Fréttablaðið - 31.05.2006, Page 25
][ Enn er alla veðra von svo áður en lagt er af stað í ferðalag skal yfirfara allan búnað. Sólskin er engin trygging fyrir góðu veðri alla ferðina. Vertu öllu viðbúinn því við búum á leikvelli veðurguðanna.
ÍSALP, Íslenski Alpaklúbb-
urinn, stendur fyrir byrjenda-
námskeiði í klettaklifri í byrjun
júní.
Klettaklifur er skemmtileg íþrótt
sem reynir vel á líkamann. ÍSALP,
Íslenski Alpaklúbburinn, er með
byrjendanámskeið fyrir verðandi
klettaklifrara. Námskeiðið hefst
þann sjöunda júní, þá er kvöld-
kennsla og einnig er kennt dagana
10. og 11. júní.
Að loknu námskeiði eiga nem-
endur að þekkja og kunna helstu
hnúta sem notaðir eru í klettaklifri.
Einnig læra klifrararnir að gera
skil á ferli fjölspannaklifurs, að
þekkja að minnsta kosti tvær
aðferðir til að setja upp megin-
tryggingu, hafa skilning á innsetn-
ingu vina, hneta og fleyga, kunna
að nota áttu, túbu og grigri til að
tryggja og síga. Nemendur læra
einnig helstu tækniatriði varðandi
klifrið sjálft. Enn fremur eiga
nemendur að vera færir um að
leiða auðveldar sportklifurleiðir
og að þræða toppakeri ásamt því
að kunna skil á helstu skipunum
sem notaðar eru í samskiptum
klifrara og tryggjanda.
Nemendur verða sjálfir að
koma með klifurskó og kalkpoka.
Annar búnaður er innifalinn í
námskeiðisgjaldi. Skráning á nám-
skeiðið fer fram á mouintainguide
@mountainguide.is. - jóa
Byrjendanámskeið í klettaklifri
Klettaklifur er skemmtileg íþrótt fyrir
útivistarfíkla sem og aðra.
Fimmtán ferðaþjónustuaðilar
á Vesturlandi undir heitinu All
Senses Awoken standa fyrir
viðburðaríkri hvítasunnuhelgi
fyrir ferðalanga.
Ekki ætti að væsa um ferðalanga á
Vesturlandi um hvítasunnuhelg-
ina. Segja mætti að á hverri þúfu á
Vesturlandi verði einhvers konar
uppákoma en allt frá Hvalfirði
upp um Borgarfjarðarhérað og
vestur um Snæfellsnes og Dali
verður heilmargt í boði um þessa
miklu ferðamannahelgi.
15 ferðaþjónustuaðilar, sem
starfa saman undir heitinu All
Senses Awoken – Upplifðu allt á
Vesturlandi, standa fyrir ýmsum
uppákomum og kynna starfsemi
sína í leiðinni. Öll fjölskyldan
getur fundið eitthvað við sitt hæfi
og mörg góð tilboð bjóðast í veit-
ingum og afþreyingu.
Dagskrána má sjá í heild sinni
á www.west.is en sem dæmi má
nefna að farið verður í gönguferðir
að nóttu og degi, hægt að taka þátt
í hvalaskoðun, siglingum, sögu-
stundum, skoða myndlistarsýn-
ingar, fara í ratleiki, sveitafitness,
nýta sér tilboð á golfvellina og
smakka á heimagerðum Erps-
staðaosti. Heimamenn eru kaffi-
og pönnukökuglaðir á Vesturlandi
því margar ferðirnar enda einmitt
á slíku.
Hægt er að ferðast um á kajak
eða hestum eða tveimur jafnfljót-
um undir leiðsögn reyndra og
fróðra manna en þeir sem vilja
frekar slaka á með fætur uppi á
stól geta hlustað á ýmsa trúbadora
sem troða upp eða Ellen Kristjáns-
dóttur og Eyþór Gunnarsson flytja
lög af sálmaplötunni svo fátt eitt
sé nefnt.
Fyrir þá sem vilja kynna sér
tjaldsvæði og gistingu er bent á
vefinn www.nat.is en þar má finna
ítarlegar upplýsingar um staðhætti
á Vesturlandi.
Ferðalangar eru hvattir til að
kynna sér dagskrána vel á www.
west.is og njóta alls þess sem Vestur-
land hefur upp á að bjóða. - jóa
Fjörug hvítasunna
á Vesturlandinu
Vesturland er fagurt mjög og innan um fagra fjallasali og græna dali leynast fjörugir heima-
menn sem opna faðminn fyrir ferðamönnum um komandi helgi.
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
Spennandi sumarleyfisferðir í ferðaáætlun Útivistar.
Skráning í síma 562 1000 og utivist@utivist.is
Tryggðu þér ferðina núna.
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6