Fréttablaðið - 08.02.2006, Blaðsíða 71
MIÐVIKUDAGUR 8. febrúar 2006 31
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
11
21
0
2/
20
06
Fegurðarauki:
Afsláttur af
snyrtivörum
%
Í dag og á morgun, 8. og 9. feb., fögnum við
hækkandi sól og bjóðum 15% afslátt af öllum
snyrtivörum í Debenhams.
Komdu og nýttu þér fegurðaraukann okkar
og nældu þér í ein flottustu snyrtivörumerkin
á markaðnum, - á mun betra verði.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Paparazzi-ljósmyndari sem var ákærð-ur fyrir að hafa lagt börn leikkonunn-
ar Reese Witherspoon í hættu fannst
látinn í íbúð sinn í Kaliforníu. Whiter-
spoon lagði fram ákæruna eftir
að ljósmyndarinn ætlaði
að taka mynd af sér
og börnum sínum
og nokkrum öðrum
börnum í Disney-
landi á síðasta ári.
Þegar þau vildu
ekki láta mynda
sig ýtti hann
einu barninu
og lamdi annað
með myndavél-
inni til að reyna
að ná myndum
af Witherspoon.
Kristnir bókstafstrúar-menn í Bandaríkj-
unum eru ósáttir við
væntanlegan Will &
Grace-þátt þar sem
Britney Spears fer
með gestahlut-
verk. Í þættinum
leikur Spears
sjónvarpskonu
sem starfar
við þátt sem
kallast „cruci-
fixin´s“. Telur
bókstafstrú-
arfólkið að í
þættinum sé
gert grín að
krossfestingu
Krists auk
þess sem
þátturinn sé
sýndur á afar
óheppilegum
tíma – föstudeg-
inum langa.
Talið er að leikarinn Jake Gyllenhaal, sem
síðast sást í Brokeback
Mountain, muni fara
með hlutverk
lögfræðingsins
Harvey Dent
og um leið
Two-Face
í næstu
Batman-
mynd, rétt
eins og
Tommy
Lee Jones
gerði í
þriðju
myndinni
í seríunni.
Einnig er
talað um
að Paul
Bettany taki
við hlut-
verki Jacks
Nicholson sem Jókerinn. Batman sjálfur,
Christian Bale, mun að öllum líkindum
taka við fyrra hlutverki, ásamt Michael
Caine sem leikur þjóninn Alfred.
Leikkonan Eva Longoria segist
ekki vera trúlofuð
körfuboltakappanum
Tony Parker og því sé
brúðkaup ekki fyrir-
hugað í bráð. Longor-
ia giftist leikaranum
Tyler Christopher
þegar hún var
27 ára en þau
skildu fyrir ári.
Segist hún ekki
vera tilbúin alveg
strax að giftast
því síðast hafi
hún verið of
ung.
„Ef fólk vill greiða sér eins og hún
er málið að túbera nógu mikið og
spreyja nógu mikið. Hvað litunina
varðar er að hafa það bara nógu
flippað,“ segir Sigurbjörg Sandra
hjá Toni & Guy um
hárið á Silvíu Nótt.
Hún segir að
venjulega tekur
það um það bil 15 mínútur upp í
hálftíma að greiða sér eins og
Silvía. Það fari þó allt eftir því
hvort hún sé með blautt hárið
þegar hún byrjar að greiða sér eða
ekki. „Ef hún er að fara til dæmis
á Edduna eða Eurovision þá tekur
það lengri tíma. Þá þarf þetta að
vera svolítið truflað og meira
skraut í hárinu,“ segir Sigurbjörg
og tekur fram að nauðsynlegt sé
að fólk sé fallegt eins og Silvía
Nótt ef það ætlar að greiða sér
eins og hún. ■
HERMDU EFTIR HÁRINU SVONA VERÐUR HÁRIÐ EINS OG Á SILVÍU NÓTT
Best að túbera og spreyja nógu mikið
SILVÍA NÓTT Sjónvarps- og söngkonan vin-
sæla er með afar óvenjulega hárgreiðslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SIGURBJÖRG
SANDRA Best
er að túbera
nógu mikið og
spreyja nógu
mikið ef þú
vilt greiða þér
eins og Silvía
Nótt.
LEIÐRÉTTING
Í blaðinu í gær var ranglega farið með
nöfn Örvars Halldórssonar og dóttur
hans, Júlíu Örvarsdóttur. Eru þau beðin
velvirðingar á því.