Fréttablaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 54
31. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Þorvarðarson
skipstjóri, Kleppsvegi 62, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 29. maí
síðastliðinn. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 2. júní kl. 13.00.
Helga Jónsdóttir
Aðalbjörg S. Gunnarsdóttir
Björg Gunnarsdóttir Finnbogi Sigurðsson
Ágústa Gunnarsdóttir
Þorvarður Gunnarsson Þórlaug Ragnarsdóttir
Jón Gunnarsson Sigríður G. Sverrisdóttir
Helga Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
JOSEPH HAYDN (1732-1809),
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég var útilokaður frá
heiminum. Enginn var til
staðar til að rugla mig
eða pína svo ég var
neyddur til að vera
frumlegur.“
Austurríska tónskáldið Joseph
Haydn var aldrei í læri hjá kennara.
meistara tónbókmenntanna.
Á þessum degi árið 1962 var Þjóð-
verjinn Adolf Eichmann hengdur í
Ísrael. Þannig var úrskurði ísraelsks
dómstóls framfylgt sem dæmdi
hann til dauða fyrir glæpi gegn
mannkyninu.
Eichmann var foringi í SS-sveit-
um nasista og var meðal annars
yfirmaður deildar sem skipulagði
brottfluttning gyðinga. Við lok
seinni heimstyrjaldarinnar fang-
elsuðu bandamenn Eichmann en
honum tókst að sleppa frá þeim
og lagðist á flótta um heiminn.
Hann settist að í Argentínu
árið 1958 en í maí árið 1960
handsömuðu ísraelskir leyni-
þjónustumenn hann og fluttu til
Ísrael. Miklar deilur spunnust um
réttmæti handtökunnar þar sem
hún var framkvæmd án vitneskju
argentínskra stjórnvalda. Eichmann
var engu að síður leiddur fyrir
sérskipaðan þriggja manna rétt í
Ísrael sem dæmdi hann til dauða.
ÞETTA GERÐIST: 31. MAÍ 1962
Eichmann tekinn af lífi
RÉTTAÐ YFIR EICHMANN Í ÍSRAEL
Hundrað ár eru um þessar
mundir liðin frá því að
fyrsta símaskráin var gefin
út. Basar Thorvaldsenfé-
lagsins hefur verið skráður í
símaskrána frá upphafi og
alltaf eins. Í tilefni þessa
var Thorvaldsenfélaginu
afhent viðhafnarútgáfa þar
sem talsímaskráin svokall-
aða frá árinu 1906 er bundin
saman við símaskrá þessa
árs.
Basar Thorvaldsenfé-
lagsins er því búinn að vera
í hundrað ár í Austurstræti
4 og meira að segja fimm
árum betur. „Við höldum
einmitt upp á það [á morg-
un] að basarinn verður
búinn að vera hérna í 105
ár,“ segir Lára Margrét
Gísladóttir, varaformaður
Thorvaldsenfélagsins, sem
veitti símaskránni viðtöku.
Reyndar hefur símanúmer-
ið ekki alltaf verið það sama
og stofn þess ekki heldur.
„Ég sá í skránni að við
vorum númer 138 þarna
1906 en ég veit ekki hvenær
þetta breyttist,“ segir Lára
en símanúmer basarsins er
núna 551-3509.
„Til að byrja með var
félagið stofnað til að kenna
ungum stúlkum hannyrðir en
basarinn var stofnaður til að
gefa konum tækifæri til að
selja hannyrðirnar sína. Í dag
er basarinn rekinn þannig að
félagskonurnar eru í sjálf-
boðavinnu við afgreiðslu en
við erum með eina konu sem
er verslunarstjóri og við
borgum henni laun.“ Hann-
yrðir félagskvenna eru enn
seldar í basarnum en þar að
auki eru til sölu minjagripir
og aðrar íslenskar vörur.
„Núna eru það mestmegnis
ferðamenn sem versla hérna
hjá okkur,“ segir Lára.
THORVALDSENFÉLAGIÐ BASAR: HUNDRAÐ ÁR Í SÍMASKRÁNNI
Ekki með sama s ímanúmer
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Hannesson
Akri, Grindavík,
er látinn.
Eiginkona, sonur, tengdadóttir, barnabörn og barnabarna-
börn.
Elskulegur faðir okkar og vinur,
Rodolphe Giess
Hátröð 4, Kópavogi,
lést í Frakklandi laugardaginn 13. maí sl. Útför hans
hefur þegar farið fram frá Église de Puyricard í S-Frakk-
landi. Minningarathöfn verður haldin í Kópavogskirkju
miðvikudaginn 31. maí kl. 17:00.
Emilía Ásta Giess
Alexander Giess
Sigrún Guðmundsdóttir
Hrefna Clausen
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
Sigrúnar I. Sigurþórsdóttur
frá Eiðum.
Ingibjörg Þórarinsdóttir Guðmundur S. Jóhannsson
Þórarinn Þórarinsson Sigríður Vilhjálmsdóttir
Stefán Þórarinsson Helga Jóna Þorkelsdóttir
Sigurður Þórarinsson Margrét Jónsdóttir
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir Hans U. Vollertsen
Hjörleifur Þórarinsson Bergþóra Baldursdóttir
Halldór Þórarinsson Sigríður Wöhler
Ingibjörg Einarsdóttir Jóhann Grétar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Konan mín, móðir okkar, amma og
langamma,
Sigríður Óskarsdóttir
Langholtsvegi 162, Reykjavík,
lést á Landspítalanum mánudaginn 22. maí.
Jarðarförin hefur farið fram.
Magnús Jónsson
Friðrik Magnússon
Hrefna Magnúsdóttir
Jón Magnússon
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn,
stjúpfaðir og afi,
Magnús S. Jósepsson
bóndi, Fremri-Hrafnabjörgum, Hörðudal,
Dalasýslu,
sem andaðist 24. maí sl. á Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
verður borinn til grafar frá Snóksdalskirkju laugardag-
inn 3. júní kl. 11.00 árdegis.
Ólafía K. Hjartardóttir
Hinrik Hinriksson Ólafía H. Bjargmundsdóttir
Ólafía M. Hinriksdóttir
Halldóra G. Hinriksdóttir Páll L. Sigurðsson
Bjargey Una Hinriksdóttir Róbert E. Jensson
Hinrik Ingi Hinriksson
Maðurinn minn,
Þorkell Bjarnason
á Laugarvatni,
sem lést 24. maí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá
Skálholtskirkju föstudaginn 2. júní kl. 14:00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Landssamtök hjarta-
sjúklinga.
Ragnheiður Ester Guðmundsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir
okkar, sonur, bróðir og tengdasonur,
Bergur Magnús Guðbjörnsson
Reynigrund 47, Akranesi,
varð bráðkvaddur sunnudaginn 28. maí.
Oddný Guðmundsdóttir
Þórhildur Kristjánsdóttir
Svavar Kristján Kristjánsson
Áslaug Ármannsdóttir Guðbjörn Páll Sölvason
Þóra Benediktsdóttir Guðmundur Kr. Guðmundsson
Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir Gunnhildur Guðbjörnsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Jóhannsson
frá Valhöll á Bíldudal, til heimilis að
Kleppsvegi 62, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ
fimmtudaginn 1. júní kl. 13:00. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent
á endurbyggingarsjóð Bíldudalskirkju.
Arndís Ágústdóttir
Gústaf Jónsson Erla Árnadóttir
Jakobína Jónsdóttir Sigurþór L. Sigurðsson
Kolbrún Dröfn Jónsdóttir Kristófer Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðrúnar Ólafar Þór
Kópavogsbraut 4.
Gunnar Harðarson
Helga Harðardóttir Sigurður Grétar Guðmundsson
Hildur Harðardóttir
Hrafn Harðarson Anna Sigríður Einarsdóttir
Hulda Harðardóttir Halldór Björnsson
barnabörn og langömmubörn.