Fréttablaðið - 08.02.2006, Page 10
10 8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
INDÓNESÍA, AP Yfir 20 tegundir
froska, fjórar fiðrildategundir,
mjónefir, paradísarfuglar, hun-
angsfuglar, fimm pálmar og poka-
dýr sem lifir í trjám eru meðal
þeirra tegunda sem alþjóðlegt
teymi vísindamanna tilkynnti í
gær að fundist hefðu í frumskógi
á Papúa Nýju-Gíneu, sem tilheyr-
ir Indónesíu. Margar þessara líf-
vera voru áður ókunnar, paradís-
arfuglinn var talinn útdauður, og
ekki var vitað að pokadýrið væri
til í Indónesíu.
„Það var ekki einn einasti
göngustígur þarna, engin merki
um siðmenningu, engin merki um
að frumbyggjarnir hefðu nokkurn
tíma komið þangað,“ sagði Bruce
Beehler, einn leiðtoga leiðangurs-
ins.
Ellefu vísindamenn frá Ástr-
alíu, Indónesíu og Bandaríkjun-
um lögðu upp í leiðangurinn með
aðstoð þyrlu í desember síðast-
liðnum, eftir tímafrekar leyfis-
umsóknir fyrir ferðinni í gamlan,
illfæran frumskóg sem nær yfir
meira en milljón hektara í Foja-
fjöllum Papúa Nýju-Gíneu. Skóg-
urinn er friðland sem tilheyrir
tveimur ættbálkum frumbyggja.
Tveir heimamenn komu með
vísindamönnunum í leiðangurinn,
og að sögn Beehlers vissu þeir
ekki til þess að neinir ættmanna
þeirra hefðu komið svona langt
inn í skóginn, enda er næg veiði-
bráð nær þorpunum. Voru þeir
jafn hissa á einangruðu lífríki
skógarins og vísindamennirnir,
að sögn Beehlers.
Mörg dýranna voru óvenju
gæf, sem vísindamennirnir töldu
bera vitni um að menn hafa ekki
komið á þennan stað svo árhund-
ruðum skiptir, ef þá nokkurn tíma.
Til dæmis leyfðu tveir mjónef-
ir mönnunum að taka sig upp og
skoða. Mjónefir eru spendýr sem
verpa eggjum.
Vísindamennirnir sögðust ekki
hafa haft nærri nógan tíma til að
rannsaka svæðið, og vonast Bee-
hler til þess að geta snúið aftur
þangað með fleiri vísindamönn-
um á næstu mánuðum. Einangr-
un þess og friðlandsstaða tryggir
framtíð þess um stund, að sögn
Beehlers. smk@frettabladid.is
Fundu týnda
dýraveröld
Vísindamenn hafa fundið „týnda veröld“ í indón-
esískum frumskógi, þar sem tugir áður óþekktra
tegunda og annarra í útrýmingarhættu þrífast.
NÝR FROSKUR Einn froskanna sem vísindamenn fundu í Papúa Nýju-Gíneu. Hann er talinn
vera af áður óþekktri tegund. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MJÓNEFUR Einn mjónefjanna sem leyfði
vísindamönnum að taka sig upp og skoða.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HUNANGSFUGL Vísindamenn telja að þessi
hunangsfugl sé af áður óþekktri tegund.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÓÐAÚTHLUTUN Fáir hafa skilað inn
kauptilboðum í þær 120 lóðir sem
Reykjavíkurborg ætlar að selja í
Úlfarsfelli. Útboðið var opnað á
mánudag og þurfa kauptilboðin
að berast Skipulags- og bygginga-
sviði fyrir klukkan fjögur þann
16. febrúar. Hver bjóðandi greið-
ir 250 þúsund í tilboðstryggingu.
Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri
framkvæmdasviðs borgarinnar,
segir venju að svona útboð fari
rólega af stað en herðist á síðustu
dögum þess.
Lágmarkstilboð fyrir einbýl-
ishúsalóðir eru 10,5 milljónir,
ellefu milljónir fyrir parhús en
misjafnt verð eftir stærð fjölbýl-
ishúsa. - gag
Útboð vegna lóða í Úlfarsárdal:
Fáir skila inn tilboðum
ÚLFARSÁRDALUR Byggð verður þéttari í
Úlfarsfelli en fólk á að venjast í úthverfum
á Íslandi.
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00
SKIPT_um væntingarPATROL
NISSAN
ENDIST ENDALAUST
Veiðikortið 2006 fylgir
öllum 4x4 Nissan bílum
Patrol Luxury Beinskiptur 3.990.000 kr.
Patrol Luxury Sjálfskiptur 4.090.000 kr.
Patrol Elegance Beinskiptur 4.390.000 kr.
Patrol Elegance Sjálfskiptur 4.490.000 kr.
Tegund Verð
Rúmgó›ur og árei›anlegur vinnufljarkur sem hefur s‡nt
og sanna› a› hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er
einfaldlega alvöru jeppi fyrir alvöru fólk!
33" dekk, toppbogar og dráttarbeisli
250.000 kr. kaupauki
Bíll á mynd er 35" breyttur
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar
Visir.is er stærsta fréttalind landsins. Þar miðla Fréttablaðið og Nýja fréttastofan fréttum allan
sólarhringinn og nú er NFS í beinni á VefTV frá morgni til kvölds. Þú færð fréttirnar beint í æð
í vinnunni eða heima og upptökur af fréttum dagsins tryggja að þú missir ekki af neinu.