Fréttablaðið - 03.03.2006, Side 64
3. mars 2006 FÖSTUDAGUR48
Það var furðulegt að heyra við-
brögð frá leikmönnum og þjálfara
íslenska landsliðsins í fótbolta
eftir tapið í vináttuleiknum gegn
Trínidad og Tóbagó á þriðjudag.
Allir voru þeir sammála um að það
væri hægt að taka marga jákvæða
punkta úr leiknum, það hefði náðst
upp gott spil á köflum og að slæm
mistök hefðu verið meginástæða
tapsins. Ekki bætti úr skák að und-
irbúningurinn var lítill og lykil-
menn liðsins voru ekki við hesta-
heilsu. Sama gamla tuggan.
Stöðnun og stirðleiki
Það er engu líkara en að leikmenn
og þjálfarar landsliðsins séu í
afneitun. Á síðasta ári hefur lands-
liðið náð að kyrrsetja sig í kring-
um 95. sæti á heimslistanum og er
allt eins líklegt að þetta tap gegn
Trínidad og Tóbagó verði til þess
að Ísland detti niður
af topp 100. Og þrátt
fyrir síendurteknar
og margheyrðar
afsakanir leik-
manna og
þjálfara, nú
eins og
áður,
er
sannleikurinn sá að íslenska liðið
var mjög lélegt í þessum leik og í
ofanálag mjög leiðinlegt á að
horfa. Í reynd saúst afar fáir
jákvæðir punktar; sem fyrr var
varnarleikurinn afleitur og í þetta
sinn var miðjuspilið og sóknar-
leikurinn einnig í molum. Það
alversta var þó að þrátt fyrir að
nýr maður væri í brúnni var sama
áhugaleysið og í síðustu leikjum
allsráðandi. Algjör ládeyða yfir
öllum mannskapnum og enginn
leikmaður íslenska liðsins virtist
vera að reyna að sanna sig fyrir
nýjum þjálfara.
Það ríkir stöðnun í íslenska lið-
inu – stöðnun sem erfitt er að finna
skýringar á. Þekkt lausn á slíkri
stöðnun liða er að skipta út mönn-
um í stjórnunarstöðum, sem var og
gert, með litlum árangri þó ef horft
er til þessa fyrsta leiks Eyjólfs.
Góðir leikmenn – lélegt lið
Hermann Hreiðarsson
sagði við Fréttablaðið
á þriðjudaginn að
landsliðshópurinn í
dag væri sterkari en
nokkru sinni fyrr.
Það er líklega
rétt hjá Her-
manni. Póst-
arnir í
íslenska
liðinu eru
allir að
spila reglulega
með sínum
liðum, sem
mörg hver
eru í topp-
barátt-
unni í
sinni
deild.
Á
miðju vallarins, frá vörn til sókn-
ar, eru nokkrir af bestu leikmönn-
um ensku 1. deildarinnar og nokkr-
ir af heitustu mönnum ensku
úrvalsdeildarinnar.
Á þriðjudag voru andstæðing-
arnir að mestu leyti leikmenn úr
skosku úrvalsdeildinni, neðri
deildunum í Englandi og frá liðum
í heimalandinu Trínidad. Og ekki
má gleyma sjálfum Dwight Yorke,
„gömlu kempunni“ sem virðist
ekki aðeins vera í guðatölu á meðal
stuðningsmanna landsliðsins held-
ur einnig leikmanna þess. Trínidad
og Tóbagó er kannski tæpum 50
sætum ofar en Ísland á heimslist-
anum og á leið á HM í sumar en á
pappírunum er íslenska liðið tals-
vert sterkara. Samt sem áður var
það aldrei líklegt til afreka í
leiknum á þriðjudag.
Annað afhroð framundan?
Viðvörunarbjöllurnar voru fyrir
löngu byrjaðar að hringja hjá
landsliðinu en eftir þennan leik
gegn Trínidad og Tóbagó óma þær
enn hærra. Undankeppni EM er
handan við hornið og með sömu
spilamennsku mun liðið bera
afhroð í sínum firnasterka undan-
riðli og mjög líklega ná enn verri
úrslitum en í undankeppni HM í
Þýskalandi. Getan hjá mannskap-
anum er sannarlega til staðar en
það sem bíður Eyjólfs er ekki lítið
verkefni – að endurvekja neist-
ann, áhugann og viljann hjá þess-
um sama mannskap og búa aftur
til liðsheild úr klárlega beygðum,
en vonandi ekki buguðum leik-
mönnum.
Hvar er neistinn?
ÍÞRÓTTALJÓS
VIGNIR GUÐJÓNSSON
vignir@frettabladid.is
EYJÓLFUR SVERRISSON Hans bíður gríðarlega erfitt verkefni með landsliðið. Það kemur í
hans hlut að berja sjálfstraust í leikmenn liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Keflvíkingar munu lík-
lega fá til sín tvo erlenda leik-
menn á næstu dögum en liðið
hefur boðið Bandaríkjamanninum
Geoff Miles samning auk þess
sem Daninn Peter Matzen á von á
samningstilboði frá félaginu.
Matzen er 29 ára gamall varnar-
jaxl sem hefur spilað með Vejle í
heimalandi sínu.
„Við höfum mikinn hug á að
semja við Matzen. Við erum að
skoða málin með hann og við bjóð-
um honum líklega samning,“ sagði
Rúnar Arnarson, formaður knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur, við
Fréttablaðið í gær. Rúnar sagði
jafnframt að Keflavík hefði boðið
Geoff Miles samning en allar
líkur eru á því að hann skrifi undir
hann fyrr en síðar. „Við vonumst
til að ganga frá þessu fljótlega og
það stefnir allt í að hann komi,“
sagði Rúnar um Miles en gangi
Keflvíkingar frá samningum við
þessa tvo leikmenn verður félagið
með leikmenn frá átta þjóðernum
hjá félaginu.
Fyrir hjá Keflavík eru útlend-
ingarnir Branislav Milicevic sem
er frá Serbíu og Svartfjallalandi,
Buddy Farah frá Líberíu, Issa
Abdulkadir frá Sómalíu, Svíinn
Kenneth Gustafsson og Símun
Samuelsen sem er færeyskur auk
Íslendinganna.
„Mönnum kemur sér bara vel
saman hjá okkur þrátt fyrir fjöl-
þjóðleikann. Ég tala stundum þrjú
tungumál á æfingum, ensku,
íslensku og sænsku en það þarf
oft að koma miklum upplýsingum
til skila á stuttum tíma og þetta er
því mikið flæði á mér,“ sagði
Kristján Guðmundsson, þjálfari
Keflavíkur.
„Við erum með lítinn hóp eins
og stendur en það eru gerðar kröf-
ur um góðan árangur og því verða
þeir ungu leikmenn sem eru hjá
liðinu að fá hjálp. Við erum með
marga unga leikmenn en reynsl-
una skortir. Það eru margir leik-
menn farnir frá því í fyrra, meðal
annars Hólmar Örn Rúnarsson og
Hörður Sveinsson sem var okkar
markahæsti maður enda er erfitt
að fá leikmenn. Þeir leikmenn
sem eru á höfuðborgarsvæðinu
nenna ekki að keyra Reykjanes-
brautina en allir mínir leikmenn
búa hér í Keflavík. Við lentum í
fjórða sæti á síðasta tímabili og
þrátt fyrir miklar blóðtökur þá er
krafan sú að lenda ekki neðar,“
sagði Kristján að lokum. - hþh
Keflavík styrkir sig enn með erlendum leikmönnum:
Útlendingahersveit
fæðist í Keflavík
ISSA ABDULKADIR Er hér í leik gegn Val í fyrra í baráttu við Atla Svein Þórarinsson. Sómal-
inn er einn af erlendu leikmönnunum hjá Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÍVAR INGIMARSSON
Náði sér ekki á strik í
leiknum á þriðjudaginn,
frekar en aðrir leikmenn
liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI