Fréttablaðið - 31.05.2006, Side 61
MIÐVIKUDAGUR 31. maí 2006 29
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
28 29 30 31 1 2 3
Miðvikudagur
■ ■ LEIKLIST
21.00 Sokkabandið sýnir verk-
ið Ritskoðarinn eftir Anthony
Neilson í sal Sjóminjasafnins við
Grandagarð 8. Leikstjóri er Jón Páll
Eyjólfsson.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Jón Axel Egilsson sýnir
vatnslitamyndir í Bókasafni
Seltjarnarness við Eiðistorg 11.
Sýningin er opin á opnunartíma
safnsins frá kl. 10 til 17 alla virka
daga og stendur til 16. júní.
15.00 Leirlistasýningin 3x3
í Hönnunarsafni Íslands við
Garðatorg. Guðný Magnúsdóttir,
Kogga og Kristín Garðarsdóttir
sýna verk sín. Sýningin stendur til
18. júní.
Yfirlitssýning á verkum Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal stend-
ur yfir í Gerðarsafni, Listasafni
Kópavogs. Sýningin er haldin í
samstarfi við Náttúrufræðistofu
Kópavogs og stendur til 3. júlí.
Marinó Thorlacius sýnir myndverk
á Thorvaldsen bar í Austurstræti.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Sýningu Gunnars Kristinssonar,
Sigurliðið, í Café Karolínu á
Akureyri lýkur á föstudaginn. Á sýn-
ingunni gefur að líta málverk, teikn-
ingar og prjónaskap þar sem sigurlið
heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu 2006 er kynnt. Þetta er því
tilvalin upphitun fyrir heimsmeist-
arakeppnina í knattspyrnu sem hefst
einmitt innan skamms í Þýskalandi.
■ ■ MÁLÞING
09.00 Skyn(sam)leg rými: rými,
list og umhverfi. Alþjóðleg ráð-
stefna verður haldin í Öskju, nátt-
úrufræðahúsi Háskóla Íslands
í tengslum við listsýninguna Site-
Ations sem nú stendur yfir í Viðey.
Dagskráin er hluti af Listahátíð í
Reykjavík.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Huld Hafsteinsdóttir fiðluleikari
hlaut styrk úr Minningarsjóði
Helgu Guðmundsdóttur á nýaf-
stöðnum skólaslitum Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar. Þetta er í
fimmta skipti sem þessi styrkur er
veittur, en til hans var stofnað árið
2001 til minningar um Helgu Guð-
mundsdóttur sem var skólaritari
Tónlistarskólans um árabil. Styrk-
urinn er veittur þeim nemendum
skólans sem sýnt hafa dugnað og
árangur í námi og hyggja á áfram-
haldandi tónlistarnám.
Huld var einn þriggja nemenda
sem luku burtfararprófi frá skól-
anum að þessu sinni og hyggur
hún á framhaldsnám í fiðluleik í
Þýskalandi næst vetur. -khh
Styrkur til ungs tónlistarfólks
ÞRÍR LUKU BURTFARARPRÓFI FRÁ TÓNLISTARSKÓLA HAFNARFJARÐAR Styrkþeginn Huld
Hafsteinsdóttir, Kristján Tryggvi Martinsson og Baldur Páll Magnússon.
Völuspá er eitt frægasta kvæði
norrænna bókmennta, samið á
Íslandi um árið 1000. Kvæðið lýsir
hugmyndum heiðinna manna um
sköpun heims og örlög manna og
guða, gullöld þeirra, tortímingu í
ragnarökum og nýrri upprisu.
Ljóðið hefur brenglast töluvert
í aldanna rás og röð vísnanna
hefur ruglast. Nú hefur þýðandinn
Helgi Hálfdánarson lagfært röð
stefjanna þriggja sem kvæðið
hverfist um og með því gert kvæð-
ið auðskildara og skýrara. -khh
Bætt Völuspá
FRÆGASTA KVÆÐI NORRÆNNA BÓK-
MENNTA Í nýrri útgáfu Helga Hálfdánar-
sonar.