Fréttablaðið - 03.03.2006, Page 61
Söngfuglar kvöldsins í Idol - stjörnu-
leit ætla reyna fyrir sér í breskri
tónlist frá árunum 1960 til 1970,
tímabilinu þar sem æskan glataði
sakleysi sínu, strákar söfnuðu hári
og stúlkurnar ögruðu gömlum gild-
um með stuttum pilsum.
Í poppsögunni er talað um þrjár
innrásir frá Bretlandi. Ungir sjón-
varpsáhorfendur þekkja síðari inn-
rásir mun betur; pönktímabilið í
upphafi níunda áratugarins og Brit-
poppið með Oasis-bræðurna og Blur
fremsta í flokki um miðjan tíunda
áratuginn. Sú fyrsta hefst hins vegar
þegar ungmennin í ensku verka-
mannahverfunum heyrðu blúsinn
og rokkið frá Ameríku og tileinkuðu
sér þann „djöfullega“ takt sem Elvis
Presley, Little Richard og Jerry Lee
Lewis slógu af öllum mætti. Fyrstu
hljómsveitirnar sem spruttu upp úr
þessum áhrifum voru svokallaðar
„skiffle“-sveitir en þær sóttu hljóm
sinn frá Buddy Holly og Everly-
bræðrum.
Það verður ekki á neinn hallað
þegar Bítlarnir eru krýndir konung-
ar þessa tímabils. Vinsældir þeirra
voru með ólíkindum og drengirnir
ferðuðust borga á milli í Evrópu til
að trylla lýðinn. Það leið enda ekki á
löngu þar til Bandaríkjamarkaður
vaknaði af værum blundi og bauð
fjórmenningunum frá Liverpool til
sín. Í kjölfar þeirra fylgdu hljóm-
sveitir á borð við Gerry and the Pac-
emakers, The Animals, The Kinks
og Manfred Mann auk The Rolling
Stones en hún var sú eina sem komst
í hálfkvisti við Bítlana. Þessi fyrsta
breska innrás náði hámarki sínu á
árunum 1966 til 1967 en þá varð hún
að víkja fyrir friði og frjálsum
ástum hippanna.
Að venju er það þjóðin sem kýs
en henni til aðstoðar verða Einar
Bárðarson, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Sigríður Beinteinsdóttir og
Bubbi Morthens. Kynnar eru að
sjálfsögðu Jói og Simmi. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikarinn Michael Douglas hefur höfðað skaðabótamál gegn tveim-
ur bandarískum fjölmiðlafyrirtækjum
fyrir að reyna að hagnast á nafni
hans og ímynd. Douglas var
fenginn til að vera kynnir í sjón-
varpsþáttaröð sem átti að gera
í menntunarskyni en var aldrei
sýnd í sjónvarpi. Douglas telur
að nafn hans hafi aðeins verið notað til
að fyrirtækin gætu grætt á honum.
Vinir popparans George Michael hafa hvatt hann
til að hætta að nota
kannabisefni. George
er um þessar mundir
að taka upp dúett-
plötu, m.a. með
Paul McCartney.
Hann er einnig að
íhuga að fara í sitt fyrsta tónleika-
ferðalag síðan 1991. „George
þarf að hætta að nota þessi efni
ef hann ætlar að einbeita sér
að tónlistinni. Hann þarf líka
að vera í góðu líkamlegu
standi til að geta farið í stóra
tónleikaferð. Fyrir utan það er
kannabis slæmt fyrir hálsinn
og hjálpar ekki rödd hans,“ sagði
kunningi söngvarans.
ALEXANDER 900 9004 SMS IDOL 4 Í 1918
Lag: She’s Not There, Flytjandi: The Zombies
Bresk innrás í Idol
SNORRI 900 9007 SMS IDOL 7 Í 1918
Lag: Sunny Afternoon. Flytjandi: The Kinks
RAGNHEIÐUR SARA 900 9006 SMS IDOL 6 Í
1918 Lag: Silence Is Golden. Flytjandi: The
Tremeloes
INGÓ 900 9005 SMS IDOL 5 Í 1918
Lag: You Really Got Me. Flytjandi: The Kinks
NANA 900 9003 SMS IDOL 3 Í 1918
Lag: Downtown. Flytjandi: Petula Clark
BRÍET SUNNA 900 9002 SMS IDOL 2 Í 1918
Lag: You‘re My World. Flytjandi: Cilla Black
ÍNA 900 9001 SMS IDOL 1 Í 1918 Lag: You
Don‘t Have to... Flytjandi: Dusty Springfield