Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 45
MARKAÐURINN
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
17MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006
S K O Ð U N
Um 160 brúttólesta skip var nán-
ast sokkið við bryggju síðastliðið
haust. Ástæðan var sú að sjó-
lögn fór í sundur frá dælu sem
var fyrir lestarkælingu skipsins.
Sjór streymdi inn í framskipið
þar sem mjög dýr búnaður er til
staðar svo sem ljósavél, vara-
hlutalager ofl. Óhappið átti sér
stað að næturlagi og var skipið
því mannlaust.
Nokkrum árum áður hafði
eigandinn ákveðið að festa kaup
á öryggiskerfi frá öryggisfyrir-
tæki sem er með hringibúnaði.
Kerfið virkaði sem skyldi og til-
kynnti það þegar í stað til örygg-
isfyrirtækisins að sjór væri kom-
inn í framskipið. Starfsmenn
öryggisfyrirtækisins hringdu
strax í eiganda bátsins sem fór
með vélstjóra skipsins um borð
og hófust þeir handa við að dæla
úr skipinu og stöðva lekann.
Rýmið fylltist þó nánast af sjó
og var skipið farið að síga veru-
lega niður að framan.
Talsvert tjón varð en ljóst er
að tjónið hefði orðið mörgum
tugum milljónum meira ef skipið
hefði sokkið við bryggjuna. Og
það sem skiptir oft á tíðum mestu
máli er að viðgerðartíminn var
aðeins um tvær vikur í stað jafn-
vel margra mánaða sem leiddi
til þess að tjón eigandans vegna
veiðitaps varð minna en ella.
Góð viðvörunarkerfi í skipum
og bátum eru nauðsynlegur bún-
aður til verndar bæði mönnum
og verðmætum. Slíkt kerfi getur
skipt sköpum þegar hætta steðj-
ar að s.s. ef eldur kviknar eða
skyndilegur leki kemur að skip-
um. Því miður er mikil brotalöm
á því að menn geri sér grein fyrir
þessu mikilvægi og séð sé til
þess að þau starfi sem eðlilega.
Margar gerðir eru til af þess-
um kerfum en ekki skal lagt mat á
kosti né galla þeirra en þau kerfi
sem hafa innbyggðan hringibún-
að eru mjög fýsilegur kostur þar
sem þau hringja í uppgefin síma-
númer um leið og hætta steðjar
að sem eykur öryggið til muna
þegar skip liggja við bryggju og
eru mannlaus.
Hlynur Jónsson
Tjónamatsmaður í Sjódeild Sjóvá
Skipið sem nánast sökk!
Átak Marka›arins og Sjóvá
ÖRUGG FYRIRTÆKI
Nokkrum árum áður hafði eigandinn ákveðið að
festa kaup á öryggiskerfi frá öryggisfyrirtæki sem
er með hringibúnaði. Kerfið virkaði sem skyldi og
tilkynnti það þegar í stað til öryggisfyrirtækisins að
sjór væri kominn í framskipið.
Ég er einn þeirra sem hef allt-
af tekið upp hanskann fyrir Ólaf
Ólafsson þegar menn eru að
öfundast út í hann. Ég hef líka
sagt vinum mínum að það hafi
aldrei neinn grætt neitt á því að
vanmeta hann.
Sannleikurinn er sá að Ólafur
hefur reynst gríðarlega framsýnn
í fjárfestingum og leikurinn þegar
hann afhenti Kaupþingsstrákunum
Búnaðarbankann er sennilega við-
skipti aldarinnar. Þvílíkt sem kall-
inn er búinn að græða á því.
Nú er hann búinn að selja Essó
og laus úr öllu olíubullinu. Það
þýðir ekki fyrir neinn nema lög-
fræðinga að eiga þessi olíufélög.
Endalaus dvöl í réttarsölum út
af eldgömlu svindli. Ég myndi
allavega ekki nenna að standa í
þessu.
Stóra spurningin er, hvað gerir
Óli næst? Samskip eru í rekstri
sem ekki gefur mikið af sér og
þótt ég hafi fulla trú á að menn
nái einhverju út úr SÍF á endan-
um, þá er það ekki alveg í sjón-
máli á næstu vikum.
Ég held að FL Group og Ólafur
Ólafsson eigi eftir að rugla
saman reitunum enn frekar. Það
gæti verið fólgið í því að leggja
Samskip inn í Icelandair og fara
svo með allt saman á markað.
Þanngi gæti FL Group losað pen-
ing og Ólafur líka. Þá peninga
myndu þeir svo nýta til erlendra
fjárfestinga.
Ég spái því að Icelandair verði
komið á markað áður en árið er
liðið. Hugsanlega verður búið að
selja eitthvað meira af eignum
áður. Björgólfsfeðgar náðu góðum
árangri með því að fara með félög
Eimskipafélagsins í smá útsýn-
istúr. Ég held að Hannes og co.
kunni sömu trix og muni ná að
gera sér góðan mat úr eignunum.
Bankaflugið heldur svo áfram og
ég er orðinn svo ríkur af því að
hafa alltaf rétt fyrir mér, að ég
er farinn að huga að því að hætta
öllu og setja sjálfan mig á góð
eftirlaun.
Það er samt freistandi að halda
áfram næstu mánuðina. Það er
ekkert lát á þessari veislu í bráð
og maður eins og ég getur alltaf
á sig blómum bætt, sérstaklega
þegar þau spretta svona víða.
Spákaupmaðurinn á horninu
Hvað gerir
Óli næst?
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar