Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 22
[ ]
���� ������������������� ��������������������� ���������
���� �� ������������������ ������� �������������� ���� ��������� ��
��������������������������������
���� ��� �������� ���� ���� ������� �������� ������������� ���� ������� ��
�����������
����� �� ���������� ���������� �
�������������������
���������������������������������
���������
��������
�������������
�������
Árg. '94. Ekinn 148 þús.,
sjálfskiptur, rafmagn í rúðum,
hiti í sætum, cruise control,
sóllúga, 33“ dekk, álfelgur,
dráttarkrókur.
Nýskoðaður.
Einn eigandi frá upphafi.
Upplýsingar í s. 893 7773NISSAN TERRANO V6 3L
Læsingar á bílum eiga það til að frjósa fastar þegar kalt er úti.
Það getur verið gott ráð að setja heitt vatn í poka og láta hann liggja við
læsinguna smá stund.
Sala á smærri fólksbílum hefur
aukist gífurlega um allan heim
á undanförnum misserum.
Smærri bílar á borð við Aygo,
Getz, Fabia, Swift og fleiri eru allt-
af að verða algengari og algengari
sjón hér á landi. Þessi þróun á hins
vegar ekki bara við um okkar litla
land heldur á hún sér stað á flest-
um öðrum svæðum heimsins.
Í Bandaríkjunum jókst sala
smærri fólksbíla um 7% á meðan
hún jókst eingöngu um 2% á
öðrum fólksbílum. Þar í landi
er Chevrolet Aveo vinsælasti
smábíllinn en þar keppast fram-
leiðendur við að koma með nýja
smábíla á bandarískan markað
sem áður hafa einungis fengist í
Evrópu. Helsta ástæða þessara
auknu vinsælda smábíla í Banda-
ríkjunum telja sérfræðingar vera
hækkandi bensínverð. Smærri
fólksbílar eyða vitanlega mun
minna bensíni en stærri bílar og
eru þess vegna mun hagkvæmari
í rekstri auk þess em þeir kosta
yfirleitt minna.
Hér á Íslandi má segja að fólk
sé bæði að spara og eyða meira
á sama tíma. Með auknu góðæri
tíðkast meira og meira að tveir
til þrír bílar séu á hverju heimili.
Fólk hefur því verið að bæta við
sig smábíl, þá oft fyrir unglinga
sem eru nýkomnir með bílpróf eða
í snögga innanbæjarakstra. Undir
þetta sjónarmið taka bæði Gísli
Jón Bjarnason, sölustjóri nýrra
Ford bíla hjá Brimborg, og Krist-
inn Bjarnason, markaðsstjóri
Toyota. Gísli segir að hann marki
enn ekki aukna sölu smærri fólks-
bíla vegna hækkandi bensínverðs
heldur frekar vegna þess að fólk
sé að bæta við sig þriðja bílnum á
heimilið.
Auknar vinsældir smærri bíla
má einnig útskýra út frá bættum
gæðum bílanna. Öryggisbúnað-
ur bílanna hefur til dæmis alltaf
verið að aukast og gæði véla þeirra
einnig. ,,Smærri bílar henta betur
í innabæjarakstur. Þetta eru með-
færilegir bílar sem maður kann
vel við,“ segir Kristinn.
steinthor@frettabladid.is
Vinsældir smábíla
aukast um heim allan
Smærri fólksbílar henta vel í þröngar götur borga og bæja.
Toyota Yaris var söluhæsti smábíllinn á
Íslandi í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ford bílaframleiðandinn í
Bandaríkjunum vonar að nýr
smábíll frá Mözdu geti bjargað
þeim á þeirra heimavelli.
Ford hefur ásamt General Motors
átt gífurlega erfitt uppdráttar á
bandarískum bílamarkaði að und-
anförnu. Sala hefur dregist veru-
lega saman og hefur fyrirtækið
þurft að segja upp tugi þúsunda
starfsfólks. Nú ætlar Ford hins
vegar að snúa vörn í sókn og herja
á hinn stórvaxandi markað smærri
fólksbíla.
Til þess að aðstoða Ford við
framleiðslu á nýja smábílnum
ætlar bílaframleiðandinn að leita
til Mözdu, dótturfyrirtækis síns
í Japan. Að sögn forseta Mözdu í
Japan, Hisakazu Imaki, er þróun-
arvinna nýbyrjuð og hann gerir
ráð fyrir að bíllinn komi bæði á
bandarískan og evrópskan mark-
að innan fárra ára. Margir telja að
aðeins sé of seint í rassinn gripið
hjá Ford en helstu ráðamenn þar
telja að markaður smærri fólks-
bíla sé enn í miklum vexti og
eigi vafalaust eftir að vera það
áfram.
Ford treystir á Mözdu
Landflutningar og
umferðaröryggi
MÁLÞING UM LANDFLUTNINGA OG
UMFERÐARÖRYGGI Á NÆSTUNNI.
Málþing um landflutninga og
umferðaröryggi verður haldið 9.
febrúar á vegum umferðarstofu í
samstarfi við samgönguráðuneytið
og Vegagerðina. Málþingið verður
haldið á Grand hóteli frá klukkan 13
til 17. Það er öllum opið og ókeypis
aðgangur en þátttakendum ber að
tilkynna þátttöku sína á netfangið
us@us.is.
Meðal þess sem rætt verður
er slysaþróun þar sem stórir bílar
og bílar með tengivagna koma við
sögu. Rætt verður um vegakerfið og
hvernig það annar öllum þungaflutn-
ingum.
málþing }
Ford á ráðandi, þriðjungs, hlut í Mözdu í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP