Fréttablaðið - 16.02.2006, Síða 24
FL Group er komið með 10,7 pró-
senta hlut í danska drykkjarfram-
leiðandanum Royal Unibrew og er
í hópi stærstu hluthafa félagsins.
Verðmæti hlutarins er upp gefið
4,2 milljarðar króna.
Royal Unibrew er næststærsti
drykkjarframleiðandi Skandin-
avíu á eftir Carlsberg og fram-
leiðir allþekktar bjórtegundir á
borð við Faxe og Thor. Fyrirtækið
rekur verksmiðjur í Danmörku,
Póllandi og Eistlandi. Starfsmenn
samstæðunnar eru 2.300 talsins.
Í samtali við Albert Jónsson,
hjá FL Group, kom fram að félag-
ið teldi fjárfestinguna spennandi,
enda væri um mikið vaxtarfyrir-
tækið að ræða.
Hagnaður Royal Unibrew var
um hálfur milljarður króna á
fyrstu sex mánuðum ársins 2005
og jókst um 36 prósent á milli
ára. Velta félagsins jókst á sama
tíma um sextán prósent og var um
sextán milljarðar króna. Eignir
félagsins voru þá 32 milljarðar og
eigið fé um ellefu milljarðar.
Gengishagnaður FL
Group af þessari fjár-
festingu er þegar orð-
inn einhver þar sem
Royal Unibrew hækk-
aði um sjö prósent í
Kauphöllinni í Kaup-
mannahöfn í gær.
16. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR24
Ný greining KB banka á verðmæti
Landsbankans, sem sent var við-
skiptavinum KB banka, olli mikilli
hækkun á gengi Landsbankans í
gær. Þar er mælt með kaupum á
bréfum bankans og miðast verð-
mæti hans við gengið 35 krónur á
hlut.
Í skýrslunni kemur fram að
vöxtur Landsbankans sé sterkur
um þessar mundir og hagnaður
bankans á þessu ári verði tæpir 36
milljarðar samanborið við 25 millj-
arða á síðasta ári.
Bréf Landsbankans hækkuðu um
6,4 prósent og stóðu í 31,5 krónum
á hlut sem er um tíu prósent undir
verðmatsgengi KB banka. - eþa
KB banki
mælir með LÍ
FAXE-BJÓR
FL GROUP HEFUR KEYPT TÍU PRÓSENTA
HLUT Í ROYAL UNIBREW, NÆSTSTÆRSTA
DRYKKJARFRAMLEIÐENDA SKANDINAVÍU.
FL Group er komið í bjórinn
Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur
fest kaup á 80 prósent hlutafjár í
eignarhaldsfélaginu Hring sem á
allt hlutafé í Allianz Ísland hf. Alli-
anz Ísland verður áfram rekið sem
sjálfstætt félag sem lýtur sjálf-
stæðri stjórn. Meðeigandi SPH að
félaginu er Sparisjóður Kópavogs
(SPK) sem átt hefur 20 prósent
hlutafjár í Hring í nokkur ár.
Magnús Ægir Magnússon spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarð-
ar segir kaupin veita tækifæri á að
auka vöruúrval til viðskiptavina
sparisjóðsins auk annarrar sam-
þættingar í rekstri. Einnig skjóti
kaupin styrkari stoðum undir tekj-
umyndum SPH þar sem rekstur
Allianz hefur gengið vel undanfar-
in ár.
Allianz Ísland hf. hefur vaxið
jafnt og þétt frá stofnun félagsins
árið 1994. Þar starfa í dag 17 manns
auk 11 söluráðgjafa. Til viðbótar er
félagið í samstarfi við fjórar trygg-
ingamiðlanir. - hhs
SPH kaupir
80% í Allianz
MARKAÐSPUNKTAR...
Guðmundur Ólason, Hannes Smárason,
Jón Snorrason og Skarphéðinn Berg
Steinarsson koma nýir inn í stjórn
Íslandsbanka. Einar Sveinsson, Karl
Wernersson og Úlfar Steindórsson sitja
áfram í stjórn.
Markaðsvirði þeirra 14 félaga sem
mynda Úrvalsvísitöluna hefur aukist
um tæplega 407 milljarða króna frá
áramótum eða um 23,6 prósent ef
miðað er við lokun markaða í gær.
Olíuverð hefur lækkað stöðugt í febrúar
eða um 8,2 prósent í krónum talið.
Frá áramótum hefur olíuverð lækkað
um 4,8 prósent í krónum þrátt fyrir 1,5
prósent gengislækkun á tímabilinu.
FAXE-BJÓR FL
Group hefur keypt
tíu prósenta hlut
í Royal Unibrew,
næststærsta
drykkjarfram-
leiðanda
Skandinavíu.550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Bankarígur
Íslandsbanki hefur hækkað mikið
það sem af er ári, einkum á síðustu
dögum. Um hádegisbil í gær bar svo
við að markaðsverðmæti bankans fór
upp fyrir verðmæti keppinautanna í
Landsbankanum en báðir voru metnir
á yfir 326 milljarða. Það var orðið langt
síðan Íslandsbanki var stærri. Þá fóru
einhverjar viðvörunarbjöllur af stað og
gengi LÍ snarhækkaði, eða um sex prósent,
og komst þar með aftur í sitt sæti. „Ef
Íslandsbanki fer af stað af hverju ætti
Lansinn að sitja eftir?“ spurðu margir.
Skaust þá Landsbankinn upp um fimmtán
milljarða á einu augabragði.
Danir liggja íðí
FL Group hefur verið á fleygiferð á markaðnum,
enda mikið verið að gerast á þeim bænum. Í gær
keypti FL 10,7 prósent í Royal Brew sem framleiðir
meðal annars Faxe bjórinn. Menn hafa væntanlega
verið orðnir þyrstir eftir öll hlaupin. FL menn gefa
ekkert upp um fyrirtætlanir sínar, en eins og
margir þekkja þá er erfitt að hætta í bjórnum
þegar maður er á annað borð byrjaður í honum.
Frá viðskiptalegu sjónarmiði gæti verið sniðugt að
eiga bjórframleiðanda. Þannig eru Danir sennilega
hræddir við að ferðast eftir lætin vegna myndanna í
Jyllandsposten. Og hvað gera Danir þá. Jú, þá liggja
Danir íðí heima hjá sér og drekka bjór.
Bankarígur
Íslandsbanki hefur hækkað mikið það sem af er ári,
einkum á síðustu dögum. Um hádegisbil í gær
bar svo við að markaðsverðmæti bankans fór
upp fyrir verðmæti keppinautanna í Landsbank-
anum en báðir voru metnir á yfir 326 milljarða.
Það var orðið langt síðan Íslandsbanki var stærri.
Þá fóru einhverjar viðvörunarbjöllur af stað og
gengi LÍ snarhækkaði, eða um sex prósent, og
komst þar með aftur í sitt sæti. „Ef Íslandsbanki
fer af stað af hverju ætti Lansinn að sitja eftir?“
spurðu margir. Skaust þá Landsbankinn upp um
fimmtán milljarða á einu augabragði.
Danir liggja íðí
FL Group hefur verið á fleygiferð á mark-
aðnum, enda mikið verið að
gerast á þeim bænum. Í gær
keypti FL 10,7 prósent í Royal
Brew sem framleiðir meðal annars Faxe bjórinn.
Menn hafa væntanlega verið orðnir
þyrstir eftir öll hlaupin. FL menn
gefa ekkert upp um fyrirætlanir
sínar, en eins og margir þekkja
þá er erfitt að hætta í bjórn-
um þegar maður er á annað
borð byrjaður í honum. Frá
viðskiptalegu sjónarmiði gæti
verið sniðugt að eiga bjór-
framleiðanda. Þannig eru Danir
sennilega hræddir við að ferðast
eftir lætin vegna myndanna í Jyll-
andsposten. Og hvað gera Danir
þá. Jú, þá liggja Danir íðí
heima hjá sér
og drekka
bjór.
Peningaskápurinn
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.925 +1,27% Fjöldi viðskipta: 1.298
Velta: 12.070 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 56,70 +4,00% ... Alfesca
4,26 +5,19% ... Atorka 6,20 +0,80% ... Bakkavör 52,70 +0,60%
... Dagsbrún 6,00 +0,30% ... FL Group 27,50 -0,70% ... Flaga
3,87 +1,30% ... Íslandsbanki 22,60 +0,00% ... KB banki 999,00
+0,30% ... Kögun 65,10 +0,50% ... Landsbankinn 31,10 +5,10% ...
Marel 69,50 -0,60% ... Mosaic Fashions 18,00 +0,00% ... Straum-
ur-Burðarás 21,30 +1,00% ... Össur 105,50 +0,00%
MESTA HÆKKUN
Alfesca +5,19%
Landsbankinn +5,07%
Actavis +4,04%
MESTA LÆKKUN
Icelandic Group -1,16%
Avion -0,94%
Atl. Petroleum -0,83%