Fréttablaðið - 16.02.2006, Side 22
22 16. febrúar 2006 FIMTUDAGUR
hagur heimilanna
MATUR & NÆRING BALDUR KÁRASON MATVÆLAFRÆÐINGUR
Að brugga góðan bjór
Þegar kemur að því að
brugga góðan bjór er að
mörgu að hyggja. Fyrst
ber að telja gæði hráefna
en þau helstu eru vatn,
maltað bygg og humlar.
Þar sem bjór er yfir 90 prósent vatn
er augljóst að gæði þess skipta miklu
máli. Íslenska vatnið hentar ákaflega vel
til bjórbruggunar, einkum vegna hrein-
leika síns og lágs steinefnainnihalds.
Því þarf ekki að hreinsa það eða með-
höndla fyrir notkun eins og víða er gert
annars staðar.
Maltið gefur bjórnum lit og fyllingu
og úr kolvetnum þess býr gerið til alkó-
hól og kolsýru. Byggið er látið spíra og
síðan þurrkað. Eftir þetta ferli kallast
byggið malt. Humlarnir eru síðan not-
aðir líkt og krydd í matargerð. Þeir eru
mjög bragðmiklir og eru því notaðir í
mun minna magni en hin hráefnin en
samt ráða þeir mestu um hversu bragð-
mikill bjórinn verður. Humlarnir gefa
biturleika sem í góðum bjór á að vera
í jafnvægi við sætleika malts-
ins og gefa hæfilegt eftir-
bragð. Margar tegundir
eru til af humlum sem
gefa mismunandi bragð,
sumar gefa aðallega bit-
urleika meðan aðrar hafa
meiri áhrif á ilm og bragð.
Við bruggunina sjálfa
þarf að hafa góða stjórn
á öllum aðstæðum svo sem
hitastigi og þrýstingi og einnig er
hreinlæti ákaflega mikilvægt, sérstak-
lega við gerjun og meðhöndlun gers.
Mörg afbrigði eru til af geri sem hvert
hefur sitt einkennandi bragð en mikil-
vægast er að það sé hreint, þannig að
ekki séu neinar óæskilegar örverur til
staðar sem gætu spillt bragði bjórsins.
Eftir gerjun og lageringu þarf að sía
bjórinn sem næst frostmarki til að fá
hann kristaltæran. Við síun og átöpp-
un þarf að passa mjög vandlega að
ekki komist súrefni að því það
veldur því að bragð bjórsins
versnar með tímanum.
Bjór er ferskvara og er
bestur nýr. Hann eld-
ist þeim mun hraðar
sem geymsluhitastigið
er hærra og ætti því að
geyma á svölum stað. Þetta
á sérstaklega við um ljósari
tegundir en sterkur, dökkur
bjór getur geymst mun lengur. Það
er því góð regla að skoða ávallt „best
fyrir“ merkingar á umbúðum þegar bjór
er keyptur. mni.is
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
■ „Þegar ungir menn
fara út á leigumark-
aðinn í fyrsta skipti er
nauðsynlegt að leigja
með stelpum,“ segir
Baldur I. Aðalsteins-
son, knattspyrnumað-
ur og sérfræðingur
hjá Vinnumálastofn-
un, en hann telur sig hafa lært mikið
af sambúð sinni með konum.
Sérstaklega eru það galdrar eldamennskunnar
sem lærast best með einföldum og bragðgóð-
um lausnum kvenna. „Ég hefið notið góðs af
því í gegnum tíðina að konurnar eru duglegar
að elda og vilja hafa hreint í kringum sig. Ég
græddi óneitanlega mikið á þessu og þetta
var góð reynsla fyrir mig. Ég held því að besta
húsráðið fyrir karlmenn að minnsta kosti, sé
að taka leiðbeiningum frá konunum.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
LEYFA KONUNUM AÐ
RÁÐA
„Ég fór í verslunina Next á útsölu og keypt fullt af of stórum fötum á strákinn minn,“ segir Guðrún Árný
Karlsdóttir spurð um bestu kaup sem hún hafi gert upp á síðkastið. Guðrún er
söngkona og nemandi í píanóleik við Listaháskóla Íslands. Hún syngur lag Trausta
Bjarnasonar, Andvaka, í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins næsta laugardags-
kvöld.
„Strákurinn minn níu mánaða stækkar svo hratt og afslátturinn í Next var svo
góður. Bolir sem áttu að kosta 2.000 kall voru á þrjú hundruð krónur þannig að
verðið var mjög hagstætt,“ segir Guðrún Árný sem náði einnig að versla á sjálfa
sig á útsölunum. „Ég var að róta í Zöru og fann geðveikt flott ponsjó á þrjú
hundruð kall.“ Guðný segist eiga erfitt með að finna hluti fyrir sjálfa sig á
útsölum. Oft séu aðeins minnstu og stærstu stærðirnar til. „Ponsjóið var
greinilega vel staðsett, einhvers staðar þar sem enginn nennti að leita.“
Guðrún Árný kaupir aðeins það nauðsynlegasta þessa dagana og man
ekki eftir að hafa gert slæm kaup. Henni finnst þó dýrt að versla nauð-
þurftirnar. „Bara ein ferð í Bónus, þar sem ég kaupi það sem ég þarf á
strákinn og kvöldmat fyrir mig, kostar tíu til fimmtán þúsund. Pening-
arnir nýtast mér verr, verðgildið er eitthvað svo miklu minna en
áður,“ segir Guðrún Árný. „Annars er ég varkár og kaupi ekki
eitthvað sem mér finnst ekki praktískt.“
NEYTANDINN: GUÐRÚN ÁRNÝ KARLSDÓTTIR
Varkár og hagsýn við innkaupin
Útgjöldin
> Meðalneysla af kartöflum á mann, í kílóum á ári.
Heimild: Hagstofa Íslands
1989 1992 1995 1998 2001 2004
50,1 kg
47,2 kg
38,0 kg
40,4 kg
Almennt gjald fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis
kostar 700 krónur, ef komið er á milli átta að morgni til klukkan
fjögur síðdegis. Lífeyrisþegar og börn undir átján ára aldri fá
helmingsafslátt af gjaldinu og þurfa því að borga 350 krónur
ef komið er á þessum tíma. Börn með ummönnunarkort
fá afslátt af því gjaldi og þurfa að greiða 230 krónur fyrir
heimsóknina.
Ef kalla þarf lækni í húsvitjun á dagvinnutíma kostar það
1.850 krónur, en 700 krónur fyrir lífeyrisþega og börn
og 500 krónur fyrir börn með ummönnunarkort. Ef kalla
þarf lækni í húsvitjun utan dagvinnutíma er það heldur
dýrara, eða 2.600 krónur. Fyrir lífeyrisþega og börn kostar
slík vitjun 1.000 krónur og 700 krónur fyrir börn með
ummönnunarkort.
■ Hvað kostar... að fara til læknis?
Almennt gjald 700 krónur
Verslanir Pennans hafa tekið að sér að selja vörur
og þjónustu Símans víða um land, eftir undirritun
Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans, og Kristins
Vilbergssonar, forstjóra Pennans, á samstarfssamningi
milli fyrirtækjanna. Í fyrstu mun samningurinn ná
til verslana Pennans í Reykjanesbæ, á Akranesi og
verslunar TRS-Pennans á Selfossi.
■ Verslun og þjónusta
Penninn selur vöru og þjónustu Símans
LAGERHRE INSUN
RÝMUM FYRIR NÝJU VORVÖRUNUM
ALLAR ÚTSÖLUVÖRUR 2 FYRIR 1
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-18 og LAUGARDAGA 10-14
Nýtt Kortatímabil
Þegar vöruverð á Íslandi er borið
saman við verð í nágrannalöndum
okkar er Ísland nær undantekn-
ingarlaust í einu af efstu sætun-
um yfir hæsta vöruverðið. Ýmsir
þættir hafa áhrif á vöruverð við-
komandi lands en einn þátturinn
er skattlagning. Mikið hefur verið
rætt um vörugjald hérlendis í
þessu sambandi og spurt hvernig
skattlagningu á smásöluverslun er
háttað hér á landi í samanburði við
löndin í kringum okkur. Það eru
einkum matvörur sem hvað hæst
eru skattlagðar hér og innlendar
landbúnaðarvörur fara þar fremst-
ar. Vörugjald vegur þar þyngst en
það byggir í mörgum tilfellum á
afar veikum og tilviljanakenndum
grunni, enda á vörugjald rætur
sínar að rekja til 1970 þegar það
var svar við tekjutapi ríkisins
vegna afnáms tolla á grund-
velli EFTA-samningsins.
Mest hefur vörugjald á
matvæli verið í umræðunni og
samanburðurinn oft verið við
Norðurlöndin. Sem svar við þeirri
umræðu er vert að líta á gjaldtöku á
nokkrum vörum sem margir Íslend-
ingar kaupa oft eða reglulega.
Mjólk: Ber hæstu skattana hér
eða alls 482 prósent miðað við að
innkaupsverð á lítra sé 60 krónur.
Í Noregi og Danmörku eru háir
skattar einnig eða um 350 prósent.
Í öllum tilfellum vega tollar mjög
þungt í gjaldtöku og eru 410 pró-
sent á Íslandi.
Smjör: Gjaldtakan er langhæst
hér á landi eða 161 prósent miðað
við innkaupsverðið, 630 krónur.
Næstir á eftir okkur koma Norð-
menn með 56 prósent. Tollar vega
mjög þungt hérna og eru 129 pró-
sent af 161 prósenti hér en eru um
20 prósent í Noregi.
Nautalundir: Miðað við inn-
kaupsverðið 1200 krónur er gjald-
takan mjög mikil hér eða 100 pró-
sent og í Noregi 121 prósent. Tollar
vega langþyngst í gjaldtökunni í
báðum dæmum, eru um 98 prósent
í Noregi en 76 prósent hér.
Ekki er í öllum tilfellum um svo
háa gjaldtöku að ræða eins og til
dæmis þegar grænmeti og ávext-
ir eru skoðaðir. Ástæðan er sú að
tollar voru lagðir niður og ríkis-
styrkir til framleiðenda tekn-
ir upp í þeirra stað. Opinber
gjöld á tómata, gúrkur og
papriku eru til dæmis ein-
ungis 14 prósent eða sem
nemur virðisaukaskattspró-
sentu matvæla.
svavar@frettabladid.is
Vörugjaldið vegur
þyngst í vöruverði
Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst hefur tekið saman skýrslu um skatt-
lagningu vöru og þjónustu hér á landi. Niðurstöður hennar eru sláandi þar sem
Ísland er yfirleitt í einu af hæstu sætunum, sama hvar á er litið.
ÞAÐ SÍGUR Í Ísland kemur illa út í samanburði
við önnur lönd þegar verð matvöru er skoðað.
Vörugjald er talið eiga stóran þátt í því.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR