Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 18
8. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR18
og fólk
pörupiltar
á Kringlukránni miðvikudagkvöld kl. 22:00
Uppistand, dans, söngur, glens og mikið grín!
Leikkonur: Alexía, Arnbjörg Hlíf, Halldóra Geirharðs, Ólafía Hrönn,
Halla Margrét, Hildigunnur, Ingrid, Sólveig og María.
Aðgangseyrir 1200 kr.
„Það er hugur í okkur Gustsmönnum. Menn eru léttir og kátir og byrjaðir
að ríða út á fullu. Við ætlum að hafa það gott í Glaðheimum meðan við
verðum þar og ef við förum eitthvað annað þá verður bara ennþá betra
þar.“ segir Hulda G. Geirsdóttir.
Hún og Bjarni Bragason keyptu sér nýverið stærra hesthús í því
umrædda hverfi Glaðheimum. Um næstu helgi verður árshátíð hjá Gust-
urum. Þá verður fyrsta mót vetrarins haldið, vetrarleikar í reiðhöllinni.
„Ég ætla að vera með,“ segir Hulda. „Ég stefni að því að fara með uppá-
haldshryssuna mína, hana Gullskjónu, og sjá hvað við getum gert saman,
stöllurnar. Hún er undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Sýn frá Laugar-
vatni, sem ég á fjögur hross undan. Þetta er blóð sem mér líkar mjög vel.“
Þau Bjarni eru með níu hross og þrjú folöld á húsi. Tveir ungir aðstoðar-
menn eru hjá þeim, sem ríða út með þeim.
„Ég er voða spennt fyrir þessum vetri. Ég er með mikið af spennandi
og skemmtilegum hrossum, þar á meðal ungar hryssur sem er búið að
frumtemja og eru í vinnslu eins og sagt er. Einnig eldri hross sem búið er
að vinna í en eru alltaf að bæta sig.“
Hulda og Bjarni hafa fengist við ræktun og nú segist hún vera í fyrsta
skipti með hross á húsi úr eigin ræktun, sem verið er að ríða á.
„Þetta er voða gaman og viss tímamót hjá manni,“ segir hún. „Það er
ofsalega spennandi að rækta, sjá hvað maður fær og hvernig það þróast.
Fátt er skemmtilegra heldur en að fylgjast
með folöldunum. Þess vegna erum við
nú einmitt með folöldin inni, til að
kynnast þeim betur fyrsta vetur-
inn, sjá hvernig skapgerðin er og
„týpurnar.“ Maður lærir mikið á því.
Við fortemjum þau aðeins, kennum
þeim að teymast, taka upp á þeim
fót, kemba þau og venja við snert-
inguna. Það er ekki spurning að
það er mjög gott að undirbúa
ungu hrossin með þessari
meðhöndlun, án þess þó að
dekra þau.“
Hulda með Felix frá Stóra-Sand-
felli, hálfbróður Gullskjónu.
HESTAMAÐURINN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR
Ætlar að keppa á Gullskjónu
Tvær hestasundlaugar eru í
byggingu á Íslandi. Áhuginn
á sundi sem þjálfunaraðferð
íslenskra hesta vaknaði
fyrir alvöru eftir frábæran
árangur Jóhanns Skúlason-
ar sem varð heimsmeistari í
tölti á síðasta ári á stóðhest-
inum Hvin frá Holtsmúla
sem Jóhann þjálfaði meðal
annars í sundi.
„Það sést stór munur á hestum
sem hafa verið í þessu lengi,“ segir
Jóhann Skúlason heimsmeistari í
tölti sem búsettur er í Danmörku
og fer vikulega með fimm hesta á
kerru, 25 kílómetra leið, til að láta
þá synda í innisundlaug. „Sundið
styrkir marga vöðva og eykur þol.
Hins vegar er ekkert álag á sinar
því hestarnir berja ekki löppun-
um í grjótharðar götur,“ útskýrir
Jóhann sem byrjaði á sundþjálfun
hesta sinna fyrir rúmu ári síðan.
Hann segir hestana ánægða með
þjálfunina og lygni þeir beinlínis
aftur augunum þegar þeir standi í
hitaljósum eftir góðan sundsprett,
en það þarf að gera til að þurrka
þá.
Jóhann segir sundþjálfunina,
líkt og aðra þjálfun, fara stig-
vaxandi. Til að byrja með syndi
hestarnir ekki langt, tvær ferðir
fram og til baka í 35 metra laug.
Þá bætist við ferð í hvert skipti
og einnig farið að synda á hring.
Þegar hestur er kominn í topp-
þjálfun segir Jóhann sundið vara
í um 25 mínútur.
Sú gagnrýni hefur komið fram
að sundið henti ekki öllum hest-
um þar sem sumir kunni ekki að
synda og beiti vöðvum vitlaust.
Jóhann gefur ekki mikið fyrir
þær gagnrýnisraddir. „Hestar
byrja stundum að synda fattir
þannig að rétt sér í nefið á þeim
og maður hefur á tilfinningunni
að þeir séu að drukkna, en það
breytist eftir því sem þeir styrkj-
ast og lendin kemur upp úr vatn-
inu,“ útskýrir Jóhann og bætir við
að hann myndi ekki vera að þessu
ef hann sæi ekki árangur erfiðis-
ins enda kostar þetta bæði tíma og
peninga.
Tvær hestasundlaugar eru
í byggingu á Íslandi, ein í Víði-
dal, sem ef að líkum lætur verð-
ur opnuð fyrir vorið, og önnur í
Áskoti í Rangárvallasýslu en von-
ast er til að hún verði tekin í notk-
un mánaðarmótin mars, apríl.
Jóhann tekur undir nauðsyn
þess að koma upp góðri sundað-
stöðu á Íslandi. Hann óttast þó
að þetta geti orðið nokkurs konar
loftbóla sem springi. „Við erum
þannig Íslendingar flestir hverjir
að við viljum sjá árangur strax á
fyrstu viku sem þú gerir auðvitað
ekki. Þetta er ekki lausn á einu eða
neinu eitt og sér og það verður að
ríða hrossum eins og alltaf hefur
verið,“ segir heimsmeistarinn
ákveðinn.
solveig@frettabladid.is
Á SUNDI Jóhann keyrir hesta sína 25 kílómetra leið að Hammerthor Pool Center í Dan-
mörku þar sem þeir eyða deginum í sundi og slökun undir hitaljósum.
HAMMERTHOR POOL CENTER
HEIMSMEISTARAR Jóhann Skúlason varð heimsmeistari í tölti árið 2005 á stóðhestinum
Hvin frá Holtsmúla. Jóhann stefnir á að verja titilinn á Hvin á HM 2007.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIÐFAXI
Sundið styrkir og stælir
SÉRFRÆÐINGURINN SIGURÐUR TORFI SIGURÐSSON JÁRNINGAMEISTARI
Einungis á að nota botna þegar hestur
er sárfættur, notaður undir álagi á
hörðum keppnisvöllum eða á ferða-
lögum, segir Sigurður Torfi Sigurðsson
járningameistari. Lausnarorðin „bara að
skella honum á botna“ hefur oft heyrst
í gegnum tíðina ef vandamál gera vart
við sig hjá reiðhestinum. En þetta er
ekki svona einfalt, að sögn járninga-
meistarans.
„Botna á að nota ef hesturinn er
með eymsli í hóf. Þá eru þeir nauðsyn-
legir. Maður setur ekkert á botna bara
til að setja á botna. Það er betra fyrir
hestinn að vera án þeirra,“ segir hann.
„Sumir hestar þurfa alltaf að vera á
botnum, til að mynda hafi hesturinn
fengið hófsperru og hófbotninn orðinn
siginn.“
Sigurður Torfi segir ekki rétt að
hófbotn sigi á hestum sem járnaðir
eru á botna. Hins vegar eyðist hann
ekki, þannig að tálga þurfi hann upp,
fjarlægja dautt horn og hreinsa hann
vandlega við járningu. Sé rétt frá botn-
unum gengið örvi þeir frekar blóðflæði
í hóftungu heldur en hitt. Sé pakkað
með hófbotninum liggi massi í hóf-
tungunni og hófbotninum. Því sé frekar
um örvun að ræða einkum sé hófurinn
vaxinn. Sjálfur kveðst Sigurður Torfi nota
sérstakt silikonefni sem loki algjörlega
þannig að skítur og möl komist ekki
undir botninn. Þá standi tjöruhampur-
inn alltaf fyrir sínu með mjúkum botn-
um.
„Þegar stefnt er með hross í keppni
er gott að hafa einhverja kransa eða
botna til að hlífa þeim. Oft er verið að
keppa eða sýna hross á hörðum velli
þannig að slíkur búnaður hlífir sinum
og liðum mjög mikið. En í reiðtúrum í
hesthúsahverfunum eru mjúkar götur,
þannig að þar er ekki þörf fyrir botna á
heilbrigðan hóf.“
Best að nota ekki botna undir heilbrigða fætur
Félagsfundur veður haldinn í veislusal hesta-
mannafélagsins Gusts í Kópavogi á morgun,
9. febrúar klukkan 20.15. Á fundinum mun
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og viðræðunefnd
félagsins kynna hugmyndir um nýtt félagssvæði
á Kjóavöllum og nágrenni.
■ Félagsfundur Gusts í Kópavogi:
Rætt um ný félagssvæði
„Þetta á að vera virkur fréttamiðill frá degi til dags,“ segir Júlíus
Brjánsson um hestavefinn www.847.is sem hann hefur nýverið
fest kaup á. Það er Pókus ehf. sem stendur á bak
við kaupin, en það eiga Júlíus og fjölskylda hans
ásamt fleirum. Júlíus verður umsjónarmaður, en
fleiri munu koma að fréttaöflun og skrifum.
„Við munum leggja áherslu á kyn-
bótaþáttinn og ræktunina og kapp-
kosta að sinna þeim lesendahóp
vel,“ segir hann. „En við munum
að sjálfsögðu gera eins vel við alla
þætti hestamennskunnar og kostur
er.“
JÚLÍUS BRJÁNSSON
Gefur á stallinn.
■ Júlíus Brjánsson:
Keypti hestavefinn 847.is
Guðrún H. Valdimarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts
hestamanna ehf. Þetta er nýtt starf en hingað til hafa
framkvæmdastjórar landsmóta verið ráðnir tímabundið
og ekki hefur verið starfandi framkvæmdastjóri hjá LH
um nokkurra ára skeið.
Guðrún hefur starfað sem hagfræðingur hjá Orku-
veitu Reykjavíkur og sem fjármála- og starfsmannastjóri hjá
Fortis, auk þess að hafa áralanga reynslu af störfum í blaða-
mennsku. Hún hefur verið í hestamennsku frá barnsaldri
og var um árabil farastjóri hjá Íshestum. Guðrún hefur
störf mánudaginn 13. febrúar.
■ Landssamband hestamannafélaga og Landsmót ehf:
Nýr framkvæmdastjóri
Vissir þú að:
Á árinu 2005 var 1.501 hestur
fluttur úr landi. Þar af flestir til
Svíþjóðar, alls 335.
Heimild: www.worldfengur.com
?
SIGURÐUR TORFI Járningameistarinn að
störfum.