Fréttablaðið - 08.02.2006, Qupperneq 24
[ ]
I n n r i t u n f e r f r a m á G r e n s á s v e g i 1 6 a, í s í m a 5 8 0 1 8 0 0 e › a á h e i m a s í › u n n i w w w . m i m i r . i s
S Í M E N N T U N
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
.1
4
6
Ný námskeið að hefjast á næstunni
Háborgin Spánar...- Madrid í máli og myndum 5 st.
Umsjón hefur Kristinn R. Ólafsson
firi. 28. feb. og fi. 2. mars kl. 20-22.
Leiklistarnámskei› 24 st.
Námskei› haldi› í samvinnu vi› Borgarleikhúsi›
Umsjón hefur Pétur Einarsson
firi. kl. 20-22:15 og lau. kl. 13-15:15. Frá 11. feb. til 6. mars.
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.“
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð,
nytsamlegt, áhugavert, krefjandi, skemmtilegt,
mjög gott, þægilegt, lipurt, skipulagning,
einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari,
spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
...næsta námskeið 28. febrúar
Námsflokkar Hafnafjarðar - hraðlestrarnámskeið - 16. febrúar
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––-
“...á námskeiðinu fékk ég svörin og
ábendingarnar sem mig vantaði.“
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur
... næsta námstækninámskeið hefst 18. febrúar
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Valentínusar
dagurinn nálgast!
Komdu elskunni
þinni á óvart og
málaðu flotta gjöf.
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Keramik fyrir alla
• 5 vikna talnámskeið
hefjast 22. febrúar
• 5 vikna ævintýranámskeið
fyrir börn hefjast 25. febrúar.
• 5 vikna námskeið fyrir 10. bekk
• Málaskólar erlendis
Eyrnatappar geta komið sér vel þegar lært er fyrir próf. Margir
láta öll hljóð trufla sig og eiga auðveldara með að einbeita sér með
eyrnatappa.
Baldur Bjarnason er nemandi
á öðru ári í rafmagnsverk-
fræði. Hann vann Hönnunar-
keppni véla- og iðnaðarverk-
fræðinema sem haldin var 3.
febrúar síðastliðinn með bíl
sem getur keyrt í vatni.
Baldur hóf nám í rafvirkjun
en áður en hann lauk því námi
ákvað hann að skipta og fara í
rafmagnsverkfræði. „Ég ákvað
bara að skipta um gír og fara í
háskóla,“ segir hann.
Baldur er mjög ánægður í
rafmagnsverkfræðinni. „Þetta
er náttúrlega erfitt nám en það
hjálpar hvað félagslífið er öfl-
ugt. Það er gríðarlega gott og
það dregur mann einhvern veg-
inn áfram.“
Rafmagnsverkfræði er
þriggja ára nám í Háskóla
Íslands. „Þetta eru þrjú ár í
B.S. en til þess að geta kallast
verkfræðingar fara flestir út og
klára meistaranám sem tekur
tvö ár.“ segir Baldur sem stefnir
sjálfur á nám erlendis eftir BS-
gráðuna.
Baldur keppti í hönnunarkeppni
véla- og iðnaðarverkfræðinema
sem haldin var síðasta föstudag.
Keppnin er árviss viðburður og
fylgir henni ávallt mikil stemn-
ing. Fyrir hana hafði Baldur búið
til bíl sem gat keyrt í vatni og það
nægði honum til sigurs.
„Keppnisbrautin var í fimm-
tíu sentimetra djúpu vatni alla
leið og það átti að skila kúlum í
ákveðið hólf en það tókst engum
að klára þetta nema mér,“ segir
hann og er að vonum ánægður
með sigurinn. „Keppnin er hald-
in af véla- og iðnaðarverkfræði-
nemum en allir fá að taka þátt og
það er áskorun að reyna að hirða
verðlaunin yfir í aðra deild.“
Baldur eyddi tölverðum tíma
í hönnun bílsins. „Þetta hefur
tekið flestar nætur síðan ég
byrjaði eftir jólin,“ segir hann.
Þó er hann nokkuð viss um að
taka þátt í keppninni að ári liðnu.
„Mér finnst líklegt að ég reyni
að halda titlinum.“
emilia@frettabladid.is
Hannaði bíl
sem ekur í vatni
Baldur Bjarnason með verðlaunatæki sitt úr Hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Í KVÖLD VERÐUR HELGA BRAGA
JÓNSDÓTTIR MEÐ NÁMSKEIÐIÐ
DAÐUR OG DEIT Í MÍMI-SÍMENNTUN
Námskeiðið Daður og deit verður
haldið í kvöld frá klukkan 20.00 til
22.15 í Mími-símenntun. Helga Braga
Jónsdóttir verður með námskeiðið
sem er fyrir bæði kynin. Hún fjallar
á gamansaman hátt um samskipti
kynjanna og ætti enginn sem hefur
áhuga á slíku að láta námskeiðið
fram hjá sér fara. Námskeiðsgjald er
3.200 krónur og skráning fer fram í
Mími-símenntun.
Námskeið í daðri
Helga Braga Jónsdóttir verður með nám-
skeiðið Daður og deit í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TUNGUMÁLAFRÆÐSLA BSRB Á HÖF-
UÐBORGARSVÆÐINU HEFST BRÁTT
AFTUR OG VERÐUR MEÐ SVIPUÐU
SNIÐI OG UNDANFARIÐ.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, BSRB, hefur um nokkurt skeið
boðið upp á tungumálanámskeið.
Símenntunarstöðin Framvegis sér
um kennsluna og meðal annars er
boðið upp á nám í dönsku, ensku
og spænsku. Um er að ræða nokkur
mismunandi námskeið, eftir getu
nemenda. Hægt er að fá námskeiðin
metin til eininga á framhaldsskóla-
stigi. Hvert námsskeið er 30 kennslu-
stundir. Hægt er að nálgast frekari
upplýsingar í síma 5814914 og á
heimasíðu Framvegis, framvegis.is.
Tungumálafræðsla
á vegum BSRB
Tungumálafræðsla BSRB fer fram hjá
Framvegis, símenntunarstöð.
námskeið }
Bandalag háskólamanna mun ásamt
öðrum heildarsamtökum aðila
vinnumarkaðarins, Landssambandi
eldri borgara, sveitarfélögum og
Öldrunarráði Íslands standa að ráð-
stefnu um sveigjanleg starfslok þann
9. febrúar næstkomandi. Ráðstefnan
verður haldin í Salnum í Kópavogi og
hefst klukkan 13.15.
Að ráðstefnunni standa Öldrun-
arráð Íslands, Landssamband eldri
borgara, BHM, BSRB, ASí, Samtök
atvinnulífsins og Samband íslenskra
sveitarfélaga.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
verða Örn Clausen lögfræðingur,
Berglind Magnúsdóttir öldrunar-
sálfræðingur og Gylfi Ingvarsson,
aðaltrúnaðarmaður Alcan.
Yfirskrift ráðstefnunnar er „Eru
sveigjanleg starfslok valkostur?“
Fjölbreytt erindi verða flutt á
ráðstefnunni. Hún er öllum opin og
aðgangur er ókeypis.
(Af vefjum BHM og SA)
Eru sveigjanleg
starfslok valkostur?
RÁÐSTEFNA Í KÓPAVOGI 9. FEBRÚAR