Tíminn - 23.10.1977, Page 3

Tíminn - 23.10.1977, Page 3
Sunnudagur 23. október 1977 3 Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flutti ávarp viö setningu ráðstefnunnar um framhalds- menntun i ráðstefnusal Loftleiða f g®r. BHM þingar um Göngudeild stofnuð í Hengli i dag — Kynningarfundur göngu- deildar Víkings gaf góð fyrir heit um framtíð deildarinnar Kynningarfundur göngudeildar Vfkings var haldinn s.l. fimmtu- dag og mættu á honum 106 manns, sem gefur góð fyrirheit um framtíð deildarinnar. Eins og skýrt var frá í Timanum fyrr I vikunni, er markmiö deildarinnar að efna til gönguferða og útiveru, aðallega á Hengilssvæðinu, en þar á Vikingur skála, en starf- semin verður alls ekki einskorðuð við það landssvæði, heldur gengið vfðar eftir áhuga og aöstæðum hverju sinni. Stofnfundur verður siöan I skíðaskálanum f Sleggjubeinsdal kl. 12 á sunnudag, og klukkustund siðar verður gengið á tindinn Skeggja, sem verður fyrsta afrek hinna nýbökuðu félagsmanna. Rétt mun aö taka fram, að þaö er alls ekkert skilyrði fyrir að gerast félagar á stofnfundinum, að ganga á tindinn, nema fyrir þá sem vilja og treysta sér. Af þeim, sem mættu á kynn- ingarfundinn, voru ekki nema ör- fáir félagar i Iþróttafélaginu Vik- ingi, og er ekkert skilyrði fyrir þátttöku I göngudeildinni að hafa verið félagi I Vikingi, þótt göngu- deildin sé við það kennd og skáli félagsins við Hengil verði aðal- bækistöð göngudeildarinnar. Vonast er til, að sem flestir mæti I Sleggjubeinsskarði á sunnudags- morgun og gerist félagar, en deildin erætluðjafnt ungum sem gömlum og verður starfsemin við það miöuö. Leiðin að Vlkingsskálanum á Hengilssvæöinu liggur skammt neðan við Kolviðarhól og er ekið I norðurátt frá hólnum og verða áreiðanlega margir á ferð og auö- veltaö finna Vikingsskálann laust fyrirhádegi á morgun, sunnudag. framhaldsmenntun 1 gær hófst tveggja daga ráð- stefna á vegum Bandalags há- skólamenntaðra manna um menntun á framhaldsskólastigi. 1 setningarræöu sagði Jónas Bjarnason formaður BHM, aö mikil umræða hefði farið I gang um þessi málefni, vegna frum- varps tillaga um framhaldsskóla sem lagt var fyrir Alþingi á slðasta starfsári og yrði það mikið til umræðu á ráðstefnunni. Breytingar á framhaldsskólastigi veröa til þess, að nemendur öðl- ast annanundirbúning og mun sii þróun hafa áhrif á háskólanám. — Menn geta spurt að þvl, hvers vegna BHM hefur ráðist I að halda þessa ráðstefnu — sagöi Jónas — og að það séu margir aö- ilar fleiri, sem ættu að gera það. Þaö er engin röksemd, bezt væri að sem flestir Héldu ráðstefnu um þessi mikilvægu málefni. Þá flutti næstur ávarp Vil- hjálmur Hjálmarsson, mennta- málaráðherra, og lýsti hann yfir ánægju sinni með þann mikla áhuga er' þessu máli væri sýndur. Umræða um menntunar- og fræðslumál þola verr stöðnun en annað I þjóðfélaginu — sagöi Vil- hjálmur. Hann sagðist vona, að hægt yröi aö kynna endurskoð- unarfrumvarpið á þessu þingi, en jafnframtsagðist hann ekki vera bjartsýnn um að svo yröi, þetta eru mál, sem verður aö vanda til. Margir málaflokkar 1 gær tóku einnig til máls Jón Böðvarsson og Olafur H. Óskars- son og fjölluðu um skipulag fram- haldsskólastigsins, Kristján J. Gunnarsson ræddi um yfirstjórn skóla, vald og ákvarðanatöku og örn Helgason talaði um samband háskóla og framhaldsskóla. Aframhald ráðstefnunnar er I dag, og hefst á þvi aö flutt veröur erindi Páls Skúlasonar og Svein- björnsBjömssonar um, hvaðráði skiptingu námsefnis milli fram- haldsskóla og háskóla. Halldór Guðjónsson mun þá á eftir flytja ræðu um undirbúning háskóla- náms hér og erlendis. Vinnuhópar Kl. 11 I dag er svo ráögert að vinnuhópar taki til starfa og mun öll umræöa fara fram I sllkum hópum, sem munu skila áliti I lok ráöstefnunnar I kvöld. Starfshóp- amir sjö taka eftirfarandi til um- fjöllunar. 1. hópur: Æðrimenntun og mark- mið kennslu. Stjómandi: Sigurjón Bjiýns- son. 2. hópur: Skólar á haskólastigi. Hvaða nám verður talið háskóla- nám? Stjórnandi: Olafur Jens Pétursson. 3. hópur: Kröfur háskóla um þekkingu og þroska nemenda við upphaf háskólanáms. Stjórnandi: Guðrún Friðgeirs- dóttir. 4. hópur: Menntun kennara fyrir grunnskóla og framhaldsskóla. Stjórnandi: Þórir Ólafsson. 5. hópur: Yfirstjórn, vald og ákvarðanataka i skólamálum. Stjórnandi: Þórir Einarsson. 6. hópur: Fullorðinsfræðsla — námsflokkar, öldungadeildir, bréfaskólar, framtlðarskipulag og tengsl þeirra við framhalds- skólann. Stjórnandi: Guðrún Halldórs- dóttir. 7. hópur: Áfangakerfi —kostir og annmarkar, mismunandi teg- undir áfangakerfa, hvernig skal koma á áfangakerfi I skólum þar sem bekkjakerfi er fyrir. Þátttakendur I ráðstefnunni eru hátt á annaö hundraö, en fundar- stjórar em Andri Isaksson, Ing- ólfur Þorkelsson og Sigrlður Val- geirsdóttir. Fundarritarar eru Kristján Thorlacius, Sigriöur As- grimsdóttir og Ottar Eggertsson. I undirbúningsnefnd ráöstefn- unnar eru Jónas Bjamason, Skúli Halldórsson, Ölafur Jens Péturs- son, Asmundur Eggertsson, Ottar Eggertsson, Halldór Guðjónsson, Þórir Ólafsson og Kristján Bersi Ólafsson. Höfum á söluskrá mikið úrval notaðra vörubifreiða, Búkka, 2ja og 3ja öxla: Scania, Benz, M.A.N., Volvo af ýmsum tegundum og árgerðum. Einnig mikið úrvai af alskonar vinnuvélum. Aiiar frekari upplýsingar hjá <VM> Vagnhöfða 3 k Reykjavik Simi 8-52-65 Vörubila- & vinnuvélasala V erkfallsvísur Hér er ýmist of eða van, öfga skammt á milli, mér finnst þetta feigðarflan og fjarri góðri snilli. Útvarpsþular árdagsmas oft vill litið gleðja. Nú verkfall er og vinnuþras, þeir varla mega kveðja. Meðalhófið margur hér mætti betur finna. Unun mesta er það mér, ef ég fæ að vinna. Torfi Skorrdal. I hádeginu alla daga Shawarma Israelskur grillréttur Borinn fram í brauóhleif, meó sinnepssósu og salati VerÓ kr 500/- VeriÓ velkomin HOTEL LOFTLEIÐIR Veitingabúó

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.