Tíminn - 03.04.1977, Qupperneq 21
20
Sunnudagur 3. aprll 1977
Sunnudagur 3. aprfl 1977
21
Sovézk uppfærsla á Shakespeare
í Þjóðleikhúsinu
7. aprll n.k. veröur frumsýnd-
ur I Þjóöleikhiisinu ballettinn
„Ást fyrir ást” sem geröur er
eftir gamanleik Shake-
speares „Ys og þys útaf
engu”. Tónlistina viö ballett-
inn geröi sovézka tónskáld-
iö Tikhon Hrennikof, en
Natalia Konjús, sovézkur ball-
ettmeistari Þjóöleikhússins,
setur ballettinn á sviö. Frægur
sovézkur dansari, Maris Liepa,
er kominn til Reykjavikur til aö
taka þátt I sýningunni.
I dag munum viö kynna les-
endum þennan ballett.
Dansarinn Maris
Liepa.
A hlutverkaskrá Maris Liep,
sólódansara viöStóra leikhúsiö i
Moskvu, eru hlutverk sem eru
svo ólik hvert ööru, aö erfitt er
aö trúa þvi aö sami maöur geti
dansaö þau öll.
Eöa hvaö eiga þeir sameigin-
legt, Rómverjinn Marcus
Crassus, persónugervingur hins
eyöileggjandi afls eigingirninn-
ar, og ljóöræni unglingurinn
Albert i gamla rómantiska ball-
ettinum Giselle? Eöa þá dapur-
lyndi Rómeó i harmleik Shake-
speares og rússneski aöalsmaö-
urinn Alexei Vronski i ballettin-
um Anna Karenina? Vissulega
eiga þessi hlutverk fátt annaö
sameiginlegt en þaö, aö þau eru
dönsuö af Maris Liepa og öölast
viö þaö sterk persónueinkenni
hans.
Maris Liepa hefur dansaö i
Stóra leikhúsinu f 17 ár. A þess-
um árum hefur hann komiö
fram i nær öllum meiriháttar
hlutverkum sigildra balletta og
einnig i nútimaballettum á borö
viö Spartakus, Astarsögu og
Asel.
Maris Liepa fæddist I Riga I
Lettlandiogþarhófst ferill'hans
i listinni. Hann ólstupp á heimili
sem var i nánum tengslum viö
leikhúsheiminn. Faöir hans var
kórsöngvari og á heimilinu var
andrúmsloft leikhúss og tónlist-
ar. Maris litli vakti athygli
skólastjóra dansskólans i Riga,
og var tekinn i skólann. Honum
gekk vel aö læra aö dansa, en
þaö var ekki fyrr en seinna aö
hann fékk raunverulegan áhuga
á ballett sem listgrein. Þaö
geröist þegar hann var ungling-
ur og fór til Moskvu ásamt öör-
um nemendum dansskólans, til
aötaka þátt i danskeppni skóla.
Siöan fer hann aftur til Riga
og hefur störf viö óperu- og
ballettleikhúsiö þar. Eftir nokk-
urn tima fer hann aftur til
Moskvu og lýkur námi viö dans-
skóla Moskvuborgar. Námstim-
inn var erfiöur, tími mikillar
áreynslu og mikillar vinnu.
„Mér fannst ég vera alltof veik-
buröa og stundaöi þvi lyftingar
— segir hann — svo fannst mér
ég vita alltof litiö, og fór þvi aö
lesa á næturnar”.
Aö loknu námi starfar hann í
fjögur ár i dansflokki Stani-
slafski leikhússins I Moskvu,
sem er talinn meö beztu dans-
flokkum landsins. A þessum ár-
um þroskast Liepa sem dansari
og nær valdi á háþróaöri tækni.
Ariö 1960 kemur Maris Liepa
fram á sviöi Stóra leíkhússins i
fyrsta sinn, i hlutverki Basils i
ballettinum Don Quijote. Slöan
kemur hann fram i Giselle,
Raimonda og Þyrnirós. Honum
til mikillar aöstoöar var á þess-
um árum Leonid Lavrofski,
einn af beztu bailettmeisturum
Sovétrikjanna fyrr og siöar,
sem hjálpaöi Liepa aö æfa mörg
hlutverkanna sem honum voru
fengin.
Hvaö er þaö sem einkennir
list Maris Liepa? Fyrst og
fremst göfugleiki formsins, rök-
rænt uppbyggö sviösframkoma
og mikil tóngáfa. Hver einasta
persóna sem hann skapar, lifir I
auöugum hugarheimi, heimi
hugsana og tilfinninga. Þess
vegna veröa þessar persónur
svo mannlegar, lifandi og ólikar
hver annarri.
Maris Liepa er bezti túlkandi
Stóra leikhússins á hlutverki
Rómeós I ballett Prókofjefs.
Þegar Stóra leikhúsiö sýndi
þennan ballett i London, kölluöu
brezk blöö Liepa „fullkominn
Rómeó” og gátu þess m.a. aö I
dansi og leik þessa listamanns
mætti „heyra orö Shake-
speares”.
En hápunktur á listrænum
fer'.i Maris Liepa veröur aö telj-
p.st túlkun hans á Marcus Crass-
us I ballettinum Spartakus eftir
Aram Khatsjatúrjan. Fyrir þaö
hlutverk fékk hann Leninverö-
launin. 1 túlkun Liepa og upp-
setningu Júri Grigorovits varö
hlutverk Crassusar jafnmikil-
vægt og aöalhlutverkiö —
Spartakus. Crassus táknar hiö
hræöilega afl rómversku harö-
stjórnarinnar og skerpir
hugmyndabaráttu leiksins. Hér
berjast ósættaniegar andstæö-
ur, þrælahaldarar og þrælar.
Meö þessu er lögö áherzla á
hetjulegt inntak leiksins, sem
fjallar um frelsisbaráttu alþýö-
unnar.
„Hlutverk Crassusar er eftir-
lætishlutverk mitt, þaö bezta
sem ég hef fengiö frá ballett-
meisturum i nútimaballett” —
segir dansarinn.
Maris Liepa hefur sjálfur
komiö fram i hlutverki ballett-
meistara. Þaö var áriö 1967,
þegar hann setti upp ballettinn
„Rósarsýn” eftir Mikael Fokin,
litla perlu i fjársjóöi ballett-
menningar heimsins. Þessi ein-
þáttungur tekur aöeins tiu
minútur i sýningu, en Maris
Liepa var mörg ár aö undirbúa
sviösetninguna. Hann byggöi
hana á umsögnum blaöa og
endurminningum samtima-
manna, teikningum og ljós-
myndum úr skjalasöfnum leik-
húsanna. Hann endurskapaöi
ballettinn og dansaöi sjálfur
aöalhlutverkiö.
Auk starfsins I Stóra leikhús-
inu dansar Maris Liepa oft I
kvikmyndum og sjónvarpi.
Fyrir skömmu var frumsýnd i
Moskvu ballettmyndin Sparta-
kus, meö þátttöku Liepa.
Auk þess stundar hann
kennslu viö dansskólann i
Moskvu og hefur kennt siöan
1963. Meöal nemenda hans eru
menn sem nú eru frægir sóló-
dansarar Stóra leikhússins:
Akimof, Bogatyrjef, Koslof,
Fjodorof o.fl.
Fyrir list sina hefur Máris'
Liepa veriö sæmdur nafnbótinni
þjóölistamaöur SSSR og ótal
verölaunum. Ariö 1971 kaus
Dansakademian i Paris hann
bezta dansara heims.
Sergei Serebrjakof (APN)
Frá 1. apríl gilda ný afsláttarfargjöld, sem við
köllum „almenn sérfargjöld”.
þau eru 25 - 40% lægri en venjuleg fargjöld og eru
eingöngu háð því skilyrði að dvalartími erlendis sé
lágmark 8 dagar og hámark 21 dagur (í flestum
tilfellum).
„Almenn sérfargjöld” gilda allt árið á flugleiðum frá
íslandi til 57 staða í Evrópu.
25-40%
LÆGRI FARGJÖLD
SEM GILDA FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
ALLT ÁRIÐ ÍSLANDS