Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.03.2006, Blaðsíða 8
 27. mars 2006 MÁNUDAGUR Framtíðarsjóður Ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga Engin lágmarksinnborgun Verðtryggður Bundinn til 18 ára aldurs Kjör haldast óbreytt þótt innstæða sé ekki tekin út við 18 ára aldur Vildarviðskiptavinur Sparisjóðsins sem gefur fermingarbarni 5.000 króna gjafabréf í Framtíðar- sjóð Sparisjóðsins eða meira fær 2.000 króna viðbót við gjöfina frá Sparisjóðnum. Gefðu gjöf sem stækkar í pakkanum! Gjöfin vex í pakkanum F í t o n / S Í A F I 1 6 7 1 3 5.000 kr. verða 7.000 kr. Kíktu á spar.is og reiknaðu út ávöxtun á sparnaði í Framtíðarsjóði Sparisjóðsins. SAMGÖNGUMÁL Í samgönguráðu- neytinu er verið að leggja loka- hönd á reglugerð um ökugerði, eða sérstakar brautir til æfinga og þjálfunar þeirra sem eru að fá ökuskírteini í fyrsta sinn. Að sögn Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra er gert ráð fyrir að próf fari fram á slíkum æfingasvæðum í framtíðinni áður en ungir ökumenn fá fullnaðar- ökuskírteini og þannig er vonast til að þeir verði betur færir um að takast á við misjafnar aðstæður á vegum úti. Líklega verður eitt ökugerði byggt til að byrja með en þar verður að finna allar helstu aðstæður sem ökumenn geta lent í allan ársins hring. Hafa slík öku- gerði bætt mjög kennslu og þjálf- un erlendis. Hérlendis verður öku- gerðið ennfremur notað til að endurmennta eldri bílstjóra og þá sér í lagi bílstjóra stærri öku- tækja. Vonir standa til að ökugerð- ið verði orðið að veruleika á næstu árum en óvíst er hvar á landinu slíkt svæði yrði staðsett. - aöe SNJÓR OG HÁLKA Í framtíðinni munu allir sem fá ökuskírteini þurfa að sanna sig við alls kyns aðstæður í svokölluðu ökugerði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Reglugerð um ökugerði langt komin í samgönguráðuneytinu: Gerir unga ökumenn færari BAUGSMÁL Einungis um fjórtán prósent landsmanna telja að upp- haf Baugsmálsins megi rekja til gruns um lögbrot og tæp 80 pró- sent vilja að málarekstri verði hætt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem IMG Gallup vann fyrir Fjölmiðlavaktina á dög- unum 20. til 22. mars. Könnunin var gerð til notkunar í skýrslu sem Fjölmiðlavaktin vinnur nú að fyrir Baug Group. Spurt var hvort halda ætti mála- rekstrinum áfram eða hætta honum og sögðust 78,6 prósent þeirra sem tóku afstöðu vilja að honum yrði hætt. Þrátt fyrir það taldi einungis þriðjungur að mála- rekstrinum væri lokið. Meirihlut- inn reyndist hafa rétt fyrir sér en könnunin var stöðvuð síðastliðinn þriðjudag þegar í ljós kom að ákæruvaldið hugðist áfrýja dómi héraðsdóms. Einnig var spurt hvort menn teldu einhverja hafa komið sér- staklega vel eða illa út úr málinu. Tveir þriðju hlutar svarenda sögðu engan hafa komið vel út en af þeim sem voru á öndverðum meiði nefndu nánast allir sakborn- ingana. Öllu fleiri töldu einhverja hafa komið sérstaklega illa út úr málinu en áttatíu prósent svöruðu þeirri spurningu játandi. Nefna mátti fleiri en einn aðila sem menn töldu hafa komið illa út og voru þar sak- sóknari og lögregluembættið efst á blaði og voru nefnd af um fjórð- ungi svarenda hvort. Ríkislög- reglustjóri, Jón Gerald Sullen- berger, ákæruvaldið, íslenska ríkið, Davíð Oddsson, Jónína Bene- diktsdóttir og dómsmálaráðherra komu næst og voru nefnd af átta til fimmtán prósentum svarenda. Þegar spurt var um upphaf Baugsmálsins mátti einnig nefna fleiri en eitt atriði og nefndu 14,3 prósent grun um lögbrot. Fleiri töldu þó öfund liggja að baki, eða fimmtungur, og fimmtán prósent nefndu pólitík. Davíð Oddsson nefndu 13,6 prósent, níu prósent nefndu illgirni og 7,4 prósent hefnd. Spurningalistar voru sendir með tölvupósti til 1.200 einstakl- inga á aldrinum 16 til 75 ára og svarhlutfall var 57,5 prósent. stigur@frettabladid.is Fæstir fylgjandi frekari málarekstri Mikill meirhluti landsmanna er fylgjandi því að málarekstri í Baugsmálinu verði hætt og fáir telja grun um lögbrot hafa búið að baki málinu. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir skýrslu sem Baugur vinnur að. SKATTAMÁL Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir að fjármála- ráðherra hafi staðfest í svari við fyrirspurn sinni um skattbyrði ákveðinna tekjuhópa á tímabilinu 1995-2007 að skattbyrði hafi auk- ist hjá öllum nema hátekjufólk- inu. Jóhanna spurði um skattbyrði hjóna með tvö börn undir sjö ára aldri frá 1995 til 2006, þar sem bæði voru útivinnandi og með jöfn laun. Hún miðaði við 100 þúsund króna mánaðarlaun, 150 þúsund, 175 þúsund, 208 þúsund, 290 þús- und og eina milljón á mánuði. Jóhanna segir að svar fjármálaráð- herra sýni að allir tekjuhóp- arnir hafi fengið aukna skattbyrði upp á þrjú til fjögur prósent nema þeir sem eru með milljón eða meira á mánuði. Skattbyrði þeirra hafi verið 40 prósent en lækkað niður í 32 prósent. Hún hafi því minnkað. Í svarinu kemur einnig fram að fólk sem var með 100 þúsund krón- ur á mánuði fékk minna til baka úr skattkerfinu sem þýðir að barna- bæturnar hafa lækkað. „Þetta er bara staðfesting á því að skattar hafa hækkað hjá öllum nema hátekjuhópunum,“ segir Jóhanna. - ghs JÓHANNA SIGURÐAR- DÓTTIR ALÞINGIS- MAÐUR Jóhanna Sigurðardóttir um svar fjármálaráðherra við fyrirspurn um skattbyrði: Staðfestir skattahækkun HÉRAÐSDÓMUR Aðeins 14 prósent aðspurðra í könnun Gallup telja að upphaf Baugsmáls- ins megi rekja til gruns um lögbrot. Fleiri telja öfund eða pólitík búa að baki. SKATTBYRÐI 1995-2006 Skattbyrði 1996 miðað við jöfn laun beggja Skattbyrði 1996/annað hjóna á vinnu- markaði Skattbyrði 2007, mánað- arlaun hækkuð með vísitölu -1 5, 1% 9, 3% 22 ,2 % -1 5, 1% 12 ,1 % 24 ,9 % - 8, 2% 13 ,3 % 24 ,1 % Mánaðarlaun 100.000 175.000 290.000 1.000.000 40 ,5 % 32 ,0 % 40 ,2 %*Súluritið sýnir hvern- ig skattbyrði hjóna með tvö börn undir sjö ára aldri hefur þróast 1995-2006 að teknu tilliti til þróunar launavísitölu miðað við ákveðin mánað- arlaun árið 1995.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.