Fréttablaðið - 16.02.2006, Side 4

Fréttablaðið - 16.02.2006, Side 4
4 16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR DÓMSMÁL Ragnar Halldór Hall, hæstaréttarlögmaður, gerir alvar- legar athugasemdir við málsmeð- ferð heilbrigðisráðuneytisins í tengslum við stjórnsýslukæru Stefáns E. Matthíassonar, skurð- læknis, gegn Landspítalanum. Athugasemdir Ragnars varða beiðni ráðuneytisins um persónu- upplýsingar um Stefán en ráðu- neytið er úrskurðaraðili um lög- mæti uppsagnarinnar. Með þessu telur Ragnar að annar aðili máls- ins hafi fengið úrskurðaraðilann í lið með sér sem hann segir að „sé sem betur fer nær óþekkt í lönd- um í okkar heimshluta.“ Stefán var ráðinn yfirlæknir æðaskurðlækninga LSH árið 2002 og rak þá einnig lækningastofu sem hann samþykkti að hætta innan tveggja ára að uppfylltum vissum skilyrðum. Stjórnendur Landspítalans vildu síðan að Stef- án hætti stofurekstrinum sem hann taldi sér óskylt. Spítalinn áminnti þá Stefán fyrir að óhlýðn- ast fyrirmælum og gaf honum stuttan frest til að loka stofunni. Stefán höfðaði mál gegn spítal- anum og krafðist þess að áminn- ingin yrði felld úr gildi en var þá rekinn. Ragnar segir Stefán upplifa sig í glímu við sinn fyrri vinnuveit- anda og úrskurðaraðilann sjálfan. „Hann hefur því dregið kæru sína til baka og ætlar að takast á við tvíeykið fyrir dómstólum.“ -shá Skráning fer fram á www.landsbanki.is og í Þjónustuveri bankans í síma 410 4000. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara er að finna á www.landsbanki.is. Í boði er kaffi og veitingar. Fundargestir verða leystir út með lítilli gjöf. 410 4000 | www.landsbanki.is Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld Fyrirlestur í Austurbæjarútibúi Landsbankans, Laugavegi 77 í kvöld kl. 20 - Efnahagsmál í upphafi árs - Hvar liggja fjárfestingatækifærin? ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 12 80 02 /2 00 6 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 15.2.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 63,61 63,91 Sterlingspund 110,56 111,1 Evra 75,73 76,15 Dönsk króna 10,142 10,202 Norsk króna 9,321 9,375 Sænsk króna 8,114 8,162 Japanskt jen 0,5405 0,5437 SDR 91,34 91,88 91,61 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 106,3918 STÓRIÐJA Þingflokkur Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs vill að borið verði undir kjós- endur í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort áfram skuli haldið uppbygg- ingu stóriðju á næstu árum. Þing- flokkurinn lagði fram þingsálykt- un þessa efnis sem að öðrum kosti gerir ráð fyrir að framkvæmdir verði settar í biðstöðu til 2012. Gert er ráð fyrir að þjóðarat- kvæðagreiðslan fari fram sam- hliða sveitarstjórnarkosningun- um í vor. Ögmundur Jónasson þingmaður segir að efinn nái nú inn í ríkisstjórnina og margvís- leg rök mæli með því að þessi leið verði farin. - jh Vinstri grænir um álið: Vilja þjóðarat- kvæðagreiðslu Skurðlæknir ætlar í mál við Landspítalann og heilbrigðisráðuneytið: Glímir við tvíhöfða dreka STEFÁN E. MATTHÍASSON Hefur dregið stjórnsýslu- kæru á hendur Landspít- alanum og ætlar í mál við heilbrigð- isráðuneytið ásamt Land- spítalanum. STJÓRNMÁL Stjórnarandstæðingar telja að Björn Bjarnason dóms- málaráðherra hafi vísvitandi tafið breytingar á lögum um vændi með því að leggja fram drög að frum- varpi í vikunni um kynferðisbrot og vændi. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður vinstri grænna, á sæti í starfshópi dómsmálaráðherra sem skilar tillögum um vændisákvæði laganna fyrir lok vikunnar. „Mér finnst undarlegt að á sama tíma og Ragnheiður Bragadóttir próf- essor vinnur þessi frumvarpsdrög er þverpólitískur starfshópur á vegum dómsmálaráðherra að skoða lög um vændi, meðal annars með hliðsjón af sænsku leiðinni sem bannar kaup á kynlífsþjónustu. Það lítur út fyrir að hann hafi hald- ið þingmönnum í starfshópnum í gíslingu mánuðum saman.“ Kol- brún segir að þótt gert sé ráð fyrir því að unnt sé að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið sé lítil von til þess að tillit verði tekið til þeirra. „Það er tímaeyðsla að leggja fram athugasemdir því það er greinilegt að dómsmálaráðherra er ráðinn í að hundsa þær. Hann er ekki maður samvinnunnar. Engu að síður hvet ég fólk til að gera athugasemdir,“ segir Kolbrún. Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingunni, á einnig sæti í umræddum starfshópi. „Ég skil ekki hvers vegna maður er að taka þátt í þessari vinnu fyrir Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra. Við erum búin að vinna í meira en ár að vændishlutanum. Framsóknarflokkurinn myndaði meirihluta með okkur þegar þetta kom úr nefnd. Mann grunar að þetta hafi verið vísvitandi gert af Birni þar sem sjónarmið Sjálf- stæðisflokksins voru í minnihluta. Þetta staðfestir að hann vildi tefja málið alla tíð,“ segir Ágúst. Ágúst Ólafur kveðst hlynnt- ur sænsku leiðinni svonefndu, en Finnar hyggjast taka upp sömu ákvæði og í Svíþjóð um að banna kaup á vændi. „Kaupandinn hefur valið en ekki seljandinn. Þetta er ekki síst spurning um að fylgja grundvallarreglu. Dregið hefur úr götuvændi og mansali í Svíþjóð með tilkomu laganna. Er það ekki góður ávinningur,“ spyr Ágúst Ólafur. johannh@frettabladid.is Illir út í Björn vegna ákvæðis um vændi Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja dómsmálaráðherra ekkert hirða um þverpólítíska samstöðu um vændi og refsingar. Starfshópur á hans vegum skil- ar niðurstöðum í vikunni eftir að hann hefur kynnt frumvarpsdrög. BJÖRN BJARNASON DÓMSMÁLARÁÐHERRA Ekki er lagt til að banna kaup á vændi í frum- varpsdrögunum líkt og gert er í Svíþjóð. Norðmenn og Danir hafa efasemdir. KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, VINSTRI GRÆNUM „Það lítur út fyrir að hann hafi haldið þingmönnum í starfshópnum í gíslingu mánuðum saman.“ ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON SAMFYLK- INGUNNI „Ég skil ekki hvers vegna maður er að taka þátt í þessari vinnu fyrir Björn Bjarnason.“ HAÍTÍ, AP Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí fyrirskipaði í gær endur- skoðun á úrslitum talningar í for- setakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Stjórnin ákvað þetta eftir að René Préval, sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlaut, hélt því fram að umfangs- mikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. Brasilískir stjórnarerindrekar segjast leita leiða til að binda enda á stjórnarkreppuna með því að sjá til þess að Préval verði formlega lýstur sigurvegari. ■ Forsetakosningarnar á Haítí: Préval krefst endurtalningar KOSNINGAÓLGA Útfylltir kjörseðlar hafa fundist í sekkjatali á sorphaugum. DANMÖRK, AP Rúmlega þrítugum Dana var vísað úr flugvél sem var að búast til brottfarar í gær af Kastr- up-flugvelli til Malaga á Spáni. Mað- urinn var handtekinn fyrir að hafa gantast með að vera með sprengju er hann gekk um borð í vélina ásamt félaga sínum. Honum var sleppt eftir yfirheyrslu, að sögn lögreglu. Áhafnarmeðlimir vélarinnar höfðu samband við flugvallar- lögreglu eftir að hafa heyrt á tal mannanna, er annar sagði við hinn. „Mundirðu eftir sprengjunni þinni?“ Ótti við hryðjuverk hefur aukist stórum í Danmörku vegna Múham- eðsteikningafársins. ■ Vísað úr flugvél á Kastrup: Tekinn fyrir sprengjugrín ALVARLEGA SLÖSUÐ Ekið var á unga stúlku sem var á leið yfir gangbraut við Garðatorg síðdegis í gær með þeim af- leiðingum að hún slasaðist illa. Stúlkan var flutt á slysadeild þar sem henni er haldið sofandi í öndunarvél. LÖGREGLUFRÉTT NÝSKÖPUN Gunnar Örn Gunnars- son, framkvæmdastjóri Nýsköp- unarsjóðs atvinnulífsins, er hætt- ur störfum, en hann hafði gegnt starfinu síðastliðin þrjú ár. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins lét Gunnar af störfum vegna trúnaðarbrests við stjórn sjóðsins og ágrei n i ngsmá la , meðal annars um stefnu. Ríkisstjórnin samþykkti að láta sjóðnum í té 2,5 milljarða króna af söluandvirði Símans á næstu þrem- ur árum til eflingar nýsköpunar í landinu. Starf framkvæmdastjóra hefur verið auglýst laust til umsóknar. - jh Nýsköpunarsjóður atvinnulífs: Framkvæmda- stjóri hættir GUNNAR ÖRN GUNNARSSON LÖGREGLUMÁL Rannsókn stendur yfir hjá lögreglu á óvenju hrotta- legri nauðgun og líkamsárás sem átti sér stað í Grafarvogi um liðna helgi en karlmaður á sextugsaldri var kærður vegna málsins en neit- aði sök við yfirheyrslur. Þetta stað- festir Hörður Jóhannesson, yfir- lögreglumaður hjá lögreglunni í Reykjavík. Kona um fimmtugt kærði mann- inn fyrir ítrekaða nauðgun og lík- amsmeiðingar en hún var gestkom- andi í íbúð hans þegar atvikið átti sér stað. Meinaði maðurinn henni útgöngu og hélt henni fanginni í nokkrar klukkustundir. Gat hún við illan leik óskað aðstoðar lög- reglu og var flutt í skyndi á slysa- deild með slæma áverka. - aöe Hrottaleg nauðgun: Neitaði sök og látinn laus

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.