helstu tíðindin þau að Florent
Sinama Pongolle var lánaður til Black-
burn sem einnig keypti David Bentley af
Arsenal; Birmingham keypti sóknar-
manninn DJ Campbell sem slegið hefur
í gegn með Brentford í enska bikarnum
í vetur, Tottenham keypti Egyptann
Hossam Ghaly af Feyenoord, WBA seldi
Robert Earnshaw til Norwich og Fulham
keypti Michael Brown af Tottenham. Þá
hafnaði Man. City tilboði frá Middles-
brough í Joey Barton og Man.Utd. náði
ekki að kaupa neinn varnarmann.
Á Íslandi urðu einnig tilfæringar á leikmannamarkaðnum því Kefl-
víkingurinn Hörður Sveinsson gekk frá
lánssamningi við danska liðið Silkeborg
út tímabilið. Ef Hörður stendur sig vel á
þeim tíma er tilbúinn kaupsamningur
til undirritunar sem gildir til hálfs fjórða
árs. Þá gengu Keflvíkingar frá samningi
við Ástralann Budy Farah, en hann hefur
verið á reynslu hjá félaginu að undan-
förnu og staðið sig vel.
ÚR SPORTINU
Vill halda landsliðssætinu
Danska dagblaðið Extrabladet gerði
kaup Silkeborg á Valsmanninum Bjarna
Ólafi Eiríkssyni að umfjöllunarefni
hjá sér í gær og birti m.a. ummæli frá
leikmanninum þar sem kom fram að
hann vonaðist til að félagaskipti hans
til Silkeborg yrðu til þess að hann héldi
sæti sínu í íslenska landsliðinu. „Ég er
mjög bjartsýnn fyrir framtíðina,“ sagði
Bjarni við Extrabladet.
> Króatar án lykilmanna?
Tvær af skærustu stjörnum Króata eru
tæpir fyrir leikinn gegn Íslendingum
í dag og er óvíst um þátttöku þeirra.
Hornamaðurinn Mirza Dzomba hefur
nánast verið hálfur maður allt mótið og
gat lítið beitt sér í leiknum gegn Dönum
í gær og þá varð leikstjórnandinn Ivano
Balic, sem lék mjög vel gegn Dönum,
fyrir hnjaski á síðustu sekúndum leiksins
í gær og var hann draghaltur þegar hann
gekk af velli í leikslok. Balic, sem einnig
var tæpur í baki fyrir mótið,
virtist sárþjáður þegar
læknar króatíska liðsins
hugðu að honum eftir
leikinn. Ljóst er að um
gríðarlega blóðtöku
er að ræða fyrir lið
Króata ef þessir
tveir geta ekki beitt
sér af fullum krafti í
dag en um leið fín tíð-
indi fyrir íslenska landsliðið.