Fréttablaðið - 16.02.2006, Side 59
FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2006 39
���������������������������������������
������������������
���
�������
����������� ����������� ��������
��
�
�
�
�
�
���������������
�������
�������������
�������� ������������������
�������������������������
�������������������
Matarhátíðin mikla Food n´ Fun
hefst á miðvikudaginn í næstu
viku og stendur í fimm daga. Þá
tjalda betri veitingastaðir borg-
arinnar öllu til og erlendir gesta-
kokkar í samstarfi við innlenda
kollega sína töfra fram þríréttað-
an matseðil á ákaflega hagstæðu
verði, eða 5.400 kr. Boðið verður
upp á sérstakan vínlista á veit-
ingastöðunum og þar verða ástr-
ölsk vín frá Wolf Blass, Penfolds
og Rosemount áberandi.
Á þeim 40 árum sem Wolf
Blass hefur framleitt vín í Ástral-
íu, hefur fyrirtækið fengið meira
en þrjúþúsund verðlaun fyrir vín
sín. Víngerðarmaðurinn Wolfgang
Blass flúði frá Austur-Þýskalandi
til Ástralíu og stofnaði víngerða-
húsið 1966. Hann stofnaði sitt
eigið vínhús á tímum þegar ekki
var vaninn að einstaklingar ættu
sín eigin hús og hóf vínrækt og
framleiðslu í Barossa Valley og
Coonawarra. Wolf Blass Yellow
Label Cabernet Sauvignon er
kröftugt og þétt, eins og skap-
að fyrir lambakjötið okkar, en
er ekki síðra með nautakjöti eða
dökku fuglakjöti.
Enski læknirinn Henry Lind-
eman hóf víngerð í Hunter-daln-
um í Nýja Suður-Wales í Ástralíu
snemma á 19. öld. Lindemans er
stærsta vínhús Ástralíu, fram-
leiðir einnig Rosemount, Penfolds
og fleiri gæðavín. Vínframleiðsla
Penfolds hófst árið 1844 og hefur
sú framleiðsla skilað fyrirtækinu
eftirsóttustu verðlaunum sem
hægt er að fá í vínheiminum.
Penfolds bin 389 sem verður á
boðstólum á Food n‘ Fun er
blanda úr cabernet sauvign-
on og shiraz.
Vínin frá Rosemount eru
einhver þau söluhæstu hér-
lendis. Rosemount Estate
Epicurean Collection Traditi-
onal Cabernet Sauvignon er
eitt besta vín þeirra, klassísk
Bordeaux blanda. Árið 2002
hlaut vínið verðlaunin Jimmy
Watson Memorial Trophy á
Royal Melbourne Wine Show.
Hvernig er stemn-
ingin: Það er fljótlegt
og þægilegt að koma
við á veitingastaðn-
um Á næstu grösum
á Suðurlandsbraut en staðurinn
er „take away“ staður þótt það sé
hægt að tylla sér niður ef mann
langar til. Staðurinn er laus við allt
óþarfa prjál og sérlega snyrtilegur
í alla staði. Staðurinn er vinsæll í
hádeginu enda hressandi að fá
sér göngutúr fyrir þá sem vinna í
nágrenninu. Þetta er tilvalinn stað-
ur fyrir alla sem elska grænmet-
isfæði en líka fyrir þá sem eru að
byrja að feta grænu línuna.
Matseðillinn: Á boðstólum hjá Á
næstu grösum er fæði úr jurtarík-
inu. Boðið er upp á fyrsta flokks
grænmetisrétti þar sem hráefni
er meðhöndlað og matreitt með
það að leiðarljósi að næringarefni
glatist ekki við eldamennskuna.
Hráefnið sem notað er í réttina er
flest lífrænt. Á næstu grösum notar
engan sykur, ekkert ger og engin
bragðaukandi krydd. Með matnum
er boðið upp á hummus, ávaxta-
chutney og olíur. Boðið er upp á
grænmetislasagna, pítsusneiðar,
salat og súpur dagsins. Einnig er
boðið upp á tortillur og grænmet-
isbökur. Allir sælkerar ættu að leyfa
sér þann munað að panta súkku-
laðikökuna, hún er alger dásemd.
Réttur dagsins: Boðið er upp á
rétt dagsins sem er mismunandi frá
degi til dags. Hægt er að velja milli
tveggja rétta og meðlæti með.
VEITINGASTAÐURINN
Á NÆSTU GRÖSUM
SUÐURLANDSBRAUT 52,
108 REYKJAVÍK.
Fljótlegur og
freistandi
FOOD N' FUN: Áströlsk vín áberandi
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA