Fréttablaðið - 08.02.2006, Side 63
MIÐVIKUDAGUR 8. febrúar 2006 23
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.616 +2,09% Fjöldi viðskipta: 739
Velta: 5.682 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 54,0 -0,37% ... Atorka 6,20 +0,00% ...
Bakkavör 54,70 +0% ... Dagsbrún 5,62 -1,40% ... FL Group 23,50 +2,17% ... Flaga
3,88 0,00% ... Íslandsbanki 20,40 +1,49% ... KB banki 976 +4,05% ... Kögun 62,50
-0,79% ... Landsbankinn 28,00 +1,08% ... Marel 68,00 -3,0% ... Mosaic Fashions
18,00 +1,69% ... SÍF 4,08 0,0% ... Straumur-Burðarás 21,10 +1,93% ... Össur
102,50 -2,38%
MESTA HÆKKUN
KB banki +4,05%
TM +3,57%
FL Group +2,17%
MESTA LÆKKUN
Marel -3,0%
Össur -2,38%
Dagsbrún -1,40%
Umsjón: nánar á visir.is
HOLTA
EINFALT OG GOTT – NÝTTU TÍMANN VEL
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
0
9
0
Hagnaður af rekstri Marel í fyrra
nemur tæpum 429 milljónum
króna, eða 5.715.000 evrum sam-
kvæmt ársreikningi sem kynntur
var í gær. Er það nokkuð undir
væntingum greiningardeilda
bankanna, en meðaltal spáa þeirra
gerði ráð fyrir hagnaði upp á 511
milljónir króna.
Í ársreikningnum segir að
gengisþróun hafi verið félaginu
óhagstæð og að mildandi áhrifa
framvirkra gjaldeyrissamn-
inga sé hætt að gæta. Horfur til
skemmri tíma eru sagðar erfiðar
þó svo að ná megi árangri með
hagræðingu.
Fram kemur að sala ársins hafi
numið 129 milljónum evra, um
10,1 milljarði íslenskra króna, en
það sé 14,9 prósenta aukning frá
fyrra ári. Hagnaður á hlut á árinu
2005 var 2,42 evrucent, saman-
borið við 3,4 evrucent árið áður.
Í árslok samanstóð Marel-
samstæðan af 17 fyrirtækjum
sem eru með starfsemi í 14 lönd-
um. Í tilkynningu til Kauphall-
ar Íslands kemur fram að á síð-
asta ársfjórðungi 2005 hafi Póll
hf. verið sameinað Marel hf.
og Marel TVM verið sameinað
Marel Deutschland. Þá hafi bæst
við Marel Food Systems í Singa-
pore og Carnitech/Marel s.r.o.
sem sé framleiðslufyrirtæki í
Slóvakíu.
Heildareignir Marel-sam-
stæðunnar voru í árslok 2005
bókfærðar á 114,9 milljónir evra
og hafa aukist um 20 prósent frá
fyrra ári. - óká
Afkoman er undir væntingum
HÖRÐUR ARNARSON FORSTJÓRI MAREL
Marel segir framtíðarhorfur fyrirtækisins til
lengri tíma vera góðar.
Atorka Group hefur bætt við hlut
sinn í breska iðnaðarfyrirtækinu
NWF Group, upp í sextán pró-
sent hlutafjár. Gengi hlutabréfa
í breska félaginu hefur hækkað
um tólf prósent það sem af er ári.
Ætla má að eignarhlutur Atorku
í NWF sé um 1,3 milljarðar að
markaðsvirði. Að sögn Valdís-
ar Arnardóttur, kynningarstjóra
Atorku Group, hefur félagið verið
að auka við fjárfestingar sínar á
Bretlandsmarkaði undanfarin tvö
til þrjú ár og eru kaupin liður í því
að styrkja stöðu félagsins þar.
NWF hefur birt hálfs árs upp-
gjör, sem miðast við lok nóvem-
ber, sem sýnir mikinn vöxt í allri
kjarnastarfsemi. Tekjur sam-
stæðunnar jukust um 23 prósent á
milli ára og námu tæpum fimmtán
milljörðum. Hagnaður var um 130
milljónir króna, sem er nærri 120
prósenta aukning, og verður stór
hluti hans greiddur út í arð. NWF
Group byggir starfsemi sína á
fjölþættri starfsemi: Fóðurfram-
leiðslu, flutningastarfsemi, olíu-
dreifingu og rekstri stórra garð-
yrkjuverslana. Félagið greindi frá
því nýverið að það hefði eignast
garðyrkjuverslunina Woodford
Park sem er sunnan við Manchest-
er. Kaupverðið var um tvær millj-
ónir punda sem var fjármagnað
með útgáfu nýs hlutafjár. - eþa
Atorka bætir
við sig í NWF
Indverska hagkerfið mun vaxa
um 8,1 prósent á því tólf mánaða
tímabili sem endar 1. mars ef eitt-
hvað er að marka hagvaxtarspá
viðskiptaráðuneytis landsins. Slík-
ur hagvöxtur hefur ekki mælst á
Indlandi í rúm tvö ár og er langt
umfram væntingum.
Mestu munar um aukna fram-
leiðni í iðnaði og þjónustugeirum.
Þá spillir ekki fyrir að uppskera
í landbúnaði er með besta móti.
Stjórnvöld í landinu eru himin-
lifandi og lét Manmohan Singh
forsætisráðherra hafa eftir sér að
stefnt væri að tíu prósenta hag-
vexti árið 2006. -jsk
Indland á
góðri siglingu
MANMOHAN SINGH, FORSÆTISRÁÐHERRA
INDLANDS, MEÐ KÍNVERSKUM STARFS-
BRÓÐUR SÍNUM Hagvöxtur á Indlandi
mælist rúmlega átta prósent og hefur ekki
verið meiri í tvö ár. Singh er himinlifandi
með árangurinn.