Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 29
Kína og Indland
Risarnir í
austri rísa
12-13
Enski boltinn
Meteyðsla í
janúar
6
Styrk starfsemi | Tekjur
Dagsbrúnar í fyrra námu rúmlega
15 milljörðum en það er aukn-
ing upp á 119 prósent milli ára.
Hagnaður eftir tekjuskatt nam 718
milljónum.
Gagnrýna bankana | Tvö erlend
greiningarfyrirtæki gagnrýna láns-
hæfismat íslensku bankanna og
segja gengishagnað gera það að
verkum að staðan sé veikari en
uppgjör benda til.
Sömu kjör | Íslandsbanki fékk
sambærileg kjör og hann hefur
notið áður í útboði verðbréfa í Sviss
í vikunni. Skrif greiningarfyrir-
tækjanna virðast því ekki hafa haft
áhrif á fjárfesta.
Allir reknir | Öllu starfsfólki
Icelandic Germany, sem var hluti
af Icelandic Group, hefur verið sagt
upp störfum og skrifstofu félagsins
í Hamborg lokað.
Actavis best | Actavis hlaut þekk-
ingarverðlaun Félags viðskipta-
og hagfræðinga og Hreiðar Már
Sigurðsson, forstjóri KB banka, var
valinn viðskiptafræðingur ársins.
Carnegie stærstur | Carnegie,
stærsti banki Svíþjóðar sem
er að fimmtungshluta í eigu
Landsbankans, var umsvifamesti
viðskiptaaðilinn í norsku kauphöll-
inni í janúar.
Tíu milljarðar | Samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Hagstofu Íslands
var vöruskiptahallinn í janúar um
10 milljarðar miðað við 5 milljarða
á sama tíma í fyrra.
Kaup minnka | Mjög dró úr kaup-
um erlendra aðila á íslenskum verð-
bréfum á fjórða ársfjórðungi. Námu
þau 7,3 milljörðum króna miðað við
43 milljarða árið á undan.
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 8. febrúar 2006 – 5. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Hluthafar og stjórnendur Bílanausts, ásamt
nokkrum öðrum fjárfestum, hafa keypt allt hlutafé
í Olíufélaginu ehf. sem rekur bensínstöðvar Esso.
Samkvæmt heimildum Markaðarins hleypur kaup-
verðið á bilinu 17 til 18 milljarðar króna, en með
í kaupunum er einnig eignarhluti Olíufélagsins í
Olíudreifingu. Olíufélagið og Bílanaust verða í eigu
nýs eignarhaldsfélags sem ætlað er að velti um 26
milljörðum króna í ár.
Kaupverðið hefur hvorki fengist
staðfest hjá kaupendum né seljend-
um, en báðir segja nokkuð flókið að
reikna út endanlegt verð og vísa til
fyrri áætlana um verð á bilinu 15 til
20 milljarðar.
„Stærsta málið sem við stöndum
frammi fyrir núna er að finna nafn á
eignarhaldsfélagið,“ gantast Hermann Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Bílanausts, en hann verður einn-
ig framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins. Hann
segir ekki gert ráð fyrir miklum áherslubreytingum
í rekstrinum. „Enda teljum við að Olíufélagið sé vel
rekið og hlökkum til að vinna með starfsmönnum og
viðskiptavinum félagsins.“ Þá segir hann töluverða
möguleika í samstarfi Bílanausts og Olíufélagsins.
„Einkum í þróun á þjónustu við bifreiðaeigendur og
stórnotendur. Olíufélagið hefur sterkt dreifikerfi
um allt land og Bílanaust hefur mesta bílavöruúrval
landsins þannig að við væntum að þess verði ekki
langt að bíða að bifreiðaeigendur muni njóta aukinn-
ar þjónustu félaganna.“
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Olíufélagsins,
er ánægður með söluna og hversu hratt hún hafi
gengið fyrir sig, en söluferlið hófst í janúarbyrjun.
„Okkur líst vel á kaupendurna og teljum að félagið
sé í góðum höndum.“ Hann segir nú verða fylgt eftir
ákveðnum breytingum á fjárfestingarstefnu Kers hf.
sem var eignarhaldsfélag Olíufélagsins, með auknu
vægi fjárfestinga í útlöndum, en
sú stefna hafi verið mörkuð fyrir
nokkru.
Örn Gunnarsson, forstöðumaður
Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka,
sem umsjón hafði með söluferlinu
segir það hafa gengið vel og áhugi
á félaginu hafi verið mikill eins og
búast hefði mátt við. „Félagið er
fjárhagslega sterkt og með góða markaðshlutdeild og
áhuginn endurspeglaði það,“ segir hann.
Olíufélagið ehf. var stofnað í desember 2001 og tók
1. janúar 2002 yfir kjarnastarfsemi Olíufélagsins hf.,
sem nú heitir Ker hf., innflutning og sölu á eldsneyti
og tengdan verslunarrekstur. Bílanaust var stofnað
21. apríl 1962 og hefur frá stofnun sinnt innflutningi
og sölu bílavarahluta. Fyrirtækið rekur nú átta versl-
anir og fjögur þjónustuverkstæði auk þess að reka og
eiga hjólbarðainnflutningsfyrirtækið Ísdekk.
Bílanaust kaupir Esso
Olíufélagið Esso hefur verið selt á 17 til 18 millj-
arða króna. Ker, áður eignarhaldsfélag Esso,
hyggur á auknar fjárfestingar í útlöndum.
Von er á nýrri löggjöf og breytt-
um vinnureglum fjármálastofn-
ana til að hamla gegn peninga-
þvætti.
Að sögn Kristins Arnars
Stefánssonar, lögfræðings hjá
Fjármálaeftirlitinu, er endur-
skoðun á lagaumhverfi og við-
búnaði hér ekki síst í tilefni af
úttekt FATF, alþjóðlegs starfs-
hóps um aðgerðir gegn pen-
ingaþvætti. FATF er samstarfs-
vettvangur ríkja innan OECD og
von er á sendinefnd frá honum
hingað í vor.
Komist hópurinn að þeirri
niðurstöðu að hér sé ekki nógu
vel að málum staðið, getur sú
einkunn meðal annars haft áhrif
á lánshæfismat fjármálafyrir-
tækja. Sjá síðu 22 / - óká
Peningaþvættis-
lög í smíðum
Gott til síðasta dropa
Gagnrýni á bankana
Byggð á mis-
skilningi
10
Hlutabréf í KB banka hækkuðu
um tæp fjögur prósent í gær-
morgun og fóru í rúmar 970
krónur á hlut. Hækkunin varð í
kjölfar verðmats sem greining-
ardeild Íslandsbanka gaf út á KB
banka og sendi til viðskiptavina
sinna. Samkvæmt verðmatinu
er meðalgildi bréfa í KB banka
1.014 krónur á hlut og mark-
aðsvirði bankans því tæpir 674
milljarðar króna.
KB banki er langstærsta félag
Kauphallarinnar sé miðað við
markaðsvirði. Rúmlega helm-
ingi stærri en Landsbankinn sem
metinn er á 308 milljarða króna.
- jsk
KB hækkaði
snarlega
KB BANKI Hlutabréf í KB banka hækkuðu
snarlega í morgun í kjölfar frétta af nýju
verðmati greiningardeildar Íslandsbanka á
KB.
Lánshæfiseinkunn bréfa
Kaupþingsbanka hjá Moody’s er
Aaa sem er sama einkunn og
íslenska ríkið fær. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslenskt fyrir-
tæki án ríkisábyrgðar fær slíka
einkunn.
Sú tegund skuldabréfa sem
sem Kaupþing banki mun gefa
út kallast á ensku „Structured
Covered Bonds“, eða „sérvar-
in skuldabréf“. Auk ábyrgðar
Kaupþings banka á greiðslu
skuldabréfanna eru þau tryggð
með ábyrgð sem er sérstak-
lega afmörkuð við íbúðalán sem
bankinn hefur veitt. Beitt er
nýjustu aðferðum fjármálaverk-
fræði til þess að tengja saman
greiðsluflæði eigna og skulda og
lágmarka um leið áhættu fjár-
festa. Stefnt er að skráningu
hins nýja skuldabréfaflokks í
Kauphöll Íslands.
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings banka, segir það
tímamót að einkafyrirtæki fái
slíka einkunn. „Þetta er ánægju-
legur afrakstur frumkvæðis og
hugmyndaauðgi starfsmanna
bankans. KB íbúðalán bera um
þessar mundir lægstu vexti sem
völ er á hérlendis og lánshæfis-
einkunnin mun auðvelda okkur
að halda leiðandi stöðu bankans
á íbúðalánamarkaðnum.“
Kaupþing fær sömu einkunn
á skuldabréf og ríkið
Kaupþing banki gefur út bréf til að fjármagna húsnæðislán sín. Bréfin hafa
fengið sömu lánshæfiseinkunn og íslenska ríkið.